Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Side 17
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 17
Leysti skyttuna vel Guðjón
Valur var einn fárra leikmanna
íslands með lifsmarki
ekki of stórt. Alfreð var farinn að
skipta mönnum út af og hugsa
til morgundagsins. Þjóðverjarnir
röðuðu inn mörkum úr
hraðaupphlaupum eftir að hafa
unnið boltann auðveldlega í
vörninni eða eftir markvörslu
Hennings Fritz sem kom
sterkur inn fyrir Þýskaland.
Átta marka tap staðreynd
og er ljóst að draumurinn
um undanúrslit er endanlega
búinn. Ólympíudraumurinn
lifir þó enn en liðið verður að
spila mun betur eigi það að
takast.
Heins grét og
Norðmennirnir sáu um
undirspilið
Þegar öllu er á bominn hvolft
var Þýskaland mun betra liðið
í leiknum en það íslenska fékk
litía hjálp frá norskum dóm-
urum leiksins. Enga réttara
sagt. Þýska liðið fékk víti
og tveggja mínútna brottvísanir á fs-
land en hinum megin á vellinum var
sagan allt önnur. Nákvæmlega eins
brot Þjóðverja virtust alltaf vera lög-
leg og dómararnir lém kvartanir ís-
lensku strákanna eins og vind um
eyru þjóta.
Hárprúða skyttan, Pascal Heins, lá
í gólfinu hvað eftir annað og í þau fáu
skiptí sem ekki var dæmt brot stöðv-
uðu dómararnir leikinn til að hlúa
að Heins og stöðvuðu þar af leiðandi
hraðaupphlaup fslands. Norska par-
ið skánaði þó mikið í seinni hálfleik
og verður ekki kennt um tapið.
Erfitt að sjá forskotið
fuðra upp
Snorri Steinn Guðjónsson var
myrkur í máli eftir leik og sagði
byrjun íslenska liðsins í leiknum í
takt við mótið. „Við ætluðum ekki
að byrja svona í leiknum en þessi
byrjun endurspeglar margt annað í
þessari keppni hjá okkur. Það er erf-
itt að gefa skýringar á svona byrj-
un en við höfum leikið illa í þessari
keppni og þetta er í takt við ann-
að sem er í gangi hjá okkur eins og
sóknarleikinn til dæmis.
Vörnin fer samt aðeins að halda
í leiknum og kannski í fýrsta skipti í
mótinu var sóknarleikurinn á þeim
hraða sem hann getur verið. Guð-
jón Valur og Óli komu í skyttustöð-
urnar og fundu sig vel. Þjóðverjarn-
ir réðu illa við þeirra hraða og svo
virtist að hafa þá tvo á aðeins hærra
tempói gaf okkur færi á að koma að-
eins til baka.
Það var hins vegar ekki nóg í dag.
Við lögðum mikið í að vinna upp
forskotið þeirra og þegar maður sá
það fuðra upp fór vindurinn svo-
lítið úr mönnum. Þessi keppni er
búin að vera erfið hingað til og það
er erfitt að kyngja þessu."
Stórskyttan, Pascal Heins, var
öllu hressari þegar DV talaði við
hann eftir leik. „f fyrstu leikjunum
okkar vorum við ekki líkir sjálfum
okkur. Sóknarleikurinn var hægur
og við skutum illa. f dag tókst okk-
ur samt að opna betur fyrir mig og
Holge Glandorf fyrir utan og þá fóru
skotin að liggja í netinu.
Við erum ekki að spila næst-
um jafnvel og við gerðum á heims-
meistaramótinu í fyrra. Heimavöll-
urinn skipti þar gífurlegu máli og
þetta lið er ekki líkt því sem var þá.
Við unnum samt í dag og eigum eft-
ir tvo leiki sem við ætlum að sigra í
og koma okkur í undanúrslit," sagði
Heins kátur að lokum.
