Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 13. MARS 2008
Sport PV
ÍÞRÓTTAMOLAR
HJÖRVAR HÆTTUR f BREIÐABLIKI?
Markvörðurinn, Hjörvar Hafliðason, er
hættur að mæta á æfingar hjá
Breiðabliki. Hjörvar
sem var
aðalmarkvörður
liðsinsítvöárreif
liðþófaíhnéífyrra
og fengu
Breiðabliksmenn
Dana að nafni
CasperJacobsen til
að verja mark
liðsins á meðan
Hjörvar var að ná sér. Casper lét síðan
ekki stöðuna af hendi og framlengdi
Breiðablik samninginn við Danann.
Hjörvar er að sögn manna (Kópavogi
hættur með Breiðabliki en þessi 27 ára
gamli markvörður hefur einnig leikið
með liðum KR og Val hér á landi.
Asamastað
(slenska landsliðið er áfram (89. sæti
heimslista alþjóða knattspyrnusam-
bandsins en liðið
stóð í stað á milli
lista. Engin
breyting er á toppi
listans þarsem
Argrentínumenn
eru enn efstir og
erkifjendur þeirra,
Brasilíumenn, í
öðru sæti. Efsta
Evrópuþjóðin eru
heimsmeistarar (tala sem sitja f þriðja
sæti en Spánverjar eru (því fjórða.
Mótherjar íslands (undanriðli
heimsmeistaramótsins sitja öll fyrir ofan
(sland. Holland er í 9. sæti, Skotland (14.,
Noregur (27. og Makedónía í 59. sæti.
BJARNIEKKIMEÐ GEGN FÆREYJUM
Miðjumaðurinn knái, Bjarni Guðjóns-
son, sem leikur með (A gat ekki gefið
kost á sér (landsliðshóp (slands sem
mætir Færeyjum í æfmgaleik á
sunnudaginn. Nánast á sama t(ma og
hópurinn vartilkynntur var Bjarni að
gangast undir aðgerð vegna kviðslits.
Bjarni lék alla leiki fslands á Möltumót-
inu (janúar og var fyrirliði (einum
leiknum. Hann þótti standa sig mjög vel
á mótinu en Bjarni hefur verið einn besti
leikmaður Landsbankadeildarinnar
undanfarin ár.
ÍDAG
Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeild-
in er skoðuð frá ýmsum óvæntum
hliðum. Leikmenn heimsóttir, gömlu
stjörnurnar leitaðar uppi og svip-
myndir af æðinu fyrir enska boltanum
um heim allan.
Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin
er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum.
Léikmenn heimsóttir, gömlu stjörnurnar
leitaðar uppi og svipmyndir af æðinu
fyrirenska boltanum um heim allan.
Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla
þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik
umferðarinnar eru sýnd frá öllum
mögulegum sjónarhornum. Viðbrögð
þjálfara, stuðningsmanna og
sérfræðinga.
Allar leiktíðir Úrvalsdeildarinnar
gerðar upp i hröðum og
skemmtilegum þætti.
Fimm nýliðar eru í hópi íslenska landsliðsins í knattspyrnu sem Ólafur Jóhannesson
landsliðsþjálfari valdi fyrir leikinn gegn Færeyjum á sunnudaginn. Allir leikmennirn-
ir nema einn i átján manna hópi leika með liðum hér heima. Fjórir reyndir menn að-
stoða Ólaf við að kortleggja andstæðingana í undankeppni heimsmeistaramótins.
