Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV Góðtemplarar gefa milljónir Góðtemplarareglan á Akur- eyri gaf í gær Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri fimmtíu millj- ónir króna. Peningarnir verða settir í sjóð sem sérstaklega er ætlaður til kaupa á tækjum til greiningar á hjartasjúkdómum. Þetta er stærsta gjöf sem Fjórð- ungssjúkrahúsið hefur fengið. „Gjöf okkar til Sjúkrahússins á Akureyri fylgir sú ósk að hún komi að sem bestum notum fyrir fólkið sem þangað leitar," segir Arni ValurViggósson, stjórn- arformaður Góðtemplararegl- unnar. Flestir sækja í viðskiptalögfræði Fjörutíu nemendur útskrif- ast frá Háskólanum á Bifröst næsta laugardag. Flestir nemend- anna útskrifast með BS-gráðu í viðskiptalögfræði, flmmtán alls. Næstflestir útskrifast með gráðu í viðskiptaffæði. Aðeins fjórir nem- endur útskrifast ffá félagsvísinda- deild. Nemendur við Háskólann á Bifröst eru nú 1.100 talsins og að undanfömu hefur verið bætt við námsbrautir skólans. Nú síðast hófst kennsla í stjórnun heilbrigð- isþjónustu og næsta haust hefst kennsla í viðskiptaffæði til BS- prófs. Breiðholtshátíð fyrir aldraða * Menningarhátíð eldri borg- ara í Breiðholti hefst á mið- vikudag og stendur til sunnu- dags. Tilgangur hátíðarinnar, sem gengur undir nafninu Breiðholtshátíð 2008, er að vekja athygli á menningar- og félagsstarfi í Breiðholtinu og gefa eldri borgurum færi á að koma ffam eða njóta við- burðanna. Á dagskrá menningarhá- tíðarinnar verða meðal annars sundleikfimi, pottapólitík og stafganga. Eftir hádegi á mið- vikudag hyggjast fimm til sex hundruð eldri borgara víðs vegar að að taka þátt í leikja- dagskrá í Austurbergi. Skriðan af stað „Um leið og Sjálfstæðisflokk- urinn og borgarstjórinn opnuðu veskið á Laugaveginum fór skriðan af stað og nú sér ekki fyrir endann á því hvað þessi meirihluti kemur til með að kosta borgarbúa." segir Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins, sem er efins um ágæti þess að borgin hafi keypt húsin við Laugaveg 4 og 6 fyrir tæpar sex hundruð milljónir. Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, segir að borgaryfirvöld ætli nú í gagngera endurskoðun á þeim málum sem tengjast Laugaveginum. Ellilífeyrisþeginn Halldór Aðalsteinsson lenti í óskemmtilegri lífsreynslu þegar ungur maður réðst á hann um hábjartan dag á Laugaveginum. Árásin var með öllu tilefnis- laus. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segir það undantekningartilfelli að ráðist sé á fólk með þessum hætti um miðjan dag. Langi bar Talið er að maðurinn hafi verið að koma út af Langa bar þegar hann réðst á Halldór að tilefnislausu. „Maður getur bara ekki skilið þetta," segir ellilífeyrisþeginn Halldór Að- alsteinsson en ungur maður á milli tvítugs og þrítugs réðst á hann á Laugaveginum um hábjartan dag. Ungi maðurinn veittist að Halldóri og sparkaði ítrekað í hann. Sjálfur er Halldór á níræðisaldri og er brugðið eftir árásina. Hann marðist nokkuð við aðför mannsins en hann réðst á hann að ástæðulausu. Engin orða- skipti áttu sér stað áður en maðurinn veittist að Halldóri. Fjöldi vitna var að atburðinum en lögregla og sjúkrabíll voru köiluð á svæðið. Árásarmaður- inn er ófundinn. Ekki eitt orð Það var á þriðja tímanum á þriðju- degi í byrjun janúar sem ungi maður- inn réðst fyrirvaralaust á Halldór fyr- ir utan herrafataverslun Guðsteins á Laugaveginum. Halldórvaráleiðinni í búðina þegar hann mætti mannin- um unga. Talið er að hann hafi verið að koma út af bar þar við hliðina á. „Hann sagði ekki eitt einasta orð, heldur réðst bara á mig," segir Hall- dór sem er að vonum brugðið. Mað- urinn sparkaði ítrekað í líkama Hall- dórs. Árásin stóð stutt yfir. Þó nokkur vimi horfðu furðu lostin á árás unga mannsins. Furðu lostin vitni „Lögreglan og sjúkrabíll komu á svæðið í kjölfarið