Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 13.MARS2008
Fréttir DV
FRÉTTIR
Réttaðyfir Rússa
Alexander Trofimov, rúss-
neskur auðkýfingur og við-
skiptajöfur, var færður fyrir rétt
í Kambódíu í gær. Hann var
handtekinn í október vegna
gruns um að hafa, í bænum Shi-
anoukville, beitt nítján stúlkur
kynferðislegu ofbeldi. Stúlk-
urnar voru á aldrinum ellefu til
nítján ára. Eitt fórnarlambanna,
fjórtán ára stúlka, sagði að Trof-
imov hefði í fjögur skipti neytt
hana til kynmaka. Að sögn lög-
reglunnar er þetta stærsta mál
sinnar tegundar í sögu landsins.
Alexander Trofimov er stórt
nafn í Shianoukville og fyr-
ir tveimur árum fékk fyrirtæki
hans leyfi til að byggja gríðar-
stórt hótel þar. Ef hann verður
fundinn sekur á hann yfir höfði
sér allt að tuttugu ára fangels-
isvist.
Uppgjafaher-
maðurdeyr
Síðasti eftirlifandi uppgjafa-
hermaður Frakka úr fyrri heims-
styrjöldinni lést í gær hundrað
og eins árs að aldri. Lazare Pont-
icelli kom frá Italíu, en Iaug til
um aldur sinn til að fá inngöngu
í Frönsku útlendingaherdeild-
ina árið 1914, þá sextán ára að
aldri. Hann ákvað að ílendast í
Frakklandi árið 1921. Það er ekki
nema handfylli hermanna úr
fyrri heimstyrjöldinn á lífi, þar
á meðal er breski flugmaðurinn
Henry Allingham og ungversk-
austurríski stórskotaliðsmaður-
inn Franz Kunstler.
í janúar lést síðasti eftirlif-
andi uppgjafahermaður Þjóð-
verja úr fyrri heimsstyrjöldinni.
0, %
/
f *
Lögreglustjóri
án stjörnu
Eliot Spitzer, ríkisstjóri New
York-ríkis, sagði af sér í gær.
Hann hafði verið undir miklum
þrýstingi eftir að tengsl hans við
vændishringinn Klúbb keisar-
anna urðu heyrinkunn. Eliot
Spitzer hafði á ferli sínum ávallt
sagt að fólk ætti að taka ábyrgð
á gerðum sínum og hann gerði
ekki minni kröfur til sjálf sín.
Spitzer naut mikillar virðing-
ar fyrir afstöðu sína gegn spill-
ingu og glæpum og fékk meðal
annars viðurnefnið Lögreglu-
stjórinn á Wall Street.
Afsögn Spitzers tekur gildi
á mánudaginn og mun David
Patterson taka við af honum.
Breskum stjórnvöldum stendur ekki á sama um hve mörg börn hverfa fyrirvaralaust frá
námi. Árlega hafa um þrjú hundruð manns samband við þau vegna hjónabands sem
stofnað var til með nauðung. Fórnarlömbin eru allt niður í ellefu ára aldur.
ÚR NÁMI í NAUÐUNG
Að meðaltali hverfa á þriðja hundr-
að stúlkna á ári úr skólum í bresku
borginni Bradford, eða skila sér ekki
til baka úr ferðalögum út fyrir land-
steinana. Bradford er ekkert eins-
dæmi, en í borginni er eitt stærsta
samfélag múslíma í Bretlandi og
rekja þeir að stærstum hluta rætur
sínar til Pakistans og Indlands.
Bresk stjórnvöld vita hvorki hvert
þessar stúlkur hafa farið né hvort þær
hafa komið til baka. Það sem aftur á
móti liggur ljóst fyrir er að þær hafa
ekki skilað sér í skólana og hafa af
þeim sökum verið teknar út af nem-
endaskrá. Yfirvöld hafa sterkan grun
um að þær stúlkur sem um ræðir séu
neyddar í hjónaband, en engar hald-
bærar tölur eru fyrirliggjandi um hve
margar hafa hlotið þau örlög.
Misvísandi tölur
Arið 2006 hurfu um tvö hundruð
og fimmtíu stúlkur af yfirborði jarð-
ar í Bradford, samkvæmt tölum frá
innanríkisráðuneytinu. Borgarráð
Bradford vefengir þessar tölur, en
þar á bæ er vitað um tvö hundruð
og fimm börn sem á síðasta ári voru
ekki í skóla á vegum borgarinnar. Þar
af voru ferðir eitt hundrað sjötíu og
tveggja raktar á annan áfangastað
eða vitneskja lá fyrir um skólagöngu.
Þrjátíu og þrjú börn allra þeirra átta-
tíu og níu þúsunda nemenda í Brad-
ford eru búin að vera utan nemenda-
skrár lengur en tvo mánuði, að sögn
borgarráðs Bradford.
Nauðungarhjónabandsdeild á
vegum innan- og utanríkisráðuneyt-
isins fær um fimm þúsund símtöl á
ári. Af þeim varða um þrjú hundr-
uð nauðungarhjónaband. Fimmt-
án prósent þeirra snerta drengi og
þrjátíu prósent börn allt frá ellefu ára
aldri.
Hugsanleg fórnarlömb
Jasvinder Sanghera sem stofnaði
Karma Nirvana, samtök sem berj-
ast gegn heimilisofbeldi, segir töl-
urnar frá Bradford áhyggjuefni. „Töl-
urnar frá Bradford valda sérstökum
áhyggjum, því ef svo margar stúlkur
eru í hættu í einni borg hve mörg eru
möguleg fómarlömb á landsvísu?"
sagði Sanghera, en hún var neydd í
hjónaband fjórtán ára að aldri.