FJÓRIR AÐSTOÐARMENN
TOMAS ÞÓR ÞORÐARSON
bladamadurskrifar: tomas@dv.is .ílk
Á blaðamannafundi í 1.600 milljóna
króna byggingunni, höfuðstöðvum
KSÍ, tilkynnti Ólafiir Jóhannesson
landsliðsþjálfari þá átján leikmenn
sem hann hafði valið til þátttöku í
landsleik gegn Færeyjum næstkom-
andi sunnudag. Allir leikmennirn-
ir nema einn, Aron Einar Gunnars-
son frá AZ Alkmaar í Hollandi, leika
með íslenskum félagsliðum. Einnig
var tilkynnt um breytingu í umgjörð
landsliðsins en Ólafur hefur fengið
til sín íjóra aðstoðarmenn sem sjá
um að fara yfir leiki andstæðinga ís-
lands fyrir undakeppni heimsmeist-
aramótið sem fram fer í Suður-Afríku
árið 2010.
Sóttist eftir leikmönnum
að utan
„Ég sóttist eftir nokkrum strákum
sem spila með erlendum félagslið-
um en fékk neitun hjá öllum félög-
unum nema einu. Aron Einar Gunn-
arsson verður með en hann er sá eini
sem ég fékk leyfi fyrir. Þetta sýnir
okkur enn fremur hvernig landslag-
ið er að breytast varðandi landsliðs-
mál. Bjarni Guðjónsson var sá eini
sem gat ekki gefið kost á sér vegna
meiðsla," sagði landsliðsþjálfarinn,
Ólafur Jóhannesson, á blaðamanna-
fundinum í gær.
Ólafi líst vel á verkefnið á sunnu-
daginn. „Ég hef sagt það að ég fagna
öllum landsleikjum og þetta verður
skemmtilegt verkefni. Það var úr nóg
af strákum að moða en þessir fimm ný-
liðar sem ég valdi hafa verið að standa
sig vel. Ég er búinn að vera duglegur
að fara á völlinn eins og ég hef nú alltaf
gert hvort sem er og einnig hef ég sótt
æfingar hjá liðunum. Hvort allir átján
fái að spila á sunnudaginn hef ég ekki
álcveðið," segir Ólafur en hópurinn tel-
ur fimm nýliða, þá Guðmann Þóris-
son úr Breiðablild, Guðmund Reyni
Gunnarsson úr KR, Hallgrím Jónasson
úr Keflavík, Heimi Einarsson úr fA og
Hjört Loga Valgarðsson úr FH.
Hinir fjóru fræknu
Ein jákvæðsta breyting seinni tíma
hjá landsliðinu var tilkynnt á fundin-
um í gær. Ólafur sóttist eftir og fékk
til sín fjóra reynda menn úr boltan-
um til að aðstoða sig við að kortleggja
andstæðinga íslands í undankeppn-
inni fyrir HM 2010. Willum Þór Þórs-
son, þjálfari Vals, mun fylgjast með liði
Hollands og Kristján Guðmundsson,
þjálfari Keflavíkur, mun kortleggja
Makedóna.
Þá mun Leifur Garðarsson, þjálf-
ari Fylkis, sjá um Skota og Rúnar
Kristinsson, yfirmaður knattspyrnu-
mála hjá KR, fylgist með Noregi.
„Þeir munu skila skýrslu til mín og
þá munum við horfa saman á mynd-
band af liðunum og kannski eina
góða mynd ef tími gefst til," sagði Ól-
afur hnyttinn á blaðamannafundin-
um.
Allt annað að vera á staðnum
Leifúr Garðarsson, þjálfari Fylk-
is, mun fylgjast með og sjá um að
kortleggja Skotland. „Mér finnst
mjög snjöll hugmynd að nýta krafta
annarra manna í að skoða liðin.
Það er náttúrlega ógerningur fýrir
landsliðsþjálfara að fylgjast vel með
hinum liðunum því ísland er nán-
ast alltaf að spila á sama tíma. Því
er mjög sniðugt að nýta fleiri í það
verkefni. Það er allt annað að vera
á staðnum að fylgjast með leikn-
um en að horfa einungis á upp-
tökur. Maður er kannski að horfa í
eitthvað allt annað en myndavélin
sýnir," sagði Leifur við DV um hug-
myndina.
