Vestfirska fréttablaðið - 15.02.1980, Qupperneq 10
Hin frábæru
YAMAHA rafmagnsorgel
eru þau mest seldu í heiminum í dag.
Eigum fyrirliggjandi:
YAMAHA Reed-orgel
YAMAHA B - 35
YAMAHA B - 55
YAMAHA C - 35
kr. 271.000
kr. 577.000
696.300
kr. 1.120.000
KOMIÐ OG HLUSTIÐ Á HLJÓMINN
BÓKAVERSLUN JÓNASAR TÓMASSONAR
.—------------------------Sími 31 ?3..ísafirði
Næsta tölublað
kemur út 27. febr.
bilið milli rækjuvertíða og í stopp-
um hefði verið að honum mikil
búbót. Skelin er veidd á stuttu
tímabili, eða frá því rækjuvertíð
lýkur og þangað til bátarnir fara á
skak eða úthafsrækju á vorin, og
síðan aftur er sumarvertíðinni lýk-
ur og þar til rækjuvertíðin hefst á
ný. Hafa þessar hörpudiskvei ðar
verið mjög hagstæðar fyrir ba tana
og verksmiðjuna. að sögn Theó-
dórs.
Á rækjuvertíðinni, sem nú
stendur yfir, er leyft að veiða alls
2.600 tonn af rækju. en 2. febrúar
s.l. var búið að veiða 1726 tonn.
Lét Theódór þá skoðun í ljós. að
með þessum gangi yrði skammtur-
inn uppurinn í síðasta lagi í mars-
lok, sem væri allt of snemmt.
Hann benti ennfremur á, að Súð-
víkingar væru nú búnir með sinn
kvóta en hefðu fengið leyfi ráðu-
neytisins til að halda áfram.
Rækjuverksmiðjurnar við Djúp
eru óánægðar með þessa ráðstöfun
og hafa sent ráðuneytinu skeyti,
þar sem þær áskilja sér sama rétt
og óska eftir því að ráðuneytið sjái
seer fært að veita þeim sömu fyrir-
greiðslu og Súðvíkingum.
Verksmiðjurnar við Djúp hafa
frá 12% upp í rúm 20% af heildar-
kvóta, en hann skiptist þannig að
Niðursuðuverksmiðjan á Torfnesi
hefur 299 tonn, Olsen 429 tonn.
Þórður Júlíusson 247 tonn. Hnifs-
dalur 403 tonn, Rækjustöðin 546.
Bolungarvík 468 og Súðavík 208
tonn.
Theódór Norðkvist sagði, að
rækjuverksmiðja Olsen væri búin
með 275 tonn af sínum kvóta, en
þeir hefðu hinsvegar báta til að
veiða meira og hafa látið báta til
annarra verksmiðja, sem hafa ver-
ið á eftir. enda væri þeim enginn
akkur í að sá sem fyrstur kláraði
hann, ætti bara að fá meira.
Yfir 10 þús tonn
til Bolungarvíkur
14.300 kg. og Sæunn 11.420 kg.
Þessi afli fékkst einnig frá 11.
janúar.
Að sögn Theódórs Norðkvist
fóru þrír rækjubátanna hjá Olsen
á hörpudisk í stoppinu, sem hófst
7. desember s.l. Veiðin var af-
bragðsgóð og komu bátarnir með
rúm 160 tonn af hörpudiski á land
á þessum tíma. Verksmiðjan hefur
alls unnið milli 500-600 tonn af
hörpudiski og er sem kunnugt er
eina verksmiðjan við Djúp, sem
vinnur skel. Sagði Theódór, að
tekist hefði með skelinni að brúa
Frá loðnulöndun í Bolungarvík.
Mikil loðna hefur borist á
land í Bolungarvík að undan-
förnu. Var blaðinu tjáð hjá Síld-
ar- og fiskimjölsverksmiöju Ein-
ars Guðfinnssonar hf., að aflinn
sem þírngað hefði borist það
sem af er loðnuvertíðinni næmi
alls 10.376 tonnum.
Er Vestfirska spurðist fyrir um
loðnulöndunina 7. febrúar s.l., var
einn loðnubátur í höfn og annar á
ieiðinni inn. Unnið hefur verið
dag og nótt við loðnubræðsluna og
má nú heita að allar þrær verk-
smiðjunnar séu fullar. Verða þeir
bátar sem landa í Bolungarvík í
dag og í kvöld þeir síðustu, sem
tekið verður á móti að sinni. Frá
því loðnuvertíðin hófst hafa 27
bátar landað í Bolungarvík. Afla-
magnið, sem borist hefur á land,
er helmingi meira en á sama tíma í
fyrra.