Nazir Afzal, saksóknari krún-
unnar, sérhæfir sig í æruglæpum og
nauðungarhjónaböndum. Hann tel-
ur að það ætti að vekja yfirvöld til
'm.
*
f»t.
* *
,, Jf Hellti yfir sig eldfimum
vökva Margar ungar stúlkui
*‘v ' •* kjósa örþrifaráö frarn yfir
• ‘A. # nauðungarhjónaband.
Þegar hún var fímmt-
án ára varhún tekin úr
skóla í Manchester því
hún neitaði að giftast
frænda sínum í Pakistan.
umhugsunar þegar barn er tekið úr
skóla, og að meiri gaum ætti að gefa
hugsanlegum fórnarlömbum. Að
hans sögn er það teikn um að nauð-
ungarhjónaband sé í bígerð ef barn
er tekið snemma úr námi.
Erfitt um vik
Þeir sem fara fyrir í baráttunni
gegn nauðungarhjónaböndum eiga
ekki hægt um vik. I Bretíandi, líkt
og víða um lönd, fá þeir sem gagn-
rýna minnihlutahópa oftar en ekki á
sig stimpil kynþáttafordóma og em,
í þessu tilfelli, sakaðir um „íslams-
fælni".
Ann Cryer, þingmaður Verka-
mannaflokksins, er ein þeirra sem
Jasvinder Shangera Var neydd í
hjónaband fjórtán ára að aldri.
unnið hafa ötullega að þessum mál-
efnum í Keighly-hverfinu í Bradford,
en samfélag þess er mjög blandað.
Hún hefur verið sökuð um kynþátta-
fordóma og íslamsfælni. Cryer segir
að það sem standi lausn vandamáls-
ins helst fyrir þrifum sé að enginn
eigi hagsmuna að gæta með lausn
þess. „Foreldrar, skólar og samfélag-
ið vilja einfaldlega komast til botns í
því [vandamálinu]."
Haldiðfanginni
Shazia Qayum er ein þeirra
stúlkna sem lentu milli steins og
sleggju. Þegar hún var fimmtán ára
var hún tekin úr skóla í Manchest-
er því hún neitaði að giftast ffænda
sínum í Pakistan. Þrátt fyrir að henni
væri haldið í prísund á heimili for-
eldra sinna í á annað ár kom enginn
og spurði um hana. Hún var sann-
færð um að einhver frá skólanum
eða yfirvöldum kæmi til að athuga
með hana, en því fór fjarri.
Foreldrar hennar höfðu fengið
lækni til að skrifa vottorð fyrir hana
og þegar hún var sautján ára fór hún
með foreldrum sínum til Pakist-
an og var neydd í hjónaband. Þeg-
ar þau komu heim til Englands á ný
hafði Shazia samband við lögregl-
una og sagði sínar farir ekki sléttar.
Lögreglan kom og náði í hana, en
sagðist í raun lítið geta gert. „Ég bjó
á gistiheimili í sex mánuði. Útskúf-
uð af fjölskyldu minni og alein. Ég
hef aldrei verið eins átakanlega ein-
mana," sagði Shazia.
Hillary fékk óvæntan og jafnvel óæskilegan stuðning:
Viðkvæmt innlegg í baráttuna
Barack Obama og Hillary Clinton Getur brugðið til beggja vona í slag þeirra.
Barack Obama vann léttan sig-
ur í forkosningunum í Mississippi í
fyrradag og hnykkti á forskotinu sem
hann hefur á keppinaut sinn Hillary
Clinton. Sigur Obamas hafði eng-
in afgerandi áhrif, en undirstrikaði
engu að síður það fylgi sem hann á
að fagna í slagnum um forsetastól-
inn í Bandaríkjunum.
Obama hefur nú haft betur en
Hillary Clinton í tuttugu og sex fylkj-
um, en Clinton hefur sigrað í sex-
tán fylkjum. Obama er með rúm-
lega hundrað kjörmönnum fleiri en
Hillary, eða 1.596 kjörmenn á mótí
1.484.
Á sama tíma og Obama og Clin-
ton brýna hnífana getur repúblik-
aninn John McCain einbeitt sér að
hinni eiginlegu kosningabaráttu því
hann hefur þegar tryggt sér úmefn-
ingu flokks sfns til forsetaframboðs,
en enn getur ailt gerst hjá demókröt-
um.
f kjölfar sigurs Obamas í Missis-
sippi steig Geraldine Ferraro fram
fýrir skjöldu í viðtali. Ferraro er
smðningsmaður Hillary og kom í
viðtalinu inn á eitt viðkvæmasta efn-
ið í kosningabaráttunni; kynþæm.
f viðtalinu sagði hún að ef Barack
Obama væri hvímr maður væri hann
ekki kominn í þessa stöðu. Þess má
geta að Ferraro var varaforsetaefni
demókrata í forsetakosningunum
1984, fyrsta konan til að vera vara-
forsetaefni annars stóru flokkanna í
Bandaríkjunum.
Þessi ummæli Ferraro hafa ef-
laust verið bjarnargreiði því Hihary
Clinton sagðist harma þau og hún
væri ekki sammála þeim. Hvað sem
áliti Hillary Clinton líður eru um-
mæh Ferraro komin í loftið. Ger-
aldine neitaði að draga í land með
ummælin og sagðist vera fórnar-
lamb kynþáttafordóma. „Kynþátta-
fordómar virka á báða vegu. Ég held
að ég sitji undir ámæh af því að ég er
hvít," sagði Ferraro.