Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR13. MARS 2008 Fréttir DV Ráðherra kom færandi hendi Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra hefur fært lögreglunni á Vestfjörðum að gjöf þrettán tetrastöðvar. Kemur gjöfin í kjöl- far heimsóknar hans til ísafjarð- ar í síðasta mánuði. Tetrasendar hafa verið settir upp víðsvegar á Vestfjörðum og kemur hver og einn lögreglumaður til með að hafa eina stöð til afnota. Fram kemur á vef lögreglunn- ar að mikill fengur sé í gjöfinni en hún skiptir bæði íbúa og lög- reglu svæðisins miklu máli. Færir lögreglan á Vestíjörðum Birni Bjarnasyni þakkir fyrir rausnar- lega gjöf. Fautarnir fundnir Lögreglan á Vestfjörðum hefur handtekið og yfirheyrt menn sem eru sakaðir um að hafa ráðist á mann í stiga- gangi í fjölbýlishúsi á Isa- firði að kvöldi miðvikudags í sfðustu viku. Mennirnir eru sakaðir um að hafa gengið nokkuð hraustlega í skrokk mannsins. Maðurinn slasaðist nokkuð í andliti og þurfti að kalla til sjúkrabíl sem færði hann á spítala. Samkvæmt lögreglunni á Vestfjörðum er málið í rannsókn og kæra liggur fyrir af hálfu fórna- lambsins. 29teknirvið hraðakstur Ómerkt lögreglubifreið búin myndavélabúnaði stóð 29 öku- menn að hraðakstri á Suðurbraut í Hafnarfirði í fyrradag. Að sögn lögreglu hefur reynslan sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagn- legar upplýsingar um ástand umferðamála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra sé þörf. Mælingarnar í gær voru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargöt- ur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Lögreglan fann fimmta þjófinn Fimmti maðurinn sem lög- reglan ieitaði vegna þjófnaðar á skotvopnum í Hafnarfirði fýrr í vikunni er nú fundinn. Hann gaf sig fram í fyrrakvöld eftir að lögreglan hafði náð tali af honum. Maðurinn, sem er rétt rúmlega tvítugur, viðurkenndi þátt sinn í málinu og einnig aðild sína að öðrum þjófnað- armálum á höfuborgarsvæð- inu að undanförnu. Mann- inum var sleppt að lokinni skýrslutöku og telst málið upplýst. Geir H. Haarde Neitar að svara gagnrýni Þorgríms Þráinssonar. Vítisengillinn Jón Trausti Lúthersson kom jakkafataklæddur í Héraösdóm Reykja- ness í gær þar sem réttað var yfir honum vegna tveggja líkamsárása. Hann neitar alfarið sök og segir raunverulegt fórnarlamb kvöldsins hafa verið þáverandi unn- ustu sína. Sjálfur er hann hættur að reykja og trúlofaður barnsmóður sinni. „Lögreglan kom á staðinn, tók skýrslu afhenni og myndir afáverkunum. Síðan var málið bara látið niður falla." VALUR GRETTISSON blaöomoöur skriíar: volurvwlv.ii „Ég lít á þetta sem persónulega að- för að mér," segir Vítisengillinn Jón Trausti Lúthersson, en hann er ákærður fyrir að hafa nefbrotið mann á skemmtistaðnum Hápunkti í sept- ember 2006. Hann er einnig ákærð- ur fyrir að hafa sama kvöld sparkað í Jóhönnu Ósk Gunnarsdóttur, með þeim afieiðingum að hún hlaut sár á höfði og rifbeinsbrotnaði. Sjálfur neitar Jón Trausti alfarið sök. Hann segir þáverandi unnustu sína hafa verið slegna með flösku í andlitið sama kvöld og vör henn- ar hafi klofnað. Hún kærði Jóhönnu fýrir verknaðinn en málið var látið niður falla. Nú er búið að kæra þá ákvörðun til ríkissalcsóknara. Snyrtilegur í dómsal Jón Trausti var snyrtilega klædd- ur þegar hann mætti fyrir Héraðs- dóm Reykjaness í gærmorgun. Hann var þá nýkominn frá Noregi en hann hefur trúlofast barnsmóð- ur sinni sem hann á tvö börn með. Hann neitaði að hann hefði ráðist á konuna og manninn á barnum í september árið 2006. Fyrir dómi sagði Jón Trausti að Jóhanna hefði slegið þáverandi unnustu hans með flösku í andlitið. Vörin á henni klofnaði og þurftu þau að leita að- hlynningar hjá heilsugæslunni á Suðurnesjum. Persónuleg aðför „Lögreglan kom á staðinn, tók skýrslu af henni og myndir af áverk- unum. Síðan var málið