Vestfirska fréttablaðið - 19.09.1985, Page 1
FRETTABLASIS
Umboð Flugleiða á Vestfjörðum:
Bolungarvík: Margrét Krístjánsdóttir, sími 7400
Flateyri: Jónína Asbjamardóttir, sími 7674
Súðavík: Sigurður Þórðarson, sími 4920
Suðureyri: Helga Hólm, sími 6173 FLUGLEIDIR
ERUM AÐ TAKA UPP
FULLTAF
FATNAÐI
FATNAÐI
FATNAÐI
FATNAÐI
Verslunin
ísafiröi sími 3103
Flestir eiga enn nokkurn kvóta:
Örvæntum ekki,
en stöndum tæpt
— segir Hans Haraldsson hjá Norðurtanga
Mikið hefur veríð rætt undanfar-
ið um kvótafyrírkomulagið, kosti
þess og galla. Frá ýmsum stöðum á
landsbyggðinni hafa borist fregnir
um versnandi atvinnuástand á hau-
sti komanda, vegna þess að kvótar
eru víða að ganga til þurrðar. Vf.
kannaði þessi mál meðal nokkurra
útgerðarmann á Vestfjörðum.
Flestir útgerðaraðilar eiga nægan
kvóta til áramóta, þótt sumir standi
nokkuð höllum fæti. Margir þeirra
hafa reynt að gæta hófs í veiðum og
takmarkað sókn í samræmi við af-
kastagetuna hjá vinnslunni í landi.
Fæstir höfðu keypt kvóta enda er
mjög Iftið framboð á honum og
verðið óljóst.
I Bolungarvík og á Þingeyri bú-
ast menn við að kvótinn dugi út
árið. Bessi á eftir 770 tonn af
skrapfiski, og reikna eigendur hans
með að það endist vel fram á
haustið. Páll Pálsson á eftir 900
tonn sem endist væntanlega fram
eftir haustinu.
Guðbjörg á eftir 700 tonn þar af
eru innan við 200 tonn þorskur.
Endurbætur á
flugvöllum
Nokkrar endurbætur hafa verið
gerðar á flugvöllum á Vestfjörðum f
sumar. Nýr síriti tengdur við vind-
mælir hefur verið settur upp á flug-
vellinum á fsafirði. Einnig var end-
urbættur tækjakostur á Amamesi í
því skyni að bæta fjarskiptasam-
band við flugturninn.
Flugvöllurinn í Reykjanesi var
lengdur og endurbyggður, er
brautin rúmir 900 metrar, en var
650 metrar áður. Á hann fyrst og
fremst að vera sjúkraflugvöllur, en
þessar breytingar gera það að
verkum að hann hentar vel sem
varaflugvöllur fyrir smærri flug-
vélar. Einnig þykir nauðsynlegt að
hafa tryggar samgöngur við
Reykjanes vegna skólahalds þar á
vetrum.
Flugvöllurinn að Bæjum á Snæ-
fjallaströnd er nú um 860 metra
langur. Guðbjöm Charlesson um-
dæmisstjóri Flugmálastjórnar á
Vestfjörðum sagði í samtali við Vf.
að það væri stefnan að koma upp
sjúkraflugvöllum sem víðast, þeir
væru búnir að sanna gildi sitt við
björgun mannslífa.
Nauðsynlega þyrfti að gera stór-
átak í endurbyggingu og uppbygg-
ingu sjúkraflugvalla á Vestfjörðum
öllum. Víða væri ástandið í flug-
málunum mjög bágborið. Aðeins
hefði verið veitt 1,5 milljónum til
uppbyggingar sjúkraflugvalla í
fjórðungnum, það væri hvergi
nærri nóg.
Guðbjörn sagði að Vestfirðingar
hefðu nokkra sérstöðu hvað þetta
varðar, því þeir væru mjög háðir
samgöngum í lofti og notuðu þær
geysimikið. Vegna þess hve sam-
göngur eru lélegar og erfiðar á
landi hlýtur að þurfa að gera veru-
legar endurbætur á flugsamgöng-
um til Vestfjarða.
Stóra
flaskan
var dýrari
Tveir ungir menn komu inn á rít-
stjóm Vf. á dögunum og sögðu farír
sínar ekki sléttar. Þeir ætluðu að
gera sér glaðan dag og hugðust
kaupa stóra flösku af vodka, en
svoleiðis kollur innihalda 1,75 litra,
átti hún að kosta 2.540 krónur.
Þeim til mikillar undmnar kostaði
sama magn af sömu tegund í öðmm
umbúðum, það er 2 heilflöskur og
peli, 270 krónum minna, eða aðeins
2.270. Afgreiðslumaður í ÁTVR.
hríngdi í höfuðstöðvamar að beiðni
þeirra félaga en stúlkan sem átti að
sjá um þessi mál var f frfi.