Frá því rækjubátar hófu veið-
ar aftur eftir áramót, 11. janúar
s.l., hefur afli verið góður og
glæðst enn nú síðustu vikurnar.
Um mánaðamótin öfluðu bát-
arnir mjög vel og voru margir
þeirra með eitt til tvö tonn eftir
daginn. Er þetta töluvert betri
veiði en þegar rækjubátarnir
stoppuðu fyrir áramót. Kvóti á
bát er eins og kunnugt er fimm
tonn á viku. Rækjan er nokkuð
blönduð og misjöfn að gæðum.
Theódor Norðkvist hjá Niður-
suðuverksmiðju Olsen tjáði blað-
inu, að aflahæsti rækjubáturinn
þar væri Tjaldur með 16.231 kg„
en þessi afli fékkst á tímabilinu frá
11. janúar til 7. febrúar. Næstur er
Bryndís með 15.847 kg. og því
næst Bára með 14.971 kg. Hjá
Niðursuðuverksmiðjunni hf. á
Torfnesi var okkur tjáð. að Eiríkur
Finnsson væri með 17.600 kg„
Valborg 8.350 kg„ Pólstjarnan
Stórtjón
í eldsvoða
Miðvikudaginn 6. febrúar sl.
kom upp eldur í suðurenda
Slökkviliðinu tókst að kæfa eldinn á hálfri klukkustund.
herbergjum á neðri hæð og 2 á
efri hæð.
Sjá bls. 9:
hússins Mánagata 2 hér í bæ.
Þegar slökkviliðinu var gert við-
vart um kl. 5 var eldur laus í 2
I— 1 Eidsvoði orsakaðist af óvitaskap.
Nýjar vörur daglega
Tókum upp í gær: KFNWOOn - Hliómflutninastæki
w SANYO - Magnara LENCO - plötuspilara
POLLINN HF Lóðbyssur - Lóðbolta Reykskynjara - Rafmagnsofna
ísafirði Sími 3792 PHILIPS - LITSJÓNVÖRP Sjón er sögu ríkari „Láttu sjá þig“
I-
Sölva hleypt
af stokkunum
Síðastliðinn laugardag var
nýju fiskiskipi hleypt af stokk-
unum hjá skipasmíðastöðinni
Þorgeiri og Ellert á Akranesi.
Skipið er hannað með veiðar í
nót, flot- troll- og botnvörpu fyr-
ir augum. Tæknimenn Þorgeirs
og Ellerts teiknuðu skipið. Eig-
andi þess er Tálkni hf. Tálkna-
firði, en aðaleigendur þess fyr-
irtækis eru þeir Ársæll Egilsson
og Bjarni Andrésson. Skipið
fékk nafnið Sölvi Bjarnason.
Eins og þegar hefur komið fram
í frétt hér í blaðinu mun skipið
leggja upp afla sinn á Bíldudal.
Lengd skipsins er 59 metrar og
breidd 9 metrar. Það mælist rúml.
400 rúmlestir og burðargeta þess
við loðnuveiðar er um 750 tonn,
en sem togari getur það flutt í
kössum rúm 200 tonn af ísuðum
fiski. Skipið er þrítugasta og fjórða
nýsmíði Þorgeirs og Ellerts. í því
er Wickmann aðalvél. sem er 2100
hestöfl og er gerð fyrir brennslu
svartolíu, en gefur jafnframt geng-
ið á venjulegri díselolíu. í vélar-
rúminu er komið fyrir sérstökum
útbúnaði, sem gerir vélstjórum og
skipstjórnarmönnum kleift að
fylgjast með eyðslu vélanna við
mismunandi álag. Þessi útbúnaður
safnar einnig upplýsingum um á-
stand véla og komi eitthvað fyrir
getur hann rakið ástand vélanna
eitthvað aftur í timann og séð
hvernig þær hafa unnið.
Skipið er búið tveimur Cumm-
ings ljósavélum. tveimur 300 hest-
afla hliðarskrúfum, Becker
blöðkustýri, logvindu og snurpu-
vindu frá Rapp, Simrad Asdiq-
tæki. fisksjá og fullkomnum fjar-
skipta- og siglingatækjum.
Áætlað er að verð skipsins sé á
bilinu 1700-1800 millj. kr.
Rækjuveiðamar
ganga vel