Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Blaðsíða 5
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 5 Margirtepptir vegna ófærðar „Það er dálítil bylrytja og dá- lítið kóf hérna en ekkert mjög dimmt," segir Stefán Stefánsson, bóndi í Breiðdal. Björgunarsveit- armenn á Austfjörðum stóðu í gær í ströngu við að aðstoða öku- menn á Fagradal en þar var fjöldi bíla í vandræðum sökum mikill- ar ófærðar og lítils skyggnis. Áætlað er að um tugi bifreiða hafi verið að ræða, sumum hafði verið ekið út af, aðrar voru fastar og enginn komst leiðar sinnar. Meðal annars voru snjóruðn- ingstæki föst í þvögunni. Björg- unarsveitin Ársól frá Reyðarfirði vann að því að losa bíla í allan gærmorgun. Teknir með dóp á Akureyri Lögreglan á Akureyri lagði hald á 25 grömm af amfetamíni í höfuðstað Norðurlands að- faranótt sunnudags. Bifreiðin var stöðvuð vegna þess að hún var vanbúin til vetraraksturs og einum farþega var ofaukið. f bifreiðinni reyndust vera einstaklingar sem þekktir eru af neyslu og meðferð fíkniefha. Við nánari athugun fundust um íjögur grömm af amfetamíni í hanskahólfi bifreiðarinnar og eitt gramm á einum farþegan- um. Allir voru handteknir og færðir á lögreglustöð og þegar upp var staðið höfðu fundist 25 grömm af hassi á mönnunum og heima hjá þeim. Fáir á hraðferð í norðurátt 22 ökumenn reyndust brot- legir í síðustu viku þegar hraða- myndavél á vegum lögreglunnar var sett á gatnamót Grensásveg- ar og Miklubrautar. Umrædd vakt stóð yfir frá miðvikudegi til föstudags, eða í 43 klukkustund- ir. Á tímabilinu fóru 6.146 bílar þessa akstursleið og því óku að- eins 0,3 prósent ökumanna of hratt. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 kílómetrar á klukkustund en hámarkshraði er 50. Tveir óku á yfir 70 en sá sem hraðast ók mældist á 84. Skilji túlkun frá annarri þjónustu Samkeppniseftirlitið hefur mælt fyrir um að Alþjóðahúsið ehf. skuli skilja fjárhagslega á milli annars vegar rekstrar túlka- og þýðingarþjónusm Aiþjóðahúss og hins vegar annarrar starfsemi þess. Samkvæmt áliti Samkeppn- iseftirlitsins kann það að raska samkeppni á almennum markaði túlka- og þýðingarþjónusm ef ekki er nægilega skilið á milli þeirrar starfsemi Alþjóðahúss sem nýtur opinberra fjárframlaga annars vegar og þjónusm Alþjóðahúss á almennum markaði hins vegar. Orö gegn oröi þegar karlmaöur var sýknaður af kæru stúlku um kynferðisbrot: Sýknaður af ákæru um káfog kossa ívinnunni Héraðsdómur Reykjaness sýkn- aði í síðustu viku karlmann af ákæru þess efnis að hafa brotið kynferðislega gegn 17 ára stúlku. Þau unnu saman í fiskvinnslufýrirtæki á Suðurnesjum. Stúlkan segir að maðurinn hafi leitað á sig þijá daga í röð í ágústmán- uði árið 2006. Var honum gefið að sök að hafa farið inn í geymsluherbergi þar sem stúlkan var að hafa fataskipti og ýtt henni í stól. Síðan hafi hann sest klofvega ofan á hana, káfað á brjóst- um hennar innanklæða og kysst hana á hálsinn og reynt að kyssa hana á munninn. Honum var einnig gefið að sök að hafa togað niður um hana bux- umar nokkrum dögum síðar og káfað á kynfærum hennar og bijóstum og þrýst lim sínum að fæti hennar. Þeim lið neitaði hann staðfastíega. Stúlkan átti kærasta á þeim tíma og maðurinn var giftur. Hann bar því við við yfirheyrslur að atvikin hefðu átt sér stað með samþykki stúlkunnar. Hann sagðist hafa áttað sig á því hvað væri að gerast og viljað stíta sambandi sínu við stúlkuna. Segir hann að hún hafi brugðist iila við og sent sér SMS um hvað gæti gerst ef hún segði einhverj- um frá því sem hefði gerst. f ljósi þess að engin vitni voru á staðnum stendur orð gegn orði og þóttí dómnum því rétt að sýkna mann- inn af ákærum um kynferðisbrot. Ml' SVÆÐI Mitt er þitt "Mitt svæði"er þitt einkasvæði hjá LÍN. Allir sem hafa aðgang að íslenskum heimabanka eða þjónustusíðu RSK geta eftir innskráningu þar komist með öruggum hætti inn á"Mitt svæði"hjá LfN. "Mitt svæði"erfyrirnámsmenn,greiðendurnámslána og ábyrgðarmenn þeirra. Samtals má ætla að um 92.000 manns eigi erindi inn á einkasvæði sitt hjá LÍN. Nýjasta þjónustan er fyrir greiðendur námslána. Á"Mínu svæði"geta þeir nú afþakkað greiðsluseðla og þar með fengið seðilgjöld sín felld niður að fullu. LÍN hvetur viðskiptavini sína til að kynna sér upplýsingar og möguleikana á"Mínu svæði"hjá sjóðnum. Nánari umfjöllun er á www.lin.is. LIN Lánasjóöur íslenskra námsmanna Borgartúni 21 Reykjavík www.lin.is lin@lin.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.