Málfregnir - 01.11.1992, Qupperneq 17

Málfregnir - 01.11.1992, Qupperneq 17
háttinn að þeim íslenska, á yfirleitt ekki við endranær, og leiddi ofnotkun hennar til þeirrar „andhælislegu djöflaþýzku, sem þeir [læknamir] kalla íslenzkt lækna- mál og engum öðrum en læknum er ætl- andi að grynna nokkuð í“ [3]. Málhreinsun og aðlögun orða Málhreinsunina má sjá í læknisfræði- heitum Guðmundar Hannessonar [8]. Þar eru um 3000 erlend uppflettiorð og tökuorð sárafá: alkóhól (einnig atrópín, kínín, morfín, nikótín, sjá lýtingar), baklería (og níu samsett orð), basi (en jafnframt lútarefni), bómull (en jafn- framt baðmull), eósín, insúlín, joð (og tvö samsett orð), kím (og þrjú samsett orð), kísil(lungu), kokkar (en jafn- framt hnettlur), kólesterín, kristall- ur (og fjögur samsett orð), maltsykur, millímíkron, míkron, móðursýki (en jafnframt sefasýki), ópíum, pest, plást- ur, spíritus (en jafnframt vínandi), vítamín (en jafnframt fjörvi). Geri aðrir betur! Þá er, auk efnaheitanna, undantekn- ing þegar um sumar bakteríur er að ræða, svo sem salmónellusýking fyrir salmonellosis. Hins vegar höfum við blóðsótt fyrir shigellosis. í völdum tilvikum má beita hljóðlík- ingu, og er eyðni fyrir AIDS [= acquired immune deficiency syndrome] ágætt dæmi um það. Merkingin er heilkenni ákomins ónæmisbrests og hefir verið nefnt ónæmistæring, en þýðingarnar skortir þann einfaldleika sem orðið eyðni hefir, til dæmis í samsetningun- um eyðnisýking og eyðniveira. Hér nýtir höfundur heitisins, Páll Berg- þórsson veðurstofustjóri, sér hljóð- líkinguna við erlendu skammstöfunina. Þetta er eitt þeirra tilvika þar sem vel á við „að líkja frjálslega eftir hljómnum í hinu erlenda heiti, en sú orðmyndunar- aðferð hefur fyrr og síðar gefið góða raun“ [6]. Nýyrðasmíði einstakra lækna og útgáfur orðasafna Guðmundur Hannesson prófessor þýddi alþjóðlegt kerfi líffæraheita fyrir rétt rúmri hálfri öld [2]. Jón Steffensen pró- fessor gaf það út í endurskoðaðri útgáfu árið 1956 [8]. Guðmundur lét eftir sig drög að handriti til orðasafns með læknis- fræðiheitum, og var Sigurjóni Jónssyni lækni falin útgáfa þess. Kom það út árið 1954 [9]. Landlæknarnir Guðmundur Björnsson og Vilmundur Jónsson voru frjóir ný- yrðasmiðir og reyndar ekki aðeins í fræðigrein sinni heldur einnig utan hennar. Nýyrði Guðmundar Björnssonar er meðal annars að finna í Gjaldskrá hér- aðslœkna og Leiðbeiningum um dánar- vottorð og dánarskýrslur. í síðarnefnda ritinu voru 150 sjúkdómsheiti, og hafði Guðmundur leitað sum þeirra uppi í gömlum ritum, einkum hjá Sveini Páls- syni, en önnur hafði hann myndað sjálf- ur. Nýyrði Vilmundar er einkum að finna í Heilbrigðisskýrslum, sem landlæknir gefur út, og svo í Mannslátabók II. Par er að finna þýðingu Vilmundar á Alþjóð- legu sjúkdóma- og dánarmeinaskránni, sem gildi tók á íslandi 1. janúar 1951. Auk þessa eru mörg orð frá honum í læknisfræðiorðasafni Guðmundar Hann- essonar [9]. Áttunda endurskoðun skrár- innar (ICD-8) kom út 1971, og sáu Bene- dikt Tómasson skólayfirlæknir og Júlíus Sigurjónsson prófessor um hana, en Benedikt sá um útgáfu níundu endur- skoðunarinnar (ICD-9) sem út kom 1982. Er ekki grunlaust um að Benedikt hafi átt hlutdeild í fleiri orðsmíðum en ritaðar heimildir herma [10]. íðorðasafn lækna Skipulegt íðorðastarf hófst á vegum læknafélaganna fyrir rúmum áratug. 17

x

Málfregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.