Málfregnir - 01.11.1992, Blaðsíða 25

Málfregnir - 01.11.1992, Blaðsíða 25
Ritfregnir eftir Baldur Jónsson Málkrókar. Þættir um íslensku - am- bögur, orðfimi og dagleg álitamál. Eftir Mörð Árnason. íslenski kiljuklúbbur- inn. Reykjavík 1991. 240 bls. Þessi bók kynnir sig allrækilega sjálf. Á kápubaki segir útgefandi meðal annars: Málkrókar er fyrst og fremst skemmtileg og fróðleg lesning öllum þeim sem hafa gaman af íslenskri tungu, en nýtist einnig sem hand- bók fyrir þá sem vilja vanda móðurmál sitt og forðast klisjur og ambögur. Atriðisorða- skrá í lok bókarinnar auðveldar mönnum að nota hana til uppsláttar. Mörður Árnason málfræðingur hefur í tæp tvö ár haft umsjón með þættinum Daglegt mál í útvarpi og hafa pistlar hans þar vakið athygli fyrir fjörugan og skemmtilegan stíl. Sjálfur gerir hann grein fyrir verki sínu í „Svolitlum formála". Fyrri hluti hans er á þessa leið (bls. 5-6): I þessu riti er ýmisiegt spjall um íslensku frá ýmsum sjónarhornum, komið á einn stað til skemmtunar eða fróðleiks eða hvorstveggja eftir því sem hverjum líst, sprottið af hug- leiðingum um daglegt mál í útvarpi rúma tvo vetur. Þetta er ekki kennslurit og ekki handbók um málnotkun, ekki prédikanir og ekki dómasafn. Þessvegna er ekki stefnt sérstak- lega að samræmdri áherslu á þá margvíslega grein sem gerð er fyrir tungumáli í fræðum, og svipað má segja um niðurröðun efnis, — sennilega er best að láta geðþótta ráða lesröð. Þetta er heldur ekki málvillusyrpa eða afglapa í tali og texta þótt slíkt hafi sam- kvæmt eðli máls orðið kveikja margra pistl- anna. Einkum er hér lítið talað um þær mál- myndir sem hafa orðið allrahelstir ásteyt- ingssteinar hin síðari árin, meðal annars vegna þess að aðrir hafa þegar skrifað langt mál og nægilegt um flest af því dóti. Hér er hvergi talað í samfellu um það sem kallað er málstefna, málrækt eða málpólitík. Slíkar samfellur eru oftast heldur þumbalda- legur texti og helst læsar og skrifandi því fólki sem hefur atvinnu af einhverskonar málstjórn. Þarf þó vænti ég ekki að lesa langt til að sjá að helst er í þeim efnum fylgt því sem kalla mætti frjálslynda ábyrgðarstefnu. Heilbrigð íhaldssemi er hollt einkenni á mál- félagi og fráleitt að ryðja burtu mati og smekk vegna einhverskonar vísindahlut- leysis eða fyrir frjálshyggju á skökkum stað. Hins vegar lifir ekkert mál fullu lífi án stöð- ugrar forvitni mælendanna um allar lengdar- gráður og breiddar, án þess að þeir séu til- búnir að tefla á tvær hættur við að leita ævintýra og nema ný lönd. En um þetta eru menn loksins að verða sammála eftir allt skakið. Við höfnum bæði stöðnun og laus- ung en viljum að hvorttveggja í senn ein- kenni nútímaíslensku, festa og sköpun. Kaflar hér í bókinni kunna að reynast mis- jafnir undir tönn. Stundum er farið hratt yfir sögu til að komast fyrr að góðgæti, nokkrum sinnum lögð stund á einskonar örvísindi, hugdettu hleypt að hömlulítið og ekki alltaf gætt varúðar í fræðiritastíl. Bókarhlutarnir eru þó allir samdir fyrir áhugafólk án sér- legrar þekkingar á málfræði eða málsögu, og framsetning við það miðuð. Með nokkrum hætti eru allir íslendingar jafngildir úrskurðarmenn um álitamál í íslensku, og langflestir hafa rótgróinn áhuga á tungumáli sínu, hvort sem það kemur okkur fyrir sjónir sem beinn og breiður vegur eða misfærar krókaleiðir á tæpu vaði. Þetta kver dregur nafn af síðarnefndum slóðum, en það nafn ber þó ekki að skilja einungis neikvæðum skilningi. Oft er betri krókur en kelda. 25

x

Málfregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.