Vestfirska fréttablaðið - 19.04.1984, Qupperneq 8
vestlirska
ritSTTABLAEID
kvæmast og meira næöi að
flytja golfvöllinn yfir í Engidal?
Þessar hugleiðingar má ekki
taka sem tillögu til fram-
kvæmda, eru einungis leik-
mannsþankar. Veit að nefnd
bæjarstjórnar mun skoða máliö
vel og skipuleggja gott útivist-
arsvæði. Hef sjálfur séð þaö í
huganum nokkuð lengi og
fylgst með úr hlíðinni vaxandi
þörf fyrir bætta aðstöðu. En
tillaga golfklúbbsins gaf tilefni
til að skrifa. Það er t.d. fráleitt
að gera teig samsíða tjaldstæði
og ætla að slá golfkúlu í 3 — 4
m fjarlægð samsíða tjaldaröð-
inni. Holur eru líka settar óhæfi-
lega nálægt vegi og umferð.
Svæði golfvallar er mest í
einkaeign og vex ýmsum í aug-
um kostnaður við landakaup á
svo stóru svæði fyrir þessa einu
íþróttagrein. Þá á eftir að kosta
þurrkun lands og skurðgröft,
þyggingu nokkurra brúa yfir
ána, lagfæringu teiga, gerð
,,greena“ að ógleymdri hirð-
ingu og vörslu. Eða ætlar golf-
klúbburinn að annast þetta allt?
Hvað sem því líður vil ég
meina, og grunar sterklega að
margir fleiri séu á því líka, að
svæðið frá Kýrhól (við hús
Finns Magnússonar) og Or-
ustuhól niður að á og inn dal-
inn, sé það minnsta, sem hægt
er að komast af með fyrir skóg-
rækt íþróttir og frjálsa útiveru
alls almennings. Golfarar hafa
nefnilega það miklar sérþarfir
og gera sérkröfur um umferð í
kringum sig að nær mega þeir
ekki koma, ef aðrir eiga að vera
óhultir. Við skulum gera Tungu-
dal að þeirri almennings,,para-
dís" á sumrin sem Seljalands-
dalur er á vetrum. Hann hefur
alla kosti til þess.
15. apríl 1984
Gunnlaugur Jónasson
r-Smáauglýsingar-i
BAHÁ’I TRÚIN
Upplýsingar um Bahá’i
trúna eru sendar skriflega,
ef óskað er. Utanáskrift:
Pósthólf 172, ísafirði. Opið
hús að Sundstræti 14, sfmi
4071 öll fimmtudagskvöld
frákl. 21:00 til 23:00.
TAPAST HEFUR
hálfstálpaður kettlingur,
svartur og hvítur líklega ná-
lægt miðbænum, fyrir um
það bil 2 vikum síðan.
Upplýsingar í síma 3653
í OSKAEFTIR
I 2ja—3ja herb. íbúð á leigu
I strax.
I
I Upplýsingar í síma 4049
TIL SÖLU
Chevrolet Malibu Classic,
árg. ’78 í mjög góðu iagi.
Upplýsingar í síma 4049
TIL SÖLU
Volvo 244 árg. 1978 ekínn
100 þús. km. Sjálfskiptur í
mjög góðu lagi.
Upplýsingar í síma 6909
(vinnu) og 6917 (heima).
VANTAR
Ca. 130 ha. inboard/out-
board vél. Bensín eða dí-
esel.
Upplýsingar í síma 98-2134
Útívistarsvæði í Tungudal fyrir alla
í Vestfirska fréttablaðinu
þann 12. apríl er sagt frá hug-
myndum um gerð golfvallar í
Tungudal og samþykkt bæjar-
stjórnar um skipan nefndar til
að undirbúa framgang málsins.
Undirritaður hefur fengið að sjá
teikningu Kristjáns Kristjáns-
sonar, þar sem sett er fram
tillaga Golfklúbbs ísafjarðar um
legu vallarins. Þessar fréttír
gefa tilefni til að senda V.t.
hugleiðingar.
Á ísafirði sem annars staðar
eru stöðugt fleiri borgarar, ung-
ir sem aldnir, sem kunna að
meta útilíf og íþróttir og mikil-
vægi þeirra fyrir skrokkinn jafnt
sem sálarlífið. Á Seljalandsdal
hefur tekist með ærinni fyrir-
höfn og talsverðum fjármunum
að koma upp góðri skíðaað-
stöðu, sem ísfirðingar og ná-
grannar kunna vel að meta. Á
Seljalandsdal lyfta menn sér
upp úr vetrardrunganum og
skíðasvæöið tel ég eiga mikinn
þátt í því að halda þó því jafn-
vægi í byggð, sem hér hefur
haldist.