Þeir kumpánar keyptu því söng-
vatnið í minni flátum þar sem það
var ódýrara, þótt óneitanlega sé að
því talsvert óhagræði að þurfa að
opna þrjár flöskur i stað einnar.
Bændaglíma
Bændaglíma Golfklúbbs fsa-
fjarðar var háð nú um helgina og
urðu úrslit þau að sveit Viðars
Konráðssonar sigraði.
Bændaglfma fer þannig fram að
þátttakendum er skipt i tvö lið sem
stjómað er af svokölluðum bænd-
um. Bændur f þessu móti vom þeir
Samúel Einarsson formaður G.f. og
Viðar Konráðsson. Svo sem áður er
sagt sigraði sveit Viðars, með 45
Þeir hafa keypt töluvert mikið af
kvóta og bjuggust við að kaupa
meira ef þetta dygði ekki út árið.
Útgerðarmenn Guðbjarts reikna
með að kvótinn dugi eitthvað fram
á haustið, Hans Haraldsson út-
gerðarstjóri sagði að þeir örvæntu
ekki þótt þeir stæðu vissulega tæpt.
Bátarnir Orri og Víkingur hafa sótt
talsvert í steinbít og grálúðu, sem
eru hvorttveggja fisktegundir utan
við kvóta. Þeir ættu því ekki að
verða í vandræðum.
Elín Þorbjamardóttir á eftir um
það bil 100 tonn af þorski. Ekki er
ljóst hvað eftir er að öðrum fisk-
tegundum, en það dugir engann
veginn út árið.
Gyllir á eftir 300 tonn af þorski
og svipað af karfa, þeir keyptu
smávegis af kvóta fyrr á árinu.
Sigurey á Patreksfirði á eftir 700
tonn sem eiga að duga út árið.
Nokkuð er misjafnt hvemig
menn hafa hagað sínum veiðum í
sumar. Nokkrir hafa reynt að tak-
marka veiði þrátt fyrir að nægur
afli gæfist, aðrir hafa veitt eins og
skipin hafa getað aflað. Einn við-
mælenda okkar sagði „það er verið
að verðlauna skálkana, þeir sem
hafa veitt hömlulaust og bara
hugsað um líðandi stund, þeir hafa
hæst um það að kvótakerfið sé úrelt
og leyfa eigi meiri veiði. Hinir sem
hafa gætt hófs og reynt að hafa
einhverja stjóm á veiðunum þeir fá
lítið hrós”.
Þessa mynd tók blaðamaður V.f. í haustblíðunni, í Simsonsgarði í Tungudal.
Fallandi laufum rignir yfir styttuna af konunni.
Flugleiðir:
Vetraráætlun gengin í gildi
Vetraráætlun Flugleiða gekk i
gildi frá og með 16 sept. Samkvæmt
stigum gegn 25 stigum Samúels-
manna.
Nú stendur yfir á vegum Golf-
klúbbsins firmakeppni og er áætlað
að henni Ijúki um næstu helgi.
Grunn-
skólinn settur
Grunnskólinn á Isafirði verður
settur f fyrsta sinn á sunnudaginn
klukkan 16:00. Tekist hefur að ráða
í allar kennarastöður sem lausar
voru til umsóknar nema eina. Hægt
verður þvi að halda út allri kennslu
nema tónmenntakennslu, þar eð
enginn fékkst til kennslu við þá
grein.
Patreksfjarðar, á mánudögum,
miðvikudögum og föstudögum.
Flogið verður tvisvar f viku til
Þingeyrar, á mánudögum og
fimmtudögum.
Flugfélag Norðurlands hefur
einnig hafið flug samkvæmt vetrar-
áætlun og flýgur til Isafjarðar á
mánudögum, miðvikudögum, föstu-
dögum og laugardögum.
Frá upphafi árs til ágústloka
fluttu Flugleiðir 28.606 farþega á
flugleiðinni, ísafjörður — Reykja-
vík, en 27.558 á sama tíma í fyrra.
Fragtflutningar námu 229.535
tonnum frá upphafi árs til ágúst-
loka, en voru 225.997 á sama tima í
fyrra.
Mest aukning hefur orðið f póst-
flutningum. Á þessum tfma voru
flutt 81.647 tonn af pósti en 66.729
á sama tfma í fyrra.
Þessar breytingar á áætlun Flug-
leiða til Vestfjarða gilda til 11.
nóvember n.k. En þá verður aftur
breyting vegna minnkandi birtu.
henni verður flogið 12 sinnum f viku
til ísaf jarðar mánudaga, þriðjudaga
Arnór Jónatansson,
umdæmisstjóri Flugleiða.
og föstudaga kl. 9:15 og 17:15,
miðvikudaga kl. 9:15, fimmtudaga
kl. 10:00 og 17:15, laugardaga kl
14:00 og sunnudaga kl. 11:30 og
17:15. Morgunvél á fimmtudögum
millilendir á Þingeyri á leið til tsa-
fjarðar. Samkvæmt vetrar áætlun
verður flogið þrísvar f viku til