Málfregnir - 01.11.1992, Side 22

Málfregnir - 01.11.1992, Side 22
húsakynni hans, og raunar fleira sem kemur þessu máli ekki við. Ég kem von bráðar að þróun merkingartengslanna þarna á milli. Um kólf og kylfu Orðin klubba og kylfa eru sömu merk- ingar, eins og sagt var, en þau eru líka býsna Iík að hljóðafari og gætu verið af sömu rót. En við skulum ekki fara lengra út í þá sálma, enda ekki þörf á því. Hyggjum fremur að því að orðið kylfa er leitt af stofni orðsins kólfur, sem hét kolfr í elsta máli íslensku, og minnumst þess að kólfur (í klukku) og kylfa eða klubba eru býsna áþekkir hlutir. Kólfur í klukku hefir um aldir kallað menn saman til tíða og messugjörðar. Pað kann að skýra merkingarþróunina ‘kylfa’ —> ‘fé- lagsskapur’. Hitt er þó miklu sennilegra, og raunar talið næsta víst, að klubba eða kylfa hafi verið látin ganga eins og kefli sem fundarboð frá manni til manns og þannig sé komin upp merkingin ‘félags- skapur’. Hvernig sem þessu er háttað hefir ís- lenska orðið kólfur sætt svipuðum örlögum og enska orðið club (ísl. klubba). Það er upphaflega haft um sívalan hlut úr tré, sem er gildari í annan endann, venjulega með hnúð, en er líka haft um (lokaða) samkomu þegar í mið- aldamáli íslensku. Kólfur er með öðrum orðum klúbbur! Hjúkólfur og húskólfur Tekið skal fram að ég veit engin dæmi þess að orðið kólfur eitt sér hafi verið notað um félagsskap eða samkomu, heldur einungis í samsetningunum hjú- kólfur og húskólfur, en það finnst mér líka alveg nóg. í íslendinga sögu Sturlu Þórðarsonar er merkileg frásögn af endalokum Jóns murts, sonar Snorra Sturlusonar. Jón hafði farið utan sumarið 1229, kom til fundar við Skúla jarl, gerðist hirðmaður hans og skutilsveinn og var með honum um veturinn. „Hann þroskaðist vel,“ segir Sturla. Síðan kemur saga sem ég get ekki stillt mig um að taka upp orðrétt úr Sturlunga sögu, útg. Jóns Jóhannes- sonar o.fl. (I. bindi, 1946, bls. 342-343). Hún er á þessa leið með minni stafsetn- ingu: Um vorið fór hann til Björgvinjar og fann þar Hákon konung og ætlaði út um sumarið, en konungur gaf hon- um eigi orlof. Jón var þá mjög févani og gerði út Odd, svein sinn, eftir fé. En Árni biskup bauð Jóni til sín, og fór hann á biskupsgarð og hafði herbergi fyrir norðan Krists- kirkju þar sem nú er prestagarður. Þar svaf í herbergi í hjá honum Gissur Þorvaldsson, mágur hans, og þjónustumenn þeirra, Símon knútur og Valgarður Guðmundarson. Þar var og kominn til Jóns Ólafur svarta- skáld, sonur Leggs prests. Hann var félaus og var kominn á kost hans. Þeir Jón og Gissur mágar voru með konungi um jól sem aðrir skutil- sveinar. En síðan gengu þeir í hjú- kólf á konungsgarði. Það var eitt kveld nær geisladegi er þeir mágar komu úr hjúkólfinum og voru mjög drukknir, og var myrkt í loftinu og eigi upp gervar hvílur. En er upp kom ljósið var Jón illa stilltur og ámælti þjónustumönnum. Hann Ólafur skaut orði fyrir þá. En Jón tók skíðu og sló til Ólafs, en Gissur tekur Jón og heldur honum. Þá fékk Ólafur handöxi og hjó í höfuð Jóni. Varð það eigi mikið sár ásýndum. Hann Jón brást við hart og spurði hví Gissur héldi honum undir högg. Ólafur hljóp úr loftinu, og féll aftur hlemmurinn. Gissur féll á hlemminn 22

x

Málfregnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.