Byrjunin skandali
„Byrjunin hjá okkur var skand-
all og nokkuð sem á ekki að sjást hjá
landsliði. Það má segja að leikurinn
hafi tapast þar," sagði Ólafur Stef-
ánsson við DV eftir leik. Ólafur lék
með þrátt fyrir verk í læri og reyndi
sitt allra besta. „Við sýndum smá
karakter í seinni hálfleik og sýndum
úr hverju við erum gerðir en sá kafli
var allt of stuttur," Ólafur hélt að
það hefði verið auðvelt fyrir menn
að peppa sig upp í svona leik.
„Fyrir þennan leik sérstak-
lega hefðum við átt að vera mjög
stemmdir. Ég hélt líka að hver og
einn væri tilbúinn í leikinn en
auðvitað get ég ekki farið inn í
hausinn á öðrum. Mótiveringin
var sú að vinna þrjá leiki og kom-
ast í undanúrslit en nú er það
búið. Stefnan er núna að vera með
smá sjálfstraust í næstu tvo leiki
og reyna að ná sæti til að komast
í undankeppni Ólympíuleikanna.
Við þurfum að taka góða kaflann
í dag með okkur í næsta feik og
spila þannig í að minnsta kosti 45
mínútur ætlum við að vinna ein-
hverja leiki," sagði Ólafur.
Tottenham lagði Arsenal 5-1 í undanúrslitum deildarbikarsins:
KENNSLUSTUND Á WHITE HART LANE
Tottenham tryggði sér farseðilinn
í úrslitaleik deildarbikarkeppninar
þegar liðið lagði Arsenal í
undanúrslitum 5-1. Tottenham-
menn fóru hreinlega á kostum
framan af leik og hefðu getað unnið
enn stærri sigur.
Leikurinn fór fjörlega af stað
og fyrsta mark leiksins kom strax
á 3. mínútu þegar Jermaine Jenas
skoraði sitt annað mark í viðureign
félaganna með góðu skoti. Hann
skoraði einnig í fýrri leik liðanna.
Arsenal-menn voru með sterkara
lið en oft áður í keppninni þar sem
Arsene Wenger hefur gjarnan stillt
upp varaliðinu en Gallas, Hleb og
Fabregas spiluðu megnið af leikn-
um.
Á 25. mínútu varð Daninn sterki
Bendtner fyrir því óláni að skalla
knöttinn í eigið net eftir aukaspyrnu.
Stuttu síðar fékk Berbatov gullið
marktækifæri til þess að skora þriðja
markið en skaut í stöngina eftir að
hann komst einn í gegn.
Arsenal ógnaði marki Tottenham
sjaldan í fyrri hálfleik en heimamenn
voru sterkir í vörninni og beittu
skyndisóknum þegar færi gafst.
Síðari hálfleikur var ekld nema
þriggja mínútna gamall þegar Robbie
Keane skoraði sitt 101. mark fyrir
Tottenhameftirglæsilegaskyndisókn.
Lennon gaf góða stungusendingu á
frann sem skoraði með góðu skotí.
Arsenal-menn vissu ekki hvaðan á
sig stóð veðrið og settu Adebayor inn
á. Strax í næstu sókn eftir þriðja mark
Tottenham skallaði Bendmer í slána
og færin virtust falla af himnum ofan
líkt og regndropar.
Á 60. mínútu gerðu Tottenham-
menn endanlega út um leikinn með
vel útfærðri skyndisókn. Lennon hóf
sóknina með sendingu og geystist
fram þar til hann fékk boltann að
nýju einn gegn Fabianski og áttí ekki
í vandræðum með að skora.
Adebayor minnkaði muninn á
70. mínútu með góðu skoti. Það
var hins vegar of seint í rassinn
gripið og niðurlæging Arsenal var
fullkomnuð þegar Malbranque
stráði salti í sárin með marki á
lokamínútunni.
Þetta var fýrsti sigur Tottenham
á Arsenal síðan árið 1999 og óhætt
er að segja að hann hafi komið á
góðum tíma. Tottenham mætir
annaðhvort Chelsea eða Everton í
úrslitum. Síðari leikur þessarra liða
fer fram í kvöld en Chelsea-menn
leiða 2-1 fyrir leikinn sem fram fer á
Goodison Park, heimavelli Everton.
vidar&dv.is
Fimmfaldur fögnuður Tottenham
rúllaði yfir Arsenal 5-1.
