Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Side 7
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008 7
„Égmætti honum hlaup
inni út og hefðiég átta*
stæðum hefði ég farið <
um. Þrátt fyriröxina he\
treyst mér í þa(
Litla-Hraun Tvímennt er í þremur klefum á Litla-Hrauni.
Nú er þröng á þingi á Litla-Hrauni:
„Það er tvímennt í þremur klef-
um á Litla-Hrauni," segir Margrét
Frímannsdóttir, forstöðumaður
fangelsisins á Litla-Hrauni. Af-
staða, sem er félag fanga, hefur lýst
yfir áhyggjum sínum af ástandinu í
fangelsismálum á íslandi.
I ályktun sem þeir birtu á
heimasíðu sinni kemur fram að
til séu dæmi þess að fleiri en einn
fangi þurfi að vera í hverjum klefa
á Litla-Hrauni. Þar segir að slík
vistun fanga bjóði hættunni heim.
Það geti meðal annars leitt til
kynferðislegs ofbeldis. „Hér er um
mikla aðför að ræða. Eineltisáætlun
Fangelsismálastofnunar frá árinu
2004 er algjörlega virt að vettugi,
sem að auki skapar mun erfiðari
starfsgrxmdvöll fýrir þá sem vinna
í fangelsum landsins," segir á vef
Afstöðu.
Margrét segir að ástandið hafi
ekki verið viðvarandi í langan
tíma. „Þetta hefur gerst áður og
er þekkt á Skólavörðustíg. Þetta er
tímabundin ákvörðun vegna þess
að það þarf að leysa ákveðinn
vanda sem er til staðar," segir Mar-
grét. Hún bendir á að það sé al-
þekkt að fangar séu vistaðir sam-
an í fangelsinu á Skólavörðustíg
til skamms tíma þar sem fá rými
eru. Það hafi hins vegar ekki gerst
í fleiri ár að fangar þurfi að tví-
menna í fangelsinu á Litla-Hrauni
og segir hún að ástandið hafi verið
viðvarandi til skamms tíma. Rætt
hefur verið um nýtt fangelsi á höf-
uðborgarsvæðinu og eru til áætl-
anir þess efnis að byggja nýtt fang-
elsi á Hólmsheiði.
Aðspurð hvernig fangar hafi
tekið því að vera tveir saman
í klefa segir Margrét að engin
vandamál hafi skapast. „Það hafa
engin vandamál skapast vegna
þessa. Það er kannski ekki síst
vegna þess að sérfræðingar meta
þessa einstaklinga og við reynum
að velja þá út frá því. Þetta getur
alltaf gerst og það er vonandi að
þetta sé tímabundið. Þetta er erfitt
en við reynum að gera þetta eins
vel og hægt er,“ segir hún.
einar@dv.is
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
FOSFOSER
MEMORY
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
Ránsvopnið Grunur leikur á að
ræningjarnir hafi keypt ránsvopnið
skommu fyrir ránið í verslun Byko
við Hringbraut. Oxin er af gerðinni
Hurricaneog kostar 1.272 krónur.
Minnistöflur
Birkiaska
Jóhann Jónmundsson Mætti
ræningjanum í dyrunum og segist
ekki hafa hikað við að elta hann hefði
hann áttað sig fyrr á atburðarásinni.
www.birkiaska.is
-..^.urt iT-