Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV RÆN NGJARN Illa undirbúnir bankaræningjar voru handteknir á hádegi i gær eftir aö hafa rænt útibú Glitnis i Lækjargötu fyrr um morguninn. Þeir fóru meö peningana á Hjálpræöisherinn i næstu götu og þaðan í brúnkumeðferð og andlitsbað i Garðabæ. TRAUSTI HAFSTEINSSON bladamodur skrifar: trcui$tl@>dv.is Erna Gísladóttir, hjá Snyrtistofunni Garðatorgi, segist aldrei hafa grun- að að um ræningja hefði verið að ræða sem mættu í andlitsbað og brúnkumeðferð hjá henni í gær. Tveir mannanna sem grunaðir' eru um að hafa framið rán í útibúi Glitnis í gærmorgun fóru með leigubíl frá gistiheimili Hjálpræðishersins í Reykjavík út í Garðabæ þar sem annar þeirra fór í andlitsbað en hinn í brúnkumeðferð á snyrtistofunni. Segir Erna þá hafa verið hina rólegustu þegár þá bar að garði og að hana hafi aldrei grunað að leitað væri að þeim vegna ránsins í Glitni. „Þeir voru mjög kurteisir og prúðir við okkur," segir Erna. Handteknir eftir tvo og hálfan tíma Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu varbúin að handtaka bankaræn- ingjann tveimur og hálfum klukku- tíma eftír bankaránið í gær. Ásamt honum voru tveir vitorðsmenn hans handteknir og hins þriðja leitað. Af ummerkjum og atburðarás að dæma lítur út fyrir skyndiákvörðun ræningjanna því lögreglu reyndist auðvelt að hafa uppi á þeim. Bankaræninginn réðst vopnaður öxi inn í bankaútíbúið í Lækjargötu fimm mínútum eftir opnun í gær- morgun. Hann náði að hafa á brott með sér nærri milljón króna í reiðufé, sem hann tróð í bakpoka sem hann hafði meðferðis, eftír að hafa ógnað gjaldkera með öxinni. Ræninginn, ríflega tvítugur karl- maður, var klæddur dúnúlpu og Lokað timabinuii^ huldi andlit sitt með hettu og dökk- um sólgleraugum. Þrátt fyrir það náðust skýrar andlitsmyndir af hon- um í eftírlitsmyndavélum bankans og þekktist ræninginn samstundis á myndunum enda hefur hann áður komið við sögu lögreglunnar. Það hafa félagar hans einnig gert. Flúðu í ieigubíl Að loknu ráni hljóp axarræninginn rakleiðis á gistíheimili Hjálpræðishersins í Kirkjustrætí þar sem hann hafðileigt herbergi með félögum sínum. Þar virðist einn vitorðsmannanna hafa orðið eftir og var hann handtekinn í húsinu. Lögreglan fann einnig öxina liggjandi á Hjálpræðishernum. Einn VOPNAÐ RÁN í LÆKJARGÖTU 09.05 Ræninginn kemur inn (bankann. 09.08 Lögreglu berst tilkynning um ránið. 09.11 Lögregla kemur á staöinn. 09.30 Ræninginn tekur leigubfl frá gistiheimilinu ásamt félögum s(num. 09.30 Lögregla handtekur vitorðsmann nærri gistiheimili Hjálpræðishersins. 11.20 Lögregla handtekur ræningjann viö annan mann (Garðabæ. Þýfið fannst á mönnunum. 11.30 Ræningiog vitorðsmenn vitorðsmannanna var handtekinn stuttu eftír ránið. Ræninginn komst á brott með ránsfenginn ásamt tveimur félögum sínum. Til flóttans nýttu þeir sér leigubíl og voru tveir þeirra handteknir nærri Garðatorgi í Garðabæ skömmu fyrir hádegi, eftír slakandibrúnku- ogandlitsmeðferð. Veittu þeir enga mótspyrnu við handtökuna og á öðrum þeirra fannst ránsfengurinn. Ræningjarnir voru færðir til yf- irheyrslu á lögreglustöð tveimur og hálfum klukkutíma eftír sjálft ránið. Ómar Smári Ármannsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, er ánægð- ur með árangurinn. Hann segir út- lit fyrir að þetta hafi verið vanhugs- uð aðgerð af hálfu ræningjanna. „Við leggjum