Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2008, Side 30
< 30 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 2008
Siðast en ekki slst OV
DAGBOK3NMIN
Fólkið mun
fagna mér
Sftjjera (/cufAo/e-
Af hverju eru 64% borg-
arbúa á móti mér sem
borgarstjóra? Hvaða
svívirðilegu árásir eru
þetta? Það var annars flott hjá
mér að segja á RÚV í gær að
borgarbúar ættu eftir að fagna
þegar verkin fara að tala. Verk
mín eru vanmetin í dag, því
þau felast í því að halda öllu
eins og það er. Það sést ekki
beinlínis að ég hafi gert neitt,
en ég gerði það samt. Ég kom
í veg fyrir að aðrir gerðu eitt-
hvað. í framtíðinni þegar allt
verður eins og það er í dag á
fólk eftir að þakka mér.
Sagan er skrifuð af sigurveg-
urum og ég er sigurvegari.
Með öðrum orðum skrifa ég
söguna. Og ég hef ákveðið að
endalok sögunnar verði núna.
Þess vegna verða húsin að vera
eins og þau eru. Götumynd-
in má ekki breytast! Við vitum
hvað gerist þegar breytingar
verða. Munum eftir Rúanda.
Og Hiroshima. Þar breyttist
allt.
Mér finnst flott að sjá flug-
vélarnar sveima yfir 19. aldar
götumyndinni. Eitthvað svo
áhrifaríkt. Það má ekki gerast
að ný hús verði byggð á flug-
vellinum. Hvar ættu flugvél-
arnar þá að lenda? Þetta er
barnaleg og ómálefnaleg um-
ræða. Ég hef ákveðið að eng-
inn megi taka ákvörðun um
flugvöllinn.
Ég er ánægður með að hafa
farið úr Sjálfstæðisflokknum
og komið mér upp mínum
eigin flokki. Það var ekkert
hlustað á mig áður. Fyrst ég
er formaður breytir engu þótt
flokkurinn á landsvísu hafni
mér og þótt aðrir sem eru með
mér í flokknum styðji mig ekki.
Því flokkurinn, það er bara ég.
Þótt fólk vilji mig ekki sem
borgarstjóra núna skiptir það
ekki öllu. Fólk veit ekki alltaf
hvað því er fyrir bestu. Það
mun læra að elska mig.
SEÐMEÐ AUGUM !
ADRENALÍNIÐVÓ
MEIR EN HRÆÐSLAN
Kristinn Olgeir ísakson
og Daníel Ægir Kristjánsson eltu uppi
tvo menn sem rændu bensínstöðina
Select í Árbænum nú fyrir helgi. Til
stóð að fá sér að borða en þeir
enduðu með því að ná ránsfengnum
af ræningjunum.
Hver er maðurinn?
„Kristinn Olgeir ísaksson, betur
þekktur sem Krissi."
Hvað gerir þú?
„Ég er nemandi í Verzlunarskóla
íslands."
Hver eru þín áhugamál?
„Að vera með vinum mínum og
spila handbolta með Aftureldingu."
Uppáhaldshljómsveitin þín?
„Kings of Leon í augnablikinu."
Hefurþú búiðerlendis?
„Já, ég bjó á Spáni um tíma en þar
vann ég sem þjónn á veitingastað."
Uppáhaldsstaður?
„Mér líður nú bara best í góðra
vina hópi hvar sem það er."
Uppáhaldshúsverkið þitt?
„Það sem ég kann best er
að raða hlutum og skipuleggja
herbergið mitt, enda með smá
fullkomnunaráráttu. Það er allavega
mjög fínt í fataskápnum mínum."
Besti matur?
„Nautalund á Argentína steik-
hús."
Af hverju ert þú stoltastur?
„Ég er mjög stoltur af því að vera
hættur að drekka."
Neyðarlegasta atvik sem þú
hefur lent í?
„Það hefur því miður gerst oftar
en einu sinni að ég vakni við hlið
fjölskyldu minnar uppi á spítala,
vitandi ekkert hvað gerðist. Það er
neyðarlegt og óheppilegt!"
Hvernig varð þér við að ganga
inn í vopnað rán?
„Þaðgafst einhvern veginn enginn
tími til að hugsa um tilfmningar,
þetta gerðist svo hratt."
Af hverju ákváðuð þið að elta
ræningana?
„Við gerðum bara það sem okkur
þótti rétt þessa stundina og ákváðum
að elta ræningjana."
Varst þú ekki hræddur?
„Nei, adrenalínið vó miklu meira
en hræðslan."
Hvað voru þeir með mikið þýfi?
„Þeir voru með fullan poka af
peningum, sígarettum, símainn-
eignum og fleiru. Þetta var allt í einni
hrúgu."
Hvað erfram undan?
„Það er leikur í kvöld í handboltan-
um síðan er nemó vikan fram undan í
f
MAÐUR
DAGSINS
skólanum, svo er sumarbústaðarferð
og fleira skemmtilegt á döfinni."
Hver er draumurinn?
„Flytja út, fara í háskólanám, spila
handbolta, eiga góða kærustu, eign-
ast fjölskyldu og stofna fyrirtæki eða
komast í góða vinnu."
SANDKORK
■ Miklir fótboltaáhugamenn
sjá um Poppland á Rás 2. Ágúst
Bogason er, líkt og faðir hans
Bogi Ágústsson, alræmdur KR-
ingur á meðan Óli Palii er dygg-
ur stuðn-
ingsmaður
Skagamanna
enda alinn
sjálfúr upp á
Skaganum.
Óli Palli hóf
Poppland í
gær á laginu
Skagamenn
skora mörkin með Bogomil
Font og bakvörðunum í tilefni
af því að Snorri Sturluson
íþróttafréttamaður er genginn
til liðs við RÚV Vafalítið fengur
fyrir Óla Palla að fá Skagamann
um borð enda varla líft innan
um alla KR-ingana.
■ Fjórða sýning á leikritinu
Halla og Kári sem nú er sýnt í
Hafnarfjarðarleikhúsinu var á
sunnudags-
kvöldið. Mik-
ið var um
merka menn
og konur á
sýningunni
en þar mátti
meðal ann-
ars sjá Felix
Bergsson,
Baldur Þórhallsson og börn
þeirra, rithöfundinn Einar Má
og tónlistarmanninn Örv-
ar Þóreyjarson Smárason úr
múm ásamt konu sinni, leik-
konunni Birgittu Birgisdóttur.
Mikið var skrafað í hléi, verkið
tekið út og sitt sýndist hverjum.
■ Það er gaman að fylgjast með
bloggi Egils Helgasonar en
hann er einn ttf þeim sem láta
fátt ffamhjá sér fara og liggja
ekki á skoðunum sínum. Egill
veltir nú fyrir sér mótsögnum
ríkisins varðandi tóbakslög
sem banna reykingamönn-
um að reykja á veitingastöð-
um. Ríkið selur tóbakið, leyfir
tóbaksreykingar á Alþingi en
setur almúganum engu að síð-
ur þessa kuldalegu reglu. Egill
bendir líka á fagurfræðilegan
punkt í þessu samhengi en hon-
um finnst fátt daprara og ljótara
en að sjá fólk reykjandi úti við
húsveggi.