Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
ráðherrans
Þórunn Sveinbjamardóttir
umhverfisráðherra er í mótsögn
við sjálfa sig þegar hún vill fá
undanþágu fyrir mengun flugvéla
en berst gegn framlengingu
íslenska ákvæðisins í Kyoto-
sáttmálanum. Þetta sagði Siv
Friðleifsdóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokks, á Alþingi í gær.
Hún sagði skrýtið að berjast
gegn ákvæði til notkunar end-
urnýjanlegra orkugjafa á sama
tíma og Þómnn vildi undanþágu
til að brenna kolefnaeldsneyti.
Þórunn hefúr sagt að hún
vilji undanþágu frá reglum ESB
um skatdagningu á mengun fr á
flugvélum. Hún sagði á þingi í gær
að það væri nauðsynlegt vegna
þess hversu mjög Islendingar stóla
á flugsamgöngur.
Forseti fái
aukinvöld
Jón Magnússon, þingmað-
ur Frjálslynda flokksins, lagði
til á Alþingi í gær að á íslandi
yrði tekið upp svipað kerfi og í
Frakklandi og Bandaríkjunum
þar sem forseti yrði jafriffamt
forsætisráðherra. Þá nefitdi
hann einnig að gera mætti
forseta þjóðkjörinn og þá
jafnframt forseta Alþingis.
Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra sagði sjálfsagt að
velta hugmyndinni fyrir sér.
Hann sagði hana vera-meðal
þess sem hefði borið á góma
hjá stjórnarskrárnefnd.
Vill lækkaskattaá
rafrænum bókum
Virðisaukaskatturinn á vefbók-
um, rafbókum, bókum á geisla-
diskum og landakortum iækk-
ar um helming ef lagafiumvarp
Marðar Amasonar, varaþing-
manns Samfylkingarinnar, nær
fram að ganga.
Mörður lagði fr am frumvarp á
Alþingi í gær þar sem gert er ráð
fyrir að vefbækur, rafbækur, bækur
á geisladiski og landakort færist á
neðra þrep virðisaukaskatts, eða
úr fjórtán í sjö prósent Það er sami
skattur og á prentaðar bækur.
Bíðureftir
Jóhönnu
Helgi Vilhjálmsson, bemr
þekktur sem Helgi í Góu, hefur í
þrjár vikur reynt að fá tíma hjá Jó-
hönnu Sigurðardóttur félagsmála-
ráðherra, en aðeins er hægt að
panta tíma hjá henni á mánudags-
morgnum. Helgi reyndi fyrst að fá
fund með Jóhönnu eftir að hann
keypti auglýsingu í öllum helstu
dagblöðum og skoraði á hana
að beita sér fyrir lagabreytingum
sem gera lífeyrissjóðum kleift að
fjárfesta í húsnæði fyrir aldraða. í
samtali við DV segist Helgi ætla að
reyna aftur að vilcu liðinni.
Einar Guðmundsson geðlæknir telur sjúklinga ekki nægilega upplýsta um takmarkanir á
þagnarskyldu lækna. Hann telur ennfremur að upplýsingar um geðsjúkdóma eigi ekki að
vera bundnar frekaritrúnaði en um aðra sjúkdóma. Sigurður Guðmundsson landlæknir
segir samskipti heilbrigðisstarfsfólks við sjúklinga miða að auknu öryggi þeirra. Hann
telur ástæðulaust að greina á milli geðrænna og líkamlegra sjúkdóma hvað trúnað varðar.
FARIÐ Á BAK VIÐ'
GEDFATLAÐA
Geðsjúkdómar sér a bati Einar
Guðmundsson vill að þagnar-
„ skylda lækna sé ríkari þegar um
geðræna sjúkdóma er að ræða en
sjúkdóma af öðrum toga.
I...s8
ERLA HLYNSDÓTTIR
blaóomcidui skrifar: eiloo'dv.is
„Segja má að farið sé á bak við sjúk-
linga og þeir látnir halda að trúnaður
læknis sé meiri en innistæða er fyrir,"
segir Einar Guðmundsson geðlæknir
um heimildir lækna til að ræða mál
skjólstæðinga sinna við aðra lækna
eða heilbrigðisstarfsmenn. Honum
finnst mikilvægt að á hverri lækna-
stofu hangi plakat með yfirliti yfir
allar þær takmarkanir þagnarskyld-
unnar sem bundnar eru í lög. Aðeins
þannig geti sjúklingar tekið upplýsta
ákvörðun um hversu langt hann vill
ganga í trúnaði við lækninn.
Samskipti í þágu sjúklinganna
Sigurður Guðmundsson landlæknir
segir eitt af grundvallarskilyrðum þess
að geta sinnt sjúklingunrvel sé að upp-
lýsingaflæði innan heilbrigðisgeirans
sé greitt: „Við teljum ekki að verið sé að
ganga á rétt sjúklinga með því að heil-
brigðisstarfsfólk ræði mál þeirra sín
á milli með það að markmiði að geta
veitt þeim sem besta þjónustu. Það er
ekki í þágu öryggis sjúklinga að sam-
skiptin séu heft frekar." Honurn finnst
tal um skerðingu þagnarskyldunnar í
þessu samhengi af og frá.
Sigurður bendir á að eins og stað-
an er nú getur læknir á Borgarnesi sem
sendir sjúkling í myndatöku í Reykjavík
ekki fengið beinan aðgang að niður-
stöðum myndatöku í gegn um gagna-
grunn. Því séu miklar takmarkanir enn’
við lýði.