alltaf mikla áherslu á að upplýsa svona mál eins fljótt og kostur er. Við náðum þeim rúm- um tveimur klukkustundum eftír að ránið var framið og erum sáttir við það. Við fyrstu athugun er útlit fyrir að ránið hafi verið vanhugsað og illa skipulagt en yfirheyrslur eiga eftír að færa okkur öll smáatriðin," segir Ómar. færðir á lögreglustöð. Ræningjar í neyslu „Að sjálfsögðu er okkur öllum brugðið því mennimir gistu hér hjá okkur. Við erum svo sem vön að hjálpa alls konar fólki en ég hef lieyrt það á mínu fólki að því er brugðið eftir atburðina í morg- un. Nú bíður það lögreglunnar að leysa þetta mál," segir Aslaug Langgárd, gistihússtjóri Gisti- heimilis Hjálpræðishersins. Aðspurð vill hún ekki gefa upplýsingar um hversu lengi mennirnir hafa leigt herbergi á gistiheimilinu en heimildir D V myndir Siqurdui Qpnuni afluf kl. DV herma að það hafi verið um nokkurt skeið. Alls voru þeir 4 sem leigðu herbergið saman og þrír þeirra hafa verið handteknir. Fjórða mannsins er leitað en lög- regla hefur fullvissu um hver við- komandi er enda eru þeir allir á skrá hjá lögreglunni. Samkvæmt heimildum DV er útlit fyrir að ræningjarnir hafi verið í eiturlyfjaneyslu og lýsing lögreglunnar á ræningjanum bar þess merki þar sem ræningjan- um var lýst sem ungum fölleitum karlmanni. Möguleg neysla ræn- ingjanna gæti verið skýring þess hversu illa skipulagt ránið var og hversu vanhugsaður flóttinn var. Ógnandi tilburðir Már Másson, forstöðumaður upplýsingasviðs Glimis, segir starfsfólkinu eðlilega hafa verið mjög brugðið eftír ránið. Hann segir neyðaráætlun bankans hafa virkað í þessu tilviki enda hafi hún verið æfð í útibúinu nýlega. „Rétt eftir opnun réðst viðkomandi inn í bankann með öxina. Hann veittist að gjaldkerum og krafði þá um peninga. Við fengum strax upplýsingarúreftírlitsmyndavélum sem afhentar voru lögreglunni sem rannsakar málið," segir Már. „Það er skýr stefna hjá okkur að gefa ekki upp fjárhæðir. Við leggj- um alla áhe’rslu á að hlúa að fólk- inu okkar eftir svona atburð, það er það sem skiþtir mestu máli. Starfs- fólkið stóð sig gríðarlega vel því ræninginn hafði ógnandi tilburði uppi og eðlilega var því brugð- ið. Hann var vopnaður öxi og að standa frammi fýrir slíkum aðila er gríðarlega óþægileg upplifun." Bankinn rændur Stuttu eftii opnun Glitnls i Lækiargótu vai bankmn rændur af ungum folleitum karlmanni vopnuðum oxi Starfsmenn bankans brugðust við samkvæmt neyðaráætlun og fengu afallahjálp að rám loknu. Fljótur að hiaupa Jóhann Jónmundsson, flokks- stjóri hjá Reykjavíkurborg, mættí axarræningjanum á leið út úr bank- anum. Honum var ekld bmgðið því hann segist öllu vanur. „Ég hef starf- að sem dyravörður í áratugi og hef því upplifað margt. Ég er búinn að gefa lögreglunni lýsingu á mann- inum og staðfesti lxka hjá þeim að maðurinn á myndinni sé hinn réttí. Ég sá myndirnar sem löggan var með og þær vom mjög skýrar. Þar sést ræninginn með öxina á Ioftí og heldur á ránsfegnum," segir Jóhann. „Mér fannst lögreglan vera lengi á staðinn en það var líklegá allt í panikk í bankanum. Ræninginn var mjög fölur í útlití og ég geri ráð fyr- ir því að hann sé í einhverri neyslu. Ég mættí honum hlaupandi á leið- inni út og hefði ég áttað mig á að- stæðum hefði ég farið á eftir honum. Þrátt fýrir öxina hefði ég alveg treyst mér í það."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.