en þá var maður- inn flúinn," seg- ir Halldór sem slapp vel frá árásinni. Hann segist ekki hafa brotið nein bein en hafi þó fund- ið nokkuð til í maganum Halldór Aöalsteinsson Segist fílhraustur og eiga góö tuttugu ár eftir, en er þó brugðið eftir fólskulega líkamsárás. í kjölfarið. Sá sársauki lýsir sér sem stingur. Halldóri þótti eldd ástæða til þess að leita sér aðhlynningar á spít- ala enda fílhraustur að eigin sögn. Sjálfum þykir Halldóri lán í óláni að árásarmaðurinn skuli hafa ver- ið í strigaskóm en ekki hörðum, þá hefði hann sennilega slasast töluvert meira. Eftir að maðurinn hafði lokið sér af hljóp hann á brott og eftir sám furðu lostin vimi sem skildu ekki hvað manninum gekk til. Hryllileg lífsreynsla „Þetta var hryllingur," segir Halldór um árás- ina en sjálfur ætl- aði hann í Guðstein að kaupa sér flík. Hann segir að vitn- in að árásinni hafi farið alveg í kerfi enda ekki á hverjum degi sem ráðist er á aldraðan mann á Laugaveginum um miðjan dag. Aðspurður hvort Halldór gruni hvað manninum hafi gengið til segist hann telja að maðurinn ungi eigi við vímuefiiavandamál að stríða. Halldór segir ástandið óhugnanlegt í miðbænum þegar enginn virðist vera óhulmr. Spurður um heilsufar segist Hall- dór vera filhraustur: „Ég á góð mt- tugu ár eftir," segir hann að lokum. Árásarmanns leitað „Þetta er mjög sjaldgæft," seg- ir Friðrik Smári Björgvinsson, yfir- lögregluþjónn á höfuðborgarsvæð- inu. Lögreglan mætti á svæðið eftir árásina og tók skýrslu af Halldóri. Lýsingm var ekki góð enda bar at- vikið snöggt að og endaði svo skyndi- lega. Maðurinn var á milli tvímgs og þrítugs og var dökkklæddur. Hann er ekki fundinn en lögreglan leitar hans. Að sögn Friðriks er meira um lík- amsárásir á kvöldin og um helgar. Þetta mál heyri til undantekninga. Stjórnarandstæðingar sóttu að forsætisráðherra á Alþingi: Felursiq bakvið dollarann Valgerður Sverrisdóttir, vara- formaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, sak- aði Geir H. Haarde forsætisráðherra um að fela sig á bak við dollarann þegar rætt var um framtíð krónunn- ar á Alþingi í gær. Geir hafði þá lagt áherslu á að stór hluti utanríkisvið- skipta íslendinga væri í dollurum. „Þetta er svar sem byggist á andúð Sjálfstæðisflokksins og hæstvirts forsætisráðherra á Evrópusambandinu, á evrunni og öllu því sem Evrópu tengist," sagði Valgerður. Það vildi Geir hins vegar ekki kannast við. „Það er alveg af og frá að ég hafi sérstaka andúð á Evrópusambandinu, Evrópu eða Evrópugjaldmiðlunum. Þvert á móti hef ég mikla samúð með þessu öllu saman," sagði Geir og vakti svarið kátínu í þingsal. Skömmu áður hafði Valgerður ekki fengið tækifæri til að klára mál sitt vegna háværra framm- íkalla úr þingsal. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður vinstri-grænna, hóf um- ræðuna um gjaldmiðilsmál í fýrir- spurnatíma við upphaf þingfundar í gær. Hann spurði hver stefna ríkis- stjórnarinnar í þessum málum væri. Hann vísaði til yfirlýsinga Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur utanríkis- ráðherra, Björgvins G. Sigurðsson- ar viðskiptaráðherra og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, mennta- málaráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem hann sagði öll hafa talað gegn krónunni. Aðra sagði hann hafa talað í önd- verða stefnu. „Ég gæti lengt þenn- an lista sem allur er til marks um að stjórnarliðar tala út og suður í þess- um málum." Forsætisráðherra gaf lítið fyr- ir spurningar og yfirlýsingar Stein- gríms. Geir sagði ekkert ákveðið í gjaldmiðilsmálum. „Það eru eng- ar breytingar í vændum í því efni og jafnvei þó menn vildu hugsa sér einhverjar breytingar í því efni tek- ur mörg ár að ná því fram og þetta veit hæstvirtur þingmaður jafn vel Og ég.“ brynjotfur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.