bara látið niður falla," segir Jón Trausti en eftir nokkra rannsókn ákvað fulltrúi lög- reglustjóra á Suðurnesjum að ekki yrði ákært í málinu. Sjálfur túlkar Jón Trausti þetta sem afleiðingu per- sónulegrar árásar á sig: „Þeir vilja bara negla mig," segir Jón Trausti. Akvörðun fulltrúans hefur verið kærð til ríkissaksóknara en niður- staða í því máli mun ekki liggja fyr- ir fyrr en eftir mánuð. I millitíðinni fellur dómur í máli Jóns Trausta, um hvort hann hafi í raun gerst sekur um að slá tvímenningana. Hættur að reykja „Maður er hættur að reykja," sagði Jón Trausti þegar blaðamað- ur spjallaði við hann fyrir utan hér- aðsdóm að málsmeðferð lokinni. Þá japlaði hann á nikótíntyggjói en sjálfur er hann nýtrúlofaður barns- móður sinni í Noregi. Þar býr hann auk þess sem hann kemur reglulega til íslands. Hann segir lífið gott í Nor- egi. Hann fái að vera með börnun- um sínum tveimur og segist vera í góðu yfirlæti. Hann hlær þegar hann bendir blaðamanni á viðtal sem tekið var við meint fórnarlamb hans, Jóhönnu Gunnarsdóttur, en tekið var sérstaklega fram að hún væri þriggja barna móðir sem byði Vítisenglinum byrginn. „Það hefði frekar átt að vera þriggja barna móðir sem býður tveggja barna föður byrginn," segir Jón Trausti og hlær. Aldrei handrukkað „Ég hef aldrei handrukkað," svarar Jón Trausti þegar hann spurður hvort þeir dagar séu að baki. Jón hefur margsinnis kom- ist í kast við lögin auk þess sem hann var handtekinn í Leifsstöð þegar hann ætlaði að taka á móti norskum Vítisenglum árið 2005. Þá var hann einnig dæmdur í fimm mánaða fangelsi síðasta haust fyrir aðild að líkamsárás nálægt 10-11 í miðborg Reykjavíkur. Þá var hann sviptur ökuréttindum fyr- ir að tika of hratt á forláta Har- leyDavid- son-mót- orhjóli. „Þeir vilja bara negla mig." JónTrausti Lúthersson Vítisengill íslands kom jakkafataklæddur i Héraösdóm og japlaöi á nikótíntyggjói. Guðlaugur Þór Þórðarson segir að heilsustefna ráðuneytisins verði kynnt fljótlega: Óþolinmæði er dyggð Geir H. Haarde forsætisráðherra neitar enn að svara gagnrýni Þor- gríms Þráinssonar, formanns fag- hóps um bætt heilbrigði þjóðarinnar. Hópurinn skilaði af sér skýrslu fyrir um 18 mánuðum. Hún inniheldur á fimmta tug tillagna um hvernig megi stuðla að bættu heilbrigði þjóðar- innar. Birkir Jón Jónsson, þingmað- ur Framsóknarflokksins, bar upp fyr- irspurn á Alþingi í febrúar þar sem hann krafði forsætisráðherra svara. Þorgrímur lét í kjölfarið óánægju sína með framkvæmdaleysi forsætis- ráðuneytisins í ljós í samtali við DV. Geir hefur ekki viljað tjá sig um málið en vísaði nú síðast á Guðlaug Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra. Guðlaugur Þór segir óþolinmæði dyggð þegar kemur að heilsu og for- varnarmálum. Þar þurfi að hratt og vel. „Það er jákvætt að fá hvatningu en því fer víðs fjarri að við höf- um ekkert unnið í þeim tillögum sem nefndin skilaði af sér. Frá því ég tók við höfum við verið að móta heilsustefhu og þar nýtast hug- myndir fag- hópsins vel. Einn liður í því er þátt- taka okkar í lífshlaupinu sem hleypt var af stokk- unum á dög- vinna unum. Við menntamálaráðherra höfum einnig hafið samstarf við fé- lög framhaldsskólanema vegna for- varnarmála. Það er margt í gangi og á allra næstu vikum verður haldinn opinn fundur þar sem þessi stefnu- mótun verður kynnt þjóðinni," segir Guðlaugur. Hann segir ábyrgðina liggja víðar en í heilbrigðis- ráðuneytinu. „Yfirvöld þurfa að skapa fólki þær aðstæður að það sé einfalt og auðvelt að velja heilsu- samlegan lífsstíl. Umræðan um heilsueflingu í þjóðfélaginu er mjög mik- Guðlaugur Þór Þórðarson Segir yfirvöld þurfi að auðvelda fólki að velja heilsusamlegan Iffsstíl. ilvæg en foreldrar og íþróttafélögin hafa einnig skyldum að gegna," segir ráðherrann. baldur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.