Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Blaðsíða 17
PV Sport ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 17 TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON skrifar frá Þrándheimi: tOtrfas@dv.is (i Það voru óvænt úrslit í undanúrslit- um Lýsingarbikarkeppni karla í körfu- bolta á sunnudagskvöldið var. Næst- neðsta lið Iceland Express-deildar karla, Fjölnir, gerði sér þá lítið fyrir og sigraði Skallagrím, í Fjósinu í Borg- amesi, 85-83. Með því komu Grafar- vogspiltar í veg fyrir vesturlandsslag Snæfells og Skallagríms í úrslitum en Snæfell hafði fyrr tryggt sér farseðil- inn í úrslitaleikinn. Pienaar kemur meiddurtil baka Steven Pienaar sem er í láni hjá Everton frá Dortmund í Þýskalandi meiddist á ökkla í Afríkukeppninni og verður frá keppni næstu þrjárvikurnar. Pienaar lék með Suður-Afríku sem stóð sig ekki vel og komst ekki upp úrsínum riðli. Pienaar hefur leikið vel með Everton það sem af er leiktíðar og Ijóst er að meiðslin setja enn meira strik í reikninginn hjá David Moyes, stjóra liðsins, sem líkt og nokkrir aðrir í deildinni bíður [ ofvæni eftir að Afríkukeppninni Ijúki. Nígería féll úr keppni (fyrradag og mun Moyes því endurheimta Joseph Yobo og Yakubu. Ekki veitiraf þarsem nokkuð er um meiðsli (leikmanna- hópi liðsins. Manchester United á eftir Bosingwa Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester United, er hrifinn af Jose Bosingwa varnarmanni Porto.Talið er að hann ætli að reyna að fá leikmanninn í sumarþó forráðamenn Porto ætliað gera allt sem í sínu valdi stendurtil þess að halda kappanum. Verðið á Bosingwa erum 15 milljónir punda. Fleiri liö hafa áhuga á hinum 25 ára leikmanni en Tottenham og Aston Villa hættu við að kaupa hann þar sem leikmaöurinn þótti of dýr. „Að vera með liö eins og Manchester United á höttunum eftir sér er mikill heiður. En þar til kemur að lokum leiktíðarinnar ætla ég að einbeita mér að því að spila vel með Porto," segir Bosingwa. Boswinga erenn einn Portúgalinn sem Alex Ferguson sýniráhuga. VIII okki fara á lánl Andreas Isaksson, markvörður Manchester City, er orðinn þreyttur á bekkjarsetunni en Joe Hart hefur yfirtekið byrjunarliðs- stöðuna. Isaksson vill fara frá liðinu en segirað lán komi ekki til greina. Vitað er af áhuga Galatasaray á kappanum og Svíinn vill fara þangað fyrir fullt og allt.„Ég vil vera keyptur af félagi ef ég á að fara á annað borð. Ég hef engan áhuga á þv( að vera lánaður til annars félags. Mér Köur vel að hafa tekið þessa ákvörðun og núna ætla ég að gera mitt besta til þess að standa mig með varaliðinu og bíða og sjá hvað framtíðin ber (skauti sér," segir Isaksson. Sven-Goran Eriksson tilkynnti Isaksson og Casper Schmichael aö hann ætlaði að hafa Joe Hart sem aðalmarkvörö og hann hefur staðið sig vel það sem af er leikttðar. Redknapp óttaðist Grant Harry Redknapp, framkvæmdastjóri Portsmouth, segist hafa taliö Avram Grant ógna starfi sínu þegar hann var ráðinn sem tæknilegur ráðgjafi hjá Portsmouth í fyrra. Redknapp segir hins vegar nú að hann hafi misreiknað stöðuna og Grant hafi ekki verið slæmur ráðgjafi.„Ég þekkti hann ekki þegar hann kom fyrst. Mér fannst hann óþarfur og náði ekki að bjóða hann velkominn. Hann er góður náungi og hann hefur gert mjög vel síðan hann tók við af Mourinho. Þegar þeir fá Terry, Lampard og Essien til baka," segir Redknapp. „Þetta gekk svo langt aö ég íhugaði að segja af mér stöðu minni sem framkvæmdastjóri," segir Redknapp. Bárður Eyþórsson, þjálfari Fjölnis, stýröi sínum mönnum til sigurs í undanúrslitum Lýsingarbikarkeppni karla i körfubolta á sunnudagskvöldið var. Fjölnir var tólf stigum undir fyrir síðasta leikhlutann en náði að vinna sigur og mætir Snæfelli í úrslitaleik. Bárður hefur áður þjálfað Snæfell og fór með það í úrslitaleikinn árið 2003. Atli Jóhannsson var einn feitasti bitinn á leikmannamarkaðinum fyr- ir síðasta tímabil í fótboltanum. Eyja- maðurinn knái sem hafði borið iBV- liðið á herðum sér árið áður endaði hjá KR þar sem var búist við að hann myndi springa út sem einn besti leik- maður deildarinnar. Atli lenti í erfið- um meiðslum og spilaði lítið á síðasta tímabili. Hann hefur nú þrálátt verið orðaður frá KR en segist ekkert vera að hugsa sér til hreyfings. „Ég er ekkert að h'ta í kringum mig og skoða önnur lið. Heldur hef ég ekki heyrt af neinum liðum sem eru að spá í mig enda ætla ég mér að vera áfram hjá KR," sagði Atli við DV í gær. „Ég er búinn að vera meiddur síðan í ágúst í fyrra og hef ekkert spilað fótbolta síð- an í leiknum gegn FH í Kaplakrika. Þess vegna hef ég nú svona lítið sést undanfarið." Ekki svo mikil dramatík Skallagrímur var tólf stigum yflr fyrir síðasta fjórðunginn en Fjölnir náði samt að koma til baka og mik- ið hefur verið talað um magnaða endurkomu Fjölnismanna. Ekki al- veg svo mögnuð en góð engu að síður sagði kátur Bárður Eyþórsson, þjálf- ari Fjölnis, þegar DV talaði við hann ígær. „Ég er búinn að horfa á leikinn aft- ur til að átta mig almennilega á hvað gerðist og við erum búnir að jafna leikinn þegar fimm mínútur eru eft- ir. Skallagrímur er tólf stigum yflr við upphaf fjórða leikhluta en við erum búnir að jafna í 78-78 þegar nákvæm- lega 4.54 eru eftir af Ieiknum. Þetta var því ekki alveg jafnsvakaleg end- urkoma í lokin eins og menn eru að tala um. Dugnaðurinn ög viljinn var samt til fyrirmyndar hjáliðinu þó þetta hafi kannski ekki verið besti leikur sem við höftim spilað. Varnarleikurinn sem við spiluðum í fjórða leikhluta var samt það besta sem við höfum sýnt í vetur. Það var mun meira jafnvægi en í öðru sem við höfum verið að gera það sem af er vetri.Mér fannst all- ir hafa trú á verkefninu og hvort sem menn trúa því eða ekki vissi ég allan tímann að við myndum vinna þenn- an leik. Sérstaklega í lokin þegar við vorum búnir að minnka muninn fyrst í fjögur stig og svo sex vissi ég að við myndum ldára þetta." Fjölnir hefur verið í vandamálum með lið sitt vegna útlendinga sem ekki hafa staðið sig og þá hafa lykil- menn verið meiddir. Koma Seans Kittner virðist hafa gert liðinu gott og þá spilaði nýr Kani með Fjölni í leikn- um. „Vonandi getur þetta orðið vend- ipunktur fyrir okkur. Við erum búnir að vera að leita að stórum manni til að fá betra jafnvægi í okkar leik og það virðist vera að koma með Sean. Hinn stóri maðurinn okkar, Kiddi íóhanns, er búinn að vera meiddur ásamt fleiri tyldlmönnum. Nýi maður- inn kom líka ágætlega út. Hann var nú ekki alltaf með á nótunum í sókn- inni en hann náði nú bara einni æf- ingu með okkur fyrir leik. Varnarlega séð var hann mjög góður og á klárlega eftir að hjálpa okkur mikið þar. Það er vonandi að þetta sé það sem koma skal og gefi okkur meira sjálfstraust fyrir lokabaráttuna í deildinni." Þekkir vel til fyrir vestan Fjölnir mætir Snæfelli í bikarúr- slitaleiknum en Bárður er ekki alls ókunnugur fyrir vestan. Síðast þegar Báður fór í bikarúrslitaleik var hann þjálfari Snæfells þegar það tapaði fyr- ir Njarðvík 2003. Hann talar vel um Snæfell og viðurkennir að það verði sérstakt að mæta sínu gamla liði. „Það þarf ekki nema að horfa á lið- in sem spila til að sjá hvort er sigur- stranglegra. Snæfell hefur mann sem heitir Hynur Bæringsson sem ég vil meina að hafi kanagildi í vetur og rúmlega það. Eins og hann er búinn að spila eftír áramót er hann klárlega yfirburðamaður í þessari deild og við verðum að stöðva hann. Hann er nú ekki bara einn því Snæ- fell hefur frábæra menn eins og Sig- urð Þorvaldsson, Magna Hafsteins- son og Jón Ólafsson. Þá er Serbinn þeirra, Slobodan, virkilega öflugur og ekki má gleyma Justin Shouse sem mér finnst alveg frábær leikmaður. Þetta er enginn smá hópur sem þetta lið hefur yfir að ráða. Þetta verður vissulega sérstakt að mæta sínu gamla liði og að sjá alla þessa Vestfirðinga sem munu örugg- lega koma í Höllina að styðja sína menn. Ég hef trú á því að Hólmaram- ir flykkist á leikinn og Grafarvogsbú- ar líka. Höllin verður þétt setin," sagði Bárður Eyþórsson að lokum. Atli gh'mir við meiðsli í báðum mjöðmum og hefur verið í aðgerð vegna þeirra. „Ég er nýkominn úr aðgerð á annari mjöðminni og er að fara í aðgerð á hinni á miðvikudaginn. Þannig að ég er ekkert að fara að spila fótbolta á næstunni. Þessi meiðsli eru sem betur fer ekki alvarleg en það tekur sinn tíma að jafna sig og ná sér aðfullu." Þó Atli hafi lítið spilað síðasta sumar segist hann hvergi banginn og ætli sér að vera áfram í Frostaskjól- inu. I fyrra spilaði Atli aðeins níu leiki í deildinni, þar af nokkra sem vinstri bakvörður en það er ekld sú staða sem hann er vanur að spila. Frammistaða hans var ekki í líkingu við það sem áður hafði sést af honum en meiðslin spiluðu þar stóra rullu. Hann finnur samt fyrir stuðningi í Vesturbænum. „Ég finn fyrir miklum stuðningi hjá ölhim í KR. Bæðir stjómarmönn- um sem og stuðningsmönnum. Ég er búinn að tala við Loga þjálfara og hann veit hvemig staðan á mér er og það vita stjómarmennimir líka. Því er ég bjartur á framhaldið og ætla mér að vinna mig úr meiðslunum og mér í stand og inn á völlinn sem fyrst. Það kemur ekkert annað til greina en að spila með KR í sumar," sagði Atli ákveðinn að lokum. tomas@dv.is Atli Jóhannsson ætlar sér að vera hjá KR í sumar: ÚREINNIAÐGERÐÍAÐRA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.