Vestfirska fréttablaðið - 10.12.1992, Qupperneq 6
6
Fimmtudagur 10. desember 1992
„Brotamennirnir
eru þeir sem oftast
verða til þess að vekja
athygli á störfum
lögreglunnar"
- sagði Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á borgarafundi á Flateyri
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður flytur framsöguerindi.
Á mánudagskvöldið stóð
Kiwanisklúbburinn Þorfinnur á
Flateyri fyrir opnum borgara-
fundi með lögregluyfirvöldum
á Isafirði. Það voru þeir Olafur
Helgi Kjartansson sýslumaður
og Jónmundur Kjartansson yf-
irlögregluþjónn sem mættu af
hálfu yfirvalda ásamt Hlyni
Snorrasyni rannsóknarlög-
reglumanni og Guðmundi
Fylkissyni lögreglumanni. Til-
tölulega fámennt var á fundin-
um eða samtals 35 manns þegar
flest var.
Eftir kynningar á gestunum
hélt sýslumaður erindi þar sem
hann kom m.a. inn á löggæslu-
mál á Flateyri, samskipti lög-
reglu og borgara, fíkniefnamál
og umfjöllun fjölmiðla um til-
tekna atburði á Flateyri. „Það er
nú svo að tiltölulega lítill hluti
almennings hefur oft samskipti
við lögreglu og þá ekki síður að
frumkvæði hennar. Það eru þeir
sem brjóta af sér“, sagði Olafur
Helgi. „Brotamennirnir eru þeir
sem oftast verða til þess að
vekja athygli á störfum lög-
reglunnar og við þekkjum dæmi
þess héðan frá Flateyri", sagði
Olafur og gat þess síðan að al-
menningur kynntist helst störf-
um lögreglu fyrir tilstuðlan
fjölmiðla.
Fréttaflutningur heima-
manna
„Það stóð ekki á því um dag-
inn þegar skotárásin var hér um
daginn, að viðbrögð manna
yrðu hörð og um það er að
sjálfsögðu ekkert nema gott að
segja. Þó verður að taka tillit til
þess að lögreglan átti úr vöndu
að ráða og ég vil vekja á því
sérstaka athygli að lögreglan á
ísafirði brást hárrétt við og með
mjög skjótum hætti. Hins vegar
verð ég að segja það sem mína
skoðun, að fréttaflutningur af
þessum atburðum kann að hafa
farið úr böndunum og gerði það
að mínu mati, einkanlega hvað
varðaði fréttaflutning heima-
manna héðan af Flateyri", sagði
sýslumaður. Hann kvaðst hafa
athugað sérstaklega hvað haft
var eftir yfirlögregluþjóni í
Vestfirska fréttablaðinu, í mjög
umtöluðu viðtali, sem rnikið var
vitnað í. Yfirlögregluþjónn
hefði sagt satt og rétt frá, þótt
vissulega væri þar sumt óþægi-
legt.
Vaxandi fíkniefnanotkun
Síðar kom fram í máli hans,
að fíkniefnanotkun á Vest-
fjörðum hefur aukist sam-
kvæmt lögregluskýrslum héð-
an.
Þá flutti Hlynur Snorrason
rannsóknarlögreglumaður at-
hyglisvert og fræðandi erindi
um fíkniefnamál. Hann sagði
frá helstu fíkniefnum sem væru
á markaðnum, sýndi af þeim
myndir og skýrði frá helstu
einkennum sem fylgja neyslu
þessara efna.
Héraðslögregluþjónn hef-
ur ekki fengist
Að loknu erindi Hlyns var
fundargestum gefinn kostur á
að koma með fyrirspumir til
yfirvaldsins. Mátti glöggt
greina að flestum var það mikið
kappsmál að fá héraðslögreglu-
þjón til starfa á Flateyri en það
hefur ekki enn tekist þrátt fyrir
að ítrekað hafi verið auglýst
eftir manni í starfið. I svari
sýslumanns kom fram að um er
að ræða hlutastarf, fastar
greiðslur lágar og búnaður lítill.
Þó er greitt fyrir útköll. Aðal-
málið sé að hafa mann á staðn-
um til aðstoðar ísafjarðarlög-
reglunni og þá ekki síst þegar
heiðin er lokuð og ófært er á
milli staða. „Varanlegasta
lausnin er auðvitað sú að lög-
gæslu á Flateyri verði sinnt frá
Isafirði þegar búið verður að
opna göngin. Þetta segi ég fyrst
og fremst vegna þess að það
felst í því mjög mikil hag-
kvæmni. Okkur er öllum ofar-
lega í huga hvað gæti gerst ef
Breiðadalsheiði er lokuð og
lögreglan kemst ekki hingað
yfir. Þetta vandamál verður úr
sögunni ef það gengur eftir að
göngin verði komin í gagnið í
árslok 1995 eins og lofað hefur
verið“, sagði Olafur Helgi
Kjartansson.
Mikið um ölvunarakstur
„Ástandið hér á Flateyri er
því miður öðruvísi en á hinum
stöðunum hér á Vestfjörðum,
við þurfum ekki annað en nefna
ölvunarakstur. Tilvikin eru
orðin tíu hér á Flateyri í ár
miðað við átján á Isafirði og eitt
á Þingeyri og eitt á Suðureyri,
mér finnst það ansi há tala“,
sagði Jónmundur Kjartansson
yfirlögregluþjónn. „Við vitum
ekki ástæðuna en Flateyri sker
sig úr, það er bara staðreynd að
einhverra hluta vegna eru fleiri
mál hér en á öðrum stöðum. Það
eru fáir einstaklingar sem þess-
um málum tengjast hér og yfir-
leitt ekki heimamenn, auðvitað
koma þeir við sögu en þeir eru
oftast í aukahlutverkum“, sagði
Jónmundur.
Bæði Ólafur Helgi og Jón-
mundur lögðu á það mikla á-
herslu að eiga gott samstarf við
íbúa á Flateyri, hér eftir sem
hingað til.
Kynningarfundur
Hlynur Snorrason rannsóknarlögreglumaður flytur erindi um
fíkniefnamál.
Föstudaginn 11. desember 1992
(annað kvöld)
verður kynningarfundur FBA
(fullorðin börn alkóhólista)
haldinn í Verkalýðshúsinu
(gamla sýslumannshúsinu),
Pólgötu 2, ísafirði.
Fundurinn hefst kl. 21.00.
Gestur kvöldsins verður Jóhann
Örn, starfsmaður SÁÁ.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kaffi á könnunni.
FBA-deildin ísafirði.
\ 'ESTFIRSKÍ L
1 FRÉTTABLAÐIÐ 1
Lækkun eða
niðurfelling
fasteigna-
gjalda
Eftirtaldír aðilar hafa fengið lækkun eða niðurfellingu
fasteignagjöldum á ísafirði: Alþýðuflokksfélag ísