Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008
Sport DV
Erfitt (byrjun
Juande Ramos, stjóri Tottenham, hefur
viðurkennt að byijunin hjá liðinu hafi
reynt á þolrif hans. Hann er hins vegar
ánægður með hugsunarhátt
leikmanna.
Ramos hefur
verið við störf
hjáTottenham (
100 daga en
hann kom frá
Sevilla.„Þetta var
flókin byrjun. Ég
vildi tjá mig á
ensku við
leikmenn og
útskýra mína hugmyndarffæði. Mín
hugmynd er að það sé aðeins liðið sem
geti gert leikmann góðan. Ég varð að
bæta sjálfsálit leikmanna því velgengni
liðsins getur aðeins leitt til góðs. Ef
leikmenn eru tilbúinir að færa fórnir
fyrir liðið munu góðir hlutir gerast. Allir
voru tilbúnir að hlusta og liðið hefur
sýnt af sér mikinn þokka."
(var (banni
fvar Ingimarsson, leikmaður Reading,
verður (leikbanni um næstu helgi
þegar liðið heimsækir Everton. (varfékk
gult spjald gegn
Bolton um
helgina þegar
liðið tapaði 2-0.
Heiðar
Helguson
skoraði annað
mark Bolton í
leiknum og
Grétar Rafn
fiskaði
vítaspyrnu. Þetta varfimmta gula
spjaldið sem fvar fékk á leiktíðinni og
því tekur hann út eins leiks bann.
Brynjar Bjöm Gunnarsson leikmaður
Reading, hefurgKmt við meiðsli og
hefurekki verið með (sföustu leikjum.
Meistararnir sektaðir
Englandsmeistarar Manchester United
þurfa aö greiöa 25.000 pund, rúmar 3,2
milljónir króna, í sekt þar sem sjö
leikmenn liðsins fengu að líta gula
spjaldiöíjafnteflisleikManchester
United gegnTottenham á laugardag-
inn. Edwin van der Sar, Cristiano
Ronaldo, Wes Brown, Nani, Nemanja
Vidic, Wayne Rooney og CariosTevez
voru allir áminntir (leiknum og þegar
lið fær meira en sex gul spjöld í leik er
það sektað af aganefnd enska
knattspyrnusambandsins. Næst þegar
félagið fær svo margar áminningar í
sama leiknum verðurfélagið að greiða
50.000 pund (sekt.
90 stig settu að duga
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri
Arsenal, telur aö lið sitt þurfi að ná 90
stigum til að eiga möguleika á að verða
meistari ívor.
Liðið erá
toppnum með
60 stig en 13
leikireru eftiraf
deildinni.„Við
höfum 60 stig
núna sem er
alveg magnað.
Ég veit ekki
hversu mörg
stig viö þurfum til að verða meistarar
en ég gæti vel trúað því að þyrftum aö
ná 90 stigum," segir Wenger á vef
félagsins (gær. Arsenal hefur aðeins
einu sinni náð 90 stigum en það var
tímabiliö 2003-04 þegar það tapaði
ekki leikallt tímabilið.
Maschorano skrifar undir
innan skamms
Javier Mascherano býst við því að
skrifa undir langtfmasamning við
Liverpool (næstu viku. Liverpool hefur
dregið lappirnar (að klára kaupin en
hann kostar rúmar 17 milljónir punda,
rúman tvo og hálfan milljarð króna.
Mascherano er enn (eigu Media Sports
Investments Ifkt og CarlosTevez.„Það
er ekkert frágengiö eins og er en ég
vonast til að vera hér áfram," sagði
hann (samtali við heimasíöu Liverpool.
„Ég hef beðið í langan tíma og ég get
beðið (eina viku (viöbót," bætti þessi
snjalli knattspymumaðurvið.
Leikur sem átti að vera formsatriði fyrir New England Patriots breyttist í martröð þeg-
ar liðið beið lægri hlut fyrir New York Giants í Superbowl 17-14. Tom Brady leikstjórn-
andi fór á taugum enda var vörn Giants ótrúleg góð.
