Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2008, Síða 29
DV Fólkiö
FIMMTUDAGUR 13. MARS 2008 29
GISTIPLASS AÐ KLARAST FYRIR VESTAN:
Tónlistarmaðurinn Mugi-
son ólst upp í Breiðholtinu
og segir sig í raun nýbúa
fyrir vestan. Honum
líkar þó lífið þar og er
að leggja lokahönd
á að skipuleggja
rokkhátíð alþýð-
unnar.
„Ég er eiginlega algjör sígauni," segir
Örn Elías Guðmundsson, betur þekkt-
ur sem Mugison, um uppruna sinn.
Mugison hefur á undanförnum árum
orðið eins konar andlit Vestfjarða og
hátíðarinnar Aldrei fór ég suður en sjálf-
ur ólst hann upp í Breiðholtinu og víðar.
„Ég bjó reyndar fyrir vestan frá því að ég
var eins árs og til fimm ára aldurs en bjó
síðan í Breiðholtinu frá níu til fjórtán ára,"
segir Mugison sem margir hafa talið ramm-
vestfirskan.
„Þessu með Vestfirðina hefur eiginlega ver-
ið logið upp á mig og ég hef margoft reynt að
leiðrétta þetta en aldrei tekist," segir Mugison í
glettni. „Ég hef alltaf litið á mig að miklu leyti sem
Breiðhyllting því þetta var svo magnaður tími," og
segist Mugison vera eins konar nýbúi fyrir vestan.
Mugison hefur reyndar búið ótrúlega víða og
þar á meðal á Grænhöfðaeyjum og í London. „Ég
bjó í Hrísey frá fjórtán til átján ára en þar á undan
bjó ég, frá því ég var sex og þangað til ég var tólf, á
Grænhöfðaeyjum og alltaf hálft ár í senn. Seinna bjó
ég síðan líka í London í þrjú ár," en Mugison lítur þó á
sig sem Vestfirðing í dag og líkar lífið þar.
Mugison og fleiri völdu nýlega listann yflr þær
hljómsveitir sem spila á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég
suður. „Við erum með tæplega 40 atriði," segir Mugison
en hvorki meira né minna en 130 sóttu um að koma fram
á hátíðinni. „Það var virkilega erfitt að velja og hafna en
mér finnst listinn sýna nokkuð góða sneiðmynd af því sem
er að gerast í íslenskri tónlist þessa stundina," en hátíðin
fylgir þeirri reglu að engin hljómsveit spili tvö ár í röð.
í ár verður boðið upp á þá nýbreytni að haldin verður tón
listarráðstefna á fimmtudeginum fyrir en hátíðin fer fram
dagana 21. og 22. mars. „Til dæmis munum við fá lög-
regluna og sýslumanninn til þess að tala um hver
drap sveitaballið. Síðan gætí verið að Dr. Gunni
og Óttar Proppé stoppi við og ræði íslenska
textagerð," segir Mugison að lokum
en hver fer að verða síðast-
ur að næla sér í gistingu
og flug því allt er að
verða uppbókað.
asgeir@dv.is
TAKMARKAÐIR
MIÐAR
Eins og Iram hetur komið
heldur Þursallokkurinn tónleika
á (íræna haUinum löstudag-
inn 11. apríl í tilel'ni al 30 ára
alinæli sínu og litkomu Þursa-
hoxins sem inniheldur alla
þeirra tónlist. Þursallokkurinn
lielur ákveðið að hieta við öðr-
um túnleikum á laugardeginum
en aðeins eru seldir 180 miðar á
hvora lónleikana l'yrir sig. Miða-
sala hefst í fyrramálið (löstudag)
klukkan 10.00 á midi.is með
Mastercard -forsölu. Almenn
sala hefst svo klukkan I 1.00 og
rná búast við því að miðarn-
ir rjúki út. Miðinn kostar 3.500
krónur stykkið.
AFKLÆDDU
UNNI
Á heimasíðunni leikjanet.is, er
nú hægt að spila leik, sem snýst um
að klæða og afklæða fegurðardrottn-
inguna Unni Birnu Vilhjálmsdótt-
ur. Leikurinn er svipaður í sniðum
og sá sem gerður var til heiðurs Agli
Gillzenegger Einarssyni, þó að sá
fatnaður sem stendur Unni Birnu til
boða sé mun smekklegri og snyrti-
legri. Það er Ingvar Þór Gylfason
sem bjó til leikinn, en hann nýtur
mikilla vinsælda á netsíðunni, enda
ekki á hverjum degi sem karlmenn
geta afklætt ungffú heim.
(VAR GUÐMUNDS Á BYLGJUNNISEGIR SÖGU AF PÉTRIJÓHANNI ÞEGAR HANN VANN f BYKO:
*
SELDIRASSGÖT Á RUGGUHESTA
ívar Guðmundsson, útvarpmað-
ur á Bylgjunni og bloggari, segir
á bloggsíðu sinni sögu af Pétri Jó-
hanni Sigfússyni leikara. Sagan ger-
ist þegar Pétur vann í byggingardeild
BYKO í Kópavogi en eins og frægt er
orðið starfaði Pétur þar á lagernum
áður en hann sló í gegn sem grínisti
og leikari.
Samkvæmt ívari var það hefð hjá
starfsmönnum byggingardeildar-
innar að hrekkja nýja starfsmenn.
I lok fýrstu viku Péturs hringdi svo
starfsbróðir hans frá byggingadeild-
inni í Hafnarfirði og ætlaði að snúa
á Pétur. „Heyrðu vinur, við erum í
vandræðum, það er stór kúnni hjá
okkur sem var að panta 200 kvista-
göt og þau eru uppseld hjá okkur,
viltu drífa þig niður á lagerinn og
finna fýrir mig 200 stykki af kvista-
götum og senda það í snatri til okk-
ar," segir ívar að sá hafnfirski hafi
sagt við Pétur.
ívar segir Pétur þrælskýran og
hafi svarað um hæi að öll kvistagöt
væru uppseld hjá þeim líka. Svarar
þá sá hafnfirski með undrun, „Ha!
Hvernig stendur á því? Áttu virkilega
engin kvistagöt til, strákur?" Pétur
svarar því neitandi og vill maðurinn
þá fá að vita hver keypti þau öll. „Nú,
það kom hingað smiður sem vantaði
þau í rassgöt á rugguhesta," svaraði
þá Pétur og var hann aldrei hrekktur
aftur að sögn Ivars. asgeir@dv.is
I
Pétur Jóhann Lét ekkl plata
sitj þegar hann vann í BYKO.