Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.2008, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2008 Slðast en ekkislst DV Þessi skrípaleikur og valdagræðgi borgarfulltrúa Reykjavíkur hefur gengið allt of langt. Segjum lands- byggðarflótta stríð á hendur og flýjum fjandans höfuðborgina. Það er fullt af spennandi kostum í stöð- unni, allt í kring. Það má til dæmis flytja tíl Raufarhafnar og stofna krá. Það mættí flytja til Flateyrar og stofna tölvufyrirtæki. Það mætti jafn- vel flytja upp á Skaga og setja aukið púður í Sementsverksmiðjuna. Nú þegar þrengir að buddunni er nauðsynlegt að velta rækilega fyrir sér öllum útgjöldum. Ekki er nóg að velta þeim fyrir sér, held- ur þarf að draga úr öllum mögu- legum útgjöldum. Seðilgjöld og annan óþarfa pappír er vel hægt að afþakka. Gluggapóstur heyrir sögunni til, ef þú aðeins berð þig „ eftír því. Afþakkaðu gluggapóst og greiddu þína reikninga á netinu. Það er ódýrara. Það er nú eða aldrei að redda sam- bandinu sem hefur farið versnandi nú í skammdeginu. Keyptu flug og miða fýrir tvo á leik í enska boltan- um og láttu drauma hans rætast. Hann mun aldrei gleyma þeirri gjöf. Passaðu bara að hafa húsið hreint og mat í fsskápnum þegar strákamir koma tíl baka. Pottþétt gjöfhanda bóndanum... ogbesta vini hans. EKKIEINSOG LAMB TILSLÁTRUNAR Margrét Sverrisdóttir hefur verið í eldlínunni síðustu daga vegna nýs meirhluta. Hún neitar samstarfi við starfsfé- laga sinn til átta ára, Ólaf F. Magnússon. Hver er konan? „Ég er pólitíkus, íslenskufræðingur að mennt, gift, á tvö uppkomin böm og tíkina Blöndu." Hver eru þín áhugamál? „Ég hef alltaf haft mildnn áhuga á fé- lagsstörfum, bókmenntum og ís- lenskri náttúm." Uppáhaldsstaður? „Kirkjubær við Skutulsfjörð á ísafirði." Besti matur? „Humar." Hvert er uppáhaldshúsverkið? „Ætli það sé ekki bara eldamennsk- an." Hvernig hljómar draumadagur í þínu lífi? „Á draumadegi væri ég í veiði með fjölskyldu og vinum, það væri alsæla, ef alsæla er tíl." Af hverju ert þú stoltust? „Börnunum og stórfjölskyldunni." Kom aldrei til greina að vinna með Ólafi F. Magnússyni? „Jú, það hefði svo sannarlega kom- ið tíl greina enda er ég búin að vinna með manninum í átta ár. Við höfum átt mjög farsælt samstarf. Ég læt bara ekki leiða mig eins og lamb tíl slátrun- ar. Mér fannst hann ekki vinna þetta eðlilega." Hver eru markmið þín ef nýi meirihlutinn fellur? „Ég hef ekki sett mér markmið svo langt fram í tímann, núna geri ég það sem hjartað og hugur minn segir mér að sé rétt. Það verður svo bara að koma í ljós hvort svo sé. Ég er eflaust ekki að velja auðveldustu leiðina. Það hefði verið miklu auðveldara að þiggja allar nefndir og ráð sem mér hugnuðust. " Ert þú orðin þreytt á pólitískum átökum? „Núna í augnablikinu er ég það en þetta er eins og lífið. Það eru oft átök í lífinu sjálfu. Ef maður er hins vegar sáttur við sjálfan sig er maður sáttur við lífið. Þannig verð ég líka að hugsa pólitíkina. Ég þarf að geta sofið á nóttunni." Sérð þú eftir því að hafa yfirgefið Frjálslynda flokkinn? „Nei, ég hef aldrei iðrast þess. Ég sagði reyndar að þeir hefðu far- ið frá mér því flokknum var rænt á glundroðalandsþingi, ef fólk er búið að gleyma því." Fyrir hvað standa Vestfirðir í þínum huga? „Ótrúlega náttúrufegurð og frá- bært fólk, svo get ég alltaf sótt í mikla orku og frið á Vestfjörðum. Yndislegur staður." A/IAÐUR DAGSINS Hvar ætlar þú að vera í ellinni? „Ég er til í að vera hvar sem er í heim- inum, bara ef mínir nánusm eru mér nærri." Hver er draumurinn? „Mig dreymir um að verða ofboðslega skemmtileg og vinsæl amma, með bók í hönd. Svo dreymir mig líka um að geta sinnt áhugamálum mínum betur." SWDKOKX ■ Hafnfirska rokksveitín Botn- leðja er á meðal þeirra hljóm- sveita sem leika á Látíð í bæ sem fer fram á Sirkus um helg- ina. Ekkert hefur spurst frá sveit- inni í lengri tíma eða frá því að þremenn- ingarnir tóku þátt í forkeppni Eurovision á sínum tíma. Flestír töldu að dagar sveitarinnar væru taldir en þessi tíðindi gefa aðdáend- um sveitarinnar vonarneista um að Botnleðja rísi upp frá dauðum. ■ Þótt handboltalandsliðið okkar sé ekki upp á sitt besta hefur umfjöllun íslenskra fjölmiðla um mótið aldrei verið meiri. Það er ekki síst fyrir vefsíðuna ibliduogstridu. is. Ein skemmtileg nýjung er vídeóhornið á síðunni þar sem Auðunn Blöndal fer á kostum. Um daginn samdi hann þannig við Sigfús Sigurðsson að ef íslendingar töpuðu fyrir Svíum fengi Auðunn að rassskella Sigfús. Það varð úr og Auddi flengdi Sigfús. Þar er hins vegar aðeins hálf sagan sögð þar sem Sigfús fékk að flengja Audda fyrir sigurinn á Slóvökum. Skellurinn frá Fúsa var slíkur að stórsá á botninum á Audda og sandkornsritara er til efs að hann geti setið það sem eftir lifir móts. ■ Auðunn hefur drýgt fleiri strákapör í þágu síðunnar. Reyndar lét hann sinn hundtrygga aðstoðarmann, Ofur-Huga, vera fórnarlamb Einars Hólmgeirssonar sem í daglegu táli er kallaður grjótkastarinn. Hugi sneri baki í Einar og Einar dúndraði boltanum á um 100 kílómetra hraða á klukku- stund, svo drundi í beru bakinu á Huga, sem lá óvígur eftir. Auddi hló dátt og innilega en tóksjálfur að sér að kenna Snorra Steini að taka vítaköst. Fleiri myndbönd í þessum dúr má finna á síðunni ibliduogstridu.is. fy..i t.xS IWI i$ik B5 DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr.á mánuði HINN DAGINN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.