BENEDIKT BOAS HINRIKSSON
bladamodur skrifar:
Eli Manning, leikstjómandi Giants,
var valinn MVP í Superbowl. Hann
leiddi sóknarleik liðsins af mikilli festu
og með gleði í hjarta. Tvisvar sinnum
kom Giants-liðið til baka í leiknum
og vann að lokum 17-14. Sending
Mannings á David Tyree seint í leikn-
um verður lengi í minnum höfð en
það var lykilsending í leiknum. „Það
er ekki hægt að skrifa betra handrit.
Við vorum á móti liði sem var ósigr-
að, besta lið deildarinnar og við unn-
um það. Við spiluðum bara betri leik
en þeir," sagði hetjan Manning.
Hann er annar Manning-bróðir-
inn sem vinnur Superbowl. Peyton
bróðir hans vann í fyrra með Indi-
anapolis Colts. Archie Manning, faðir
þeirra, var einnig leikstjórnandi í NFL
en hann vann aldrei sjálfan Super-
bowl-leikinn.
Eli Manning þóttí aldrei standa
sig neitt voðalega vel í NFL-deild-
inni þangað tíl í ár. Hann var í raun
Ralf Schumacher NFL-deildarinnar á
meðan Payton var Michael. Hins veg-
ar reis hann úr öskustónni í úrslita-
keppninni og var frábær fjóra leiki í
röð. Þá leiká sem skiptu mestu máli.
Ótrúlegasta sending allra tíma
Þegar New England var yfir og
skammt eftír af leiknum var Giants-
Ótrúlegt kerfi Eli Manning slapp á
undraverðan hátt við tæklingar New England.
liðið í sókn. Manning fékk boltann
en vasinn hélt ekki. Varnarlína New
England komst að honum, lumbraði
á honum og reif í treyjuna hans. Á
einhvern ótrúlegan hátt komst hann
í gegnum tæklingarnar og barsmíð-
arnar, negldi boltanum fram, beint
í hendur Tyrees sem greip hann.
„Maður reyndi bara að gera sig lít-
inn og vonaði að maður slyppi í gegn.
Það tókst og boltínn hélst í leik," sagði
Manning eftir leikinn þegar hann var
beðinn um að rifja kerfið upp. Peyt-
on var ekki síður hrifinn. „Þetta verð-
ur sýnt um langan tíma. Ætli þetta sé
ekki besta kerfi allra tíma og það var
gaman að vera á vellinum og verða
vimi að því. I raun er gaman að geta
sagt að maður sé skyldur leikstjóm-
andanum sem kláraði þetta kerfi."
Michael Strahan, varnarmaður
Giants, átti stórbrotínn leik í vörn-
inni og hann var ekki í nokkrum vafa
að litli bróðirinn væri loksins kom-
inn úr skugga stóra bróður. „Hann er
ekki lengur litli bróðirinn sem klikk-
ar á ögurstundu. Hann er ekki leng-
ur maðurinn sem kastar frá sér. Hann
er meistari." Manning kláraði 19 af 34
sendingum sínum í leiknum og kast-
aði fyrir tveimur snertímörkum. En
tölfræðin segir ekki alla söguna eins
og þeir sem hafa stundað íþróttir vita.
Manning leit vel út á vellinum, var ör-
uggur í sínum aðgerðum og allir bolt-
arnir sem hann kastaði litu fjandi vel
út. Á meðan var Tom Brady, sem hef-
ur leikið við hvem sinn fingur á tíma-
bilinu, í ruglinu og leit alls ekki vel
út á vellinum. Hann var stressaður,
sýndi engin svipbrigði og virtíst ekki
með sjálfúm sér. Kastaði oftar en ekki
slökum bolta og leit út sem maðurinn
sem var ofmetinn.