Skrá síður viðkvæmar
upplýsingar
Einar Guðmundsson segist ekki
vera í herferð gegn lögunum sem
slíkum heldur vilji hann að frávik frá
þagnarskyldu séu uppi á borðum.
Hins vegar finnst honum að aðrar
reglur eigi að gilda um sjúkraupplýs-
„Loðin umræða um
geðsjúkdóma er engum
tilgagns"
ingar geðlækna og að þær eigi að vera
bundnar meiri trúnaði en upplýsing-
ar er varða aðra sjúkdóma. Hann seg-
ir að líkleg viðbrögð við þessari skerð-
ingu á þagnarskyldunni verði þau að
geðlæknar skrifi síður í sjúkraskrár
atriði sem kæmu sjúklingum illa ef
einhver óviðkomandi kæmist í þær.
„Auðvitað mun hættan á því aukast
þegar sjúkraskrámar verða rafræn-
ar eins og nú er mikill áhugi fyrir hjá
sumum læknum," segirEinar.
Sigurður bendir á að gagna-
grunnur um krabbameinssjúklinga
hafi verið starfræktur hér á landi í
hálfa öid og við búum því yfir mikilli
þekkingu og reynslu þegar kemur að
slíkri upplýsingasöfnun. Markmiðið
með þeim sé alltaf að bæta hag sjúk-
linga og stuðla að frekari rannsókn-
um á viðkomandi sjúkdómi.
Sætir andlegu mótlæti
Sigurður vekur athygli á því að
um 20 prósent þjóðarinnar hafa
einhverju sinni þjáðst af þunglyndi,
sem er geðsjúkdómur. „Efvið setjum
vandamál þeirra sem þjást af geð-
sjúkdómum í annan flokk en þeirra
sem eiga við líkamlega sjúkdóma
að etja má segja að við séum enn
að auka á fordómana. Sumum geð-
læknum finnst að umræðan um geð-
ræn vandamál eigi að vera eðlislægt
ólík annarri umræðu. En ég spyr, af
hverju á hún að vera það? Það er op-
inni umræðu um geðræn vandamál
síður en svo til framdráttar þegar
fólk segist hafa sætt andlegu mót-
læti eða sé niðurdregið í stað þess að
segja beint út að það hafi gh'mt við
þunglyndi. Loðin umræða um geð-
sjúkdóma er engum til gagns," segir
hann.
Þingkonur vilja breyta ráðherra i ráðfru þegar við á:
Konur verði ekki karlqerðar í herra
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þing-
kona Samfylkingarinnar, segir það
vera viðtekna skoðun að það sé hall-
ærislegt að tala um vinnuálag kvenna
og að konur hafi ekki sömu tældfæri
og karlar. Steinunn hefur lagt ffarn
þingsályktunartillögu þar sem ríkis-
stjórninni verður Mð að láta undir-
búa breytingar á stjómarskrá og lög-
um til að taka megi upp nýtt starfsheiti
ráðherra sem bæði kynin geti bor-
ið. Hún segir karla hafa verið þá einu
sem gegndu ráðherrastöðu á sínum
tíma og að stöðuheitið taki mið af því.
Meðal þeirra breytíngarhugmynda
sem hafi borið á góma er að kvenráð-
herrar verði ráðfrúr. —
„Kona getur ekki verið herra. Þetta
stríðir ekki einungis gegn malvitund
heldur er þetta merkingarlega útilok-
að á sama hátt og karl getur ekki verið
frú," sagði Steinunn Valdís í umræð-
um á Alþingi í gær og sagði starfsheiti
ráðherra vera ákveðið birtingarform á
mismunun.
Steinunn Þóra Ámadóttir, þing-
kona vinstri grænna, tekur undir skoð-
un Steinunnar Valdísar og hugnast vel
að starfsheitum verði breytt þannig að
konur verði ekki karlgerðar eða karlar
kvengerðir. „Þetta verður vonandi til
þess að orðsins hljóðan geri ekki að
verkum að maður sjái karlmann fyrir
sér frekar en konu. Á þeim tíma sem
þetta var tekið upp var valdið alfarið
í höndum karla og því ekki skrítíð að
það væri beintengt Þetta vísar ekki
einungis til samfélagsins heldur mót-
ar það. Auk þess er drottnunarblær á
því og vísar það til stéttaskiptingar,"
segir Steiminn.
Höskuldur Þórhallsson, þingmað-
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
Vill að starfsheiti verði tekið upp sem
bæði kyn geti borið.
ur Framsóknarflokksins, telur breyt-
ingar á starfsheiti ráðherra ekki vera
þarft innlegg í jafméttísumræðuna
og segir brýnni verkefrtí sem þurfi að
leysa á undan. Hann telur vel að kon-
ur geti verið ráðherrar og leggur aðra
merkingu í orðið en Steinunn. „Þetta
er titill sem sýnir í hverju starfið felst.
Ég er ekki sammála því að eigi að finna
nýyrði sem breyti hundrað ára gamalli
hefð," sagði Höskuldur á Alþingi í gær.
Ámi Johnsen, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, var meðal þeirra sem
tóku undir skoðun Höskuldar. „Það er
munur á málffæðilegri samsetningu
og merkingarlegri. íslensk tunga hef-
ur orðið til á löngum tíma. Hefðin er_
það sterk að fólk kyngreinir ekki orðið
ráðherra. Þetta er fallegt orð með virð-
ingu og viðurkenningu," sagði Ámi.
roberthb@dv.is