Á sama hátt og Seljalands-
dalur gegnir stóru hlutverki á
vetrum, hafa menn leitað í
Tungudal á sumrin. Skógarferð
í Tungudal var fyrr á tímum
vinsæl sportferö, sem lagt var í
svona einu sinni á sumri. Gjarn-
an siglt inn í Tunguárós og
gengið þaðan og þótti mikil
ferð. Síðan kom vegur og ferð-
um fjölgaði. Sumir voru svo
heppnir aö fá lóð og jafnvel
eignast hús í hlíðum dalsins (ég
er einn þeirra). Berjaferðir hafa
alllengi verið mikið farnar í
Tunguskóg, en á síðustu árum
hefur með aukinni byggð og
bættum samgöngutækjum stór-
aukist umferð í dalinn. Á helg-
um er þar jafnan mannmargt og
flesta daga sumarsins og nær
öll kvöld eru hópar að hlaupa
og sparka og leika sér niöur á
túni. Svo mikil var ásóknin að
einn stærsti túnblettur ábúand-
ans var tekinn undir skokk- og
fótboltavöll, án þess nokkuð
væri um það talað eða samið.
Það gæflyndi Guðmundar Ósk-
ars, að láta þaö óátalið, hefur
komið sér vel fyrir fjölmarga
stráka og stelpur, sem þarna
hafa hamast. Útileikfimi er
stunduð þarna, ungar stúlkur
og fullorðnar frúr hafa oft sést
hoppa þar og skokka með ynd-
isþokka og elegance. Módel-
smiðir fá þarna næði til að
reyna tæki sín og fleiri athafnir
mætti telja.
En nú er kominn tími til að
laga til og betrumbæta þarna
innfrá. Það yrði vinsælt. Brekk-
an og kjarrið (og lautirnar) hafa
sínu hlutverki að gegna og þarf
lítið að breyta, en niður á túni
þarf á næstu árum markvisst að
lagfæra og gera betri aðstöðu
fyrir ýmiskonar leiki og athafnir.
Fyrst og fremst fótboltavöll og
minni sparkvelli núverandi fót-
boltavellir bæjarins eru fullnýtt-
ir) t.d. á túninu þar sem nú er
mest sparkað, gera þar mörk
og jafna blettinn. Túnið slétta
utan við tjaldstæðið er gott fyrir
skokk og hlaup, því má líka
skipta í smærri reiti þar sem
mætti slá tennis eða badmin-
ton, blak eða þ.h. einnig koma
upp Mini-golfi. Að sjálfsögðu er
pláss fyrir rólur og vippur og
grunn tjörn niður við ána, þar
sem hægt yrði að busla og
sigla, yrði mjög vinsæl af þeim
yngstu.
Ekki þekki ég framtíðaráætl-
anir Skógræktarfélagsins, en
tel óvarlegt þegar til framtíðar
er litið að ætla gróðrarstöð
minna svæði en túnið neðan
við Simsonsgarð niður að á,
fyrir plöntuuppeldi, plönturækt
og aöra skógrækt, einnig fyrir
gróðurhús og áframhaldandi
tilraunastarf. Við höfum skyld-
um að gegna um áframhald
starfa Simsons, sem gaf okkur
garðinn. (Það er freistandi að
minna á, að í holtið þarna fyrir
ofan var boruð hola nokkur
hundruð metra djúp. Hitastuð-
ull var hagstæöur en ekkert
vatn. Nú er beðið eftir að holan
verði dýpkuð. Þá koma þarna
fleiri gróðurhús og garðrækt
eykst, síðar sundlaug og heitir
pottar. Seinna.)
Golfvöllur er líka sjálfsagður
partur af útivistarsvæði, eins og
hér er verið að tala um, svo
fremi landrými leyfi. Svæðið frá
Orustuhóli út að fyrirhugaðri
stofnbraut virðist að ýmsu vel
fallið fyrir golfvöll, þó frá mínu
sjónarmiði sem leikmanns virð-
ist teigarnir furðu þétt saman á
áðurnefndri teikningu. Bendi á
að e.t.v. mætti bæta við völlinn
sunnan við það svæði sem
teikningin gerir ráð fyrir upp í
Hnífaslakkann og inn með á.
Þar er þurrt svæði og minni
halli en í Hnífsdal. Ef svæðið á
túnunum yrði afhent fyrir golf-
völl til ákveðins árafjölda þarf
að huga vel að því, að byggð er
komin þarna mjög nálægt
(Bræðratunga) og óvarlegt að
reikna með öðru, en áframhald
verði á byggingum á svæðinu
þar í kring og mætti golfvöllur
ekki standa á vegi fyrir slíkri
þróun. En er ekki annars hag-
Á innsta svæðinu mætti vera
frjálst svæði fyrir börn og fjöl-
skyldur, með tímanum skýlt og
skákað niður af trjágróöri.
Svæöi til að vera á í friði og ró.
Því má ekki gleyma, að margir
íbúar hafa ekki grasblett við
íbúðir sínar, jafnvel ekki svalir,
en eiga rétt á staö til að setjast
niður með sólstóla eða grill-
ofna, eöa bara leika við börnin
sín á grasi, óhult.
Orðið er laust
--Lesendadálkur-