Eina skiptíð sem Brady leit vel út
var í síðasta kerfi New England. Það
munaði í raun aðeins þremur mínút-
um að New England-liðið færi í sögu-
bækurnar sem besta lið allra tíma.
Liðið vann alla leiki sína í deildinni
en fór á taugum þegar mest lá við.
Öll metín sem liðið setti á tímabilinu
skipta ekki neinu máli núna því það
em Eli Manning og félagar í New York
Giants sem hafa meistarahringa á
sínum fingrum.
Auglýsingarnar klikkuðu
Það sem hefur einkennt Super-
bowl eru auglýsingarnar í hálfleik.
Fimm sinnum niður
Tom Brady var fimm
sinnum skellt (jörðina.
Superbowl er trúlega eini atburður-
inn þar sem fólk vill í raun sjá auglýs-
ingar. 30 sekúndna pláss kostaði 2,7
milljónir dollara og leggja fýrirtæki
mikið á sig til að búa til flottustu aug-
lýsingamar. í ár var hins vegar eitt-
hvað bakslag því auglýsingarnar voru
gríðarlega slakar.
Hver man ekki eftír frasanum
„Whassssssssupp" sem Budweis-
er gerði ódauðlegan og auglýsingu
Michaels Jackson fyrir Pepsi. I ár var
boðið upp á LL Cool J dansa í ein-
hveiju skrýmum búningi við lagið
„What is Love," með Haddaway fyrir
Diet Pepsi. Will Ferrell var í augíýs-
ingu Bud Light sem þóttí ófyndin og
Naomi Campell dansaði við lag Mi-
chaels Jackson Thriller. Pepsi þóttí
hins vegar með bestu auglýsinguna
þar sem Justin Timberland fór á kost-
um.
Rakel Dögg Bragadóttir er enn aö ná sér eftir aðgerð á öxl:
SJÖVIKNABIÐ ERERFIÐBIÐ
Rakel Dögg Bragadóttír, fyrirliði
fslenska landsliðsins f handbolta
og fyrirliði Stjörnunnar, er ekki orð-
in heil heilsu sjö vikum eftír að hún
fór í aðgerð til að laga á sér öxlina.
Rakel hafði glímt við meiðslin í öxl-
inni lengi. Þetta voru álagsmeiðsli
og ekkert hægt að gera nema laga
þau með aðgerð. „Það sargaði allt-
af í sininni í öxlinni við hverja kast-
hreyfingu þannig að á endanum
hefði sinin slitnað eða orðið fyrir
miklum skaða. Þannig að það þurfti
að skafa úr beininu.
Aðgerðin gekk vel en það verða
einhverjar tafir á endurkomu minni.
Ég er svo hrikalega óþolinmóð og
vil helst stytta batatímann um helst
tvær vikur ef það er hægt. En það
eru komnar sjö vikur frá aðgerð og
það vantar aðeins upp á. En þetta er
að koma hægt og rólega."
Styttist í endurkomuna Endurkoma Rakelar hefur tafist aðeins.
Næstí leikur Stjörnunnar er gegn
Valskonum í Vodafone höllinni á
föstudaginn. „Ég stefni á að vera
með en það lítur ekkert vel út. En
það á allt eftir að koma í ljós. Ég er
í meðferð á hverjum degi og er að
reyna að koma öxlinni í gang. Von-
andi að einhverjir góðir hlutir gerist
í vikunni."
Rakel Dögg þekkir meiðsli því
miður vel. Hún hefur slitið kross-
band og var frá heilt tímabil vegna
þess. Einnig hefur hún farið í aðgerð
vegna beinhimnubólgu auk annarra
smámeiðsla. „Tímabilið í fyrra var
í raun fyrsta tímabilið þar sem ég
spilaði alla leikina á tímabilinu frá
því að ég var í fimmta flokki," sagði
Rakel Dögg hress og kát og eng-
an bilbug að finna á þessari miklu
íþróttamanneskju.
benni@dv.is