„Ég var beðinn um að taka Skot-
land sem er fínt því ég hef fylgst vel
með skoskri knattspymu og er nú
með einn Skota í mínu liði. Skodand
leikur gegn Króatíu 26. mars þar sem
ég verð á staðnum. Annars er Skot-
land með mjög frambærilegt lið og
voru nálægt því að komast inn á loka-
keppni Evrópumótsins. Besti leik-
maður þeirra er fýrrverandi Everton-
maður, James McFadden, þannig ég
veit nú ekki hvort maður eigi að vera
hampa honum eitthvað lengur," segir
Leifur kátur.
HÓPURINN:
Markverðir:
Kjartan Sturluson, Val
Stefan Logi Magnússon, KR
Aðrir leikmenn:
Helgi Sigurðsson, Val
Tryggvi Guðmundsson, FH
Marel Baldvinsson, Breiðabliki
Baldur I. Aðalsteinsson, Val
Atli Sveinn Þórarinsson, Val
Birkir Már Sævarsson, Val
Bjami Ólafur Eiríksson, Val
Davíð ÞórViðarsson, FH
Jónas Guðni Sævarsson, KR
Pálmi Rafn F’álmason, Val
Aron Einar Gunnarsson, AZ Alkmaar
Guðmann Þórisson, Breiðabliki
Guðmundur R. Gunnarsson, KR
Hallgrímur Jónasson, Keflavík
HeimirEinarsson,IA
Hjörtur Logi Valgarðsson, FH
Hjörtur Logi Valgarðsson er einn af nýliöunum í landsliöinu:
ÆTLAÐIFYRST í U21LANDSLIÐIÐ
„Ég fékk að vita þetta í hádeginu í
dag [í gær] og það má segja að þetta hafi
komið mér í opna skjöldu en skemmtí-
legar ff éttír þó," sagði glaðbeittur Hjört-
ur Logi Valgarðsson, leikmaður FH,
þegar DV ræddi við hann um lands-
liðsvalið í gær. „Stefnan hjá mér hefur
alltaf verið að komast í landsliðið en ég
ætíaði nú fyrst að byrja á því að komast
í U21 landsliðið. Ég lít á þetta bara sem
bónus," bættí Hjörtur við en landsliðs-
þjálfarinn, Ólafur Jóhanneson, þjálfaði
HjörthjáFH.
Liðið sem keppir gegn Færeyjum er
næstum því alfarið skipað leikmönn-
um sem spila með félagsliðum heima.
Hjörtur spáir h'tíð í það hveijir kom-
ust ekki og hverjir voru valdir. „Þetta
er einfaldlega gott tækifæri fýrir mig
til að sýna mig og sanna. Þótt þetta sé
kallað eitthvað B-lið er þetta samt alltaf
góð viðurkenning. Ég er ekkert að spá í
hverjir eru í liðinu heldur lít ég á þetta
sem heiður fýrir mig."
Hjörtur áttí gott tímabil í fýrra og
hefur spifað vel í deildarbikamum. At-
vinnumennskan heillar. „Stefnan er
sett í atvinnumennsku en ég ætía að
sjá hvemig þetta tímabil í sumar spil-
ast fýrir mig. Það er alltaf barátta um
sætí í FH-liðinu og það má aldrei slaka
á þar, það er alveg bókað mál. Einn sla-
kur leikur getur hent manni út," sagði
Hjörtur um leið og skólabjallan glumdi
í Flensborgarskóla.
„Annars lítur liðið vel út hjá okkur
og við höfum spilað vel í deildarbik-
arnum. Það em ekki mildar nýjungar
eftír að Heimir tók við en þó einhverj-
ar smávægilegar. Það er góður andi í
hópnum og við spilum vel þessa dag-
ana," segir Hjörtur Logi sem fer á sína
fýrstu A-landsliðsæfingu á föstudaginn
kemur. tomas&dv.is
Hjörtur Logi Valgarðs
son Ætlar að sýna sig og
sanna með landsliðinu.