Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Page 19
DV Vetrarsport MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2008 17 „Það hefur verið opið undanfarið og ísdorg er í boði á meðan veður leyfir," segir Trond Eksund, einn umsjónarmanna Reynisvatns. Vatn- ið hefur um árabil verið einn helsti veiðistaður borgarbúa yfir sumar- tímann en þar má einnig veiða að vetri til. „Ég sé um vatnið ásamt Wolfgang Pomorin og við erum að vinna að því að bæta aðstöðuna og hafa þetta opið allan ársins hring," segir Trond en undanfarið hefur fólk stundað þar ísdorg þegar ísinn á vatninu er nægilega traustur. Treysta viðskiptavinum Trond segir að hann og Wulfgang reyni að vera við vatnið þegar þeir geta en hafi þó leyft fólki sem hefur veiðileyfi að veiða í vatninu þó svo að þeir séu ekki á svæðinu. „Við treyst- um nú fólki alveg til þess að vera heiðarlegt og veiða bara sé það með veiðileyfi. Enda eru þau á mjög hag- stæðu verði og lítil ástæða til þess að reyna að svíkjast undan," segir Trond en leyfið kostar aðeins 4.000 krónur og fyrir það má veiða fimm fiska sem eru yfir einu pundi. „Það eru engin tímamörk á leyfunum heldur gilda þau bara svo lengi sem fiskur er eft- ir á þeim." Trond segir aðstæður undanfarið hafa verið góðar fyrir ísdorg, ísinn sé vel mannheldur. „ísinn er rúmlega 20 sentímetra þykkur um þessar mundir," en Trond segir misjafnt hversu duglegt fólk sé að stunda ís- dorgið.„Starfsmennrússneskasendi- ráðsins hafa til dæmis verið duglegir við að heimsækja okkur." Trond tekur þó fram að öruggast sé fyrir fólk að hafa samband við þá féíaga upp á hvernig staðan sé á ísnum en hægt er að finna símanúmerið í símaskrá undir „Reynisvatn". Þolinmæði á ísnum Trond segir að ísdorg sé öðruvísi veiði en sú hefðbundna og að hún krefjist meiri þolinmæði. „Fiskurinn er aðeins latari f kuldanum en það er fín veiði ef fólk sýnir þessu bara þol- inmæði," segir Trond og mælir með því að fólk komi vel búið í veiðina. „Það borgar sig að koma með ábreiðu eða eitthvað til að liggja á eða sitja á á ísnum því annars verður kalt mjög fljótt." Trond segir sleggjur og bor vera á staðnum til þess að gera göt á ís- inn en til að hafa varann á borgi sig að láta þá Trond og Wulfgang gera götin. „Við eigum fi'nan bor en oft- ast er bara fljódegra að nota sleggj- una," segir Trond að lokum og von- ast hann til að ísinn haldist traustur fram eftir vetri því að ísdorg sé af- slappandi og skemmtílegt sport sem allir geti stundað. asgeir@dv.is Skortur á starfsfólki hefur plagað skíðasvæðin mikið undanfarið en útlit er fyrir bjartari tíma: MJÚKT FÆRIOG MIKILL SNJÓR „Færið hefur verið mjúkt og það hefur verið mikill snjór," segir Magnús Ámason, ffamkvæmdastjóri skíðasvæða höfuðborg- arsvæðisins. „Það hefur reyndar verið svo vont veður núna eftir helgi að það hefúr ekkert verið opið," segir Magnús en aðspurður hvernig aðstæður séu memar svarar hann: „Við erum með vindmæli og svo sjáum við hvernig lyftumar sveiflast. Ef þær sveiflast mikið springur öryggið." Skíðasvæðið í Bláfjöllum hefúr þurft að glíma við mikla manneklu upp á síðkastíð en að sögn Magnúsar hefur verið erfitt að halda lyftunum opnum því það vantar fasta starfsmenn við lyfturnar. „Við vomm með takmarkaða opnun vegna þessa í síðustu viku en náðum að opna vel um síðustu helgi og nú er útíit fyrir að við náum að ráða fleiri fasta starfsmenn sem auðveldar opnun til muna. Sökum manneklu höfum við ekkert haft opið í Skálafelli í tvö ár," segir Magnús en áhersla er lögð á skíðasvæðið í Bláfjöllum. „Það er mun auðveldari færð í Bláfjöllum en okkur langar tíl að leggja meiri áherslu á Skálafell og stefnum að því hægt og rólega að ná inn nægilegri þekkingu og traustum mannskap til að geta haft jafnmikið opið á báðum stöðum. Þetta em mjög ólflc skíðasvæði og með ólíkan stfl. Skálafell hentar oft fjölskyldufólki betur þar sem brekkurnar em jafnari og ekki jafnbrattar og kannski í Bláfjöllum. En auk þess em þetta ólflc svæði að veðurfari, það getur verið brjálað veður í SkálafeUi en gott í Bláfjöllum og svo öfugt," segir Magnús að lokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.