Málfregnir - 01.11.1992, Blaðsíða 21

Málfregnir - 01.11.1992, Blaðsíða 21
Bréf til Ottós A. Michelsens Góöi vinur. Það væri synd að segja að ég væri bráð- fljótur til svars. Nú eru liðin ein sjö ár síðan þú barst upp ofurlítið erindi við mig, og ég er ekki farinn að svara því enn. Líklega get ég helst afsakað mig með því að þú hefir ekkert verið að reka á eftir mér. Það er a.m.k. þægilegra fyrir mig en þurfa að bera við hugmyndaskorti og framtaksleysi. Þú varst að hugsa um orðið klúbbur sem okkur þótti báðum heldur tilkomu- lítil íslenska. Einhver umræða hafði orðið um að stofna klúbb manna sem hefðu verið forstjórar IBM, skildist mér, en væru hættir störfum fyrir aldurs sakir, og hvað ætti þá að kalla þann klúbb á íslensku. Satt að segja hafði ég þá lengi gert mér gælur við íslenska orðið kólfur sem gaman gæti verið að grípa til í stað orðs- ins klúbbur, en nú man ég ekki lengur hvort ég hafði kjark til að segja þér frá því. Þaö hefir þá verið gert í hálfkæringi því að ég hefi haft miklar efasemdir um að hugmyndin væri nýtileg eða yrði nokk- urn tímann tekin alvarlega. Nú er það orðið breytt. Eins og aðrir, býst ég við, hefi ég í mínu hugskoti ýmis orð fyrir sjálfan mig, og ræður hending hvort ég læt þau nokk- urn tímann heyrast eða sjást. Sum end- ast mér skamman tíma, eins og kunn- ingsskapur sem ristir ekki djúpt; önnur vinna á við nánari kynni og setjast að í huga mér - og þá er komin alvara í málið! Svo hefir farið um orðið kólfur. Þegar ég tala við sjálfan mig fellur mér ágæt- lega að nota það um klúbb, og klúbbinn ykkar IBM-manna hefi ég með sjálfum mér kallað „Öldungakólf IBM“, jafnvel allt frá því að þú sagðir mér frá honum. Nú man ég reyndar ekki lengur hvort þessi ágæti kólfur hafði þá þegar verið stofnaður eða varð nokkurn tímann til, en orðsins vegna skiptir það ekki máli. Öll þessi ár hefir mér fundist ég skulda þér svolitla greinargerð um orðið kólfur, og úr því sem komið er finnst mér nú einlægast að láta Málfregnir skila henni til þín. Klúbbur Allir sem sæmilega tilfinningu hafa fyrir íslensku máli finna undireins að orðið klúbbur er tökuorð. Stafa- og hljóðasam- bandið -úbb- veldur því. Það er fram- andlegt og fer ekki sérstaklega vel í ís- lensku þótt varla teljist frágangssök. Þessa orðs verður fyrst vart í íslenskum heimildum á öldinni sem leið og hefir ef- laust borist hingað úr dönsku (klub) og þangað úr ensku (club). Þaðan hefir það einnig komist inn í fleiri tungumál á síð- ustu tímum, og þarf ekki að rekja það frekar. Hitt skiptir meira máli að enska orðið club merkir upphaflega ‘kylfa’. Það er rakið til miðenska orðsins clubbe (frá 13. öld) og er norrænt tökuorð, hið sama og forndanska orðið klubbe, sem merkir ‘kylfa’, og íslenska orðið klubba sömu merkingar. Þannig er gamla klubban okkar orðin klúbbur eftir dálítil ferðalög á milli landa á undanförnum öldum. Nú á dögum merkir enska orðið club ekki aðeins ‘kylfa’, heldur er það einnig haft um (lokaðan) félagsskap og jafnvel 21

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.