Redknapp vill Crouch
Harry Redknapp, framkvæmdastjóri
Portsmouth, leitar nú logandi Ijósi að
nýjum leikmönnum sökum mikils
brotfalls úr
leikmanna-
hópnum vegna
Afríkukeppn-
innar.
Draumaleik-
maður
Redknapps er
Peter Crouch
sem hann segir
tilvalinn fyrir
sóknarlínu liðsins.„Mér líkar við Peter
Crouch og hann kæmist (liðið hjá
mér í hverri viku. Ég veit hins vegar
ekki hvort Liverpool er til í að selja
hann. Hann gerði góða hluti þegar
hann var hjá Portsmouth og hann er
mjög góður náungi sem gott er að
vinna með," segir Redknapp. Aston
Villa og Newcastle hafa sýnt áhuga á
því að kaupa kappann auk Ports-
mouth.
Litmanen til reynslu
hjá Fulham
Gamla brýnið Jari Litmanen ertil
reynslu hjá enska úrvalsdeildarliðinu
Fulham þessa dagana. Roy
Hodgson, framkvæmdastjóri
Fulham, hefur löngum verið
aðdáandi
Litmanens en
hann er 36 ára
og spilaði vel
með finnska
landsliðinu sem
Hodgson hefur
þjálfað
_ _ ^55, undanfarin ár.
„Viðmunum
taka ákvörðun
eftir að hann er búinn að vera hér til
reynslu. Ég er mjög bjartsýnn á að
hann geti hjálpað okkur í baráttunni
gegn falldraugnum," segir Hodgson.
„Sjálfur er Litmanen tilbúinn að
koma aftur í ensku knattspyrnuna.
„Roy hringdi í mig og veitti mér
tækifæri til að koma, ég tók þv(
fegins hendi," segir Litmanen sem
verður 37 ára í febrúar.
Cousin vill til Fulham
Rangers neitaði í fyrradag tilboði frá
Fulham (Daniel Cousin en hann er
ekki sáttur við þær málalyktir og vill
fara frá skoska félaginu.„Daniel vill
fara og það er félaganna að finna
kaupverð sín á milli," segir Willie
McKay
umboðsmaður
Cousins.Talið
erað boð
Fulham hafi
verið upp á 2
milljónir
punda, eða 262
milljónir
íslenskra króna,
en Walter
Smith, stjóri Rangers, vill fá í það
minnsta 3 milljónir punda fyrir
kappann, eða 393 milljónir króna.
Cousin fór til Rangers frá Lens í fyrra
og hefur skorað 8 mörk (17 leikjum
fyrir bláa helming Glasgow-borgar.
Cousin er þrítugur og leikur sem
sóknarmaður.
Baros til Portsmouth?
UmboðsmaðurTékkans Milans
Baros segir að Portsmouth sé á
höttunum eftir
kröftum
sóknarmanns-
ins sterka. Baros
hefur átt erfitt
uppdráttar hjá
Lyon.f
Frakklandi og
raunar hefur
fátt gengið upp
síðan á EM
2004. „Ég er þegar búinn að afhenda
forráðamönnum Lyon opinbert
tilboð frá Portsmouth í hann og við
bíðum viðbragða frá þeim," segir
Paska sem er umboðsmaður Baros.
Hjá Portsmouth gæti Baros hitt fyrir
landa sinn Patrik Berger en líkur eru
á þv( að hann fari til félagsins frá
Aston Villa á næstunni. Berger verður
samningslaus (sumar en taliö er að
Harry Redknapp, stjóri Portsmouth,
viiji tryggja sérTékkann áður en
samningur hans rennur út (sumar.
Hann hefur verið á stanslausu flakki
s(ðan hann sló (gegn á EM 2004 og
var keyptur til Liverpool. Þaðan fór
hann til Aston Villa og svo á bekkinn
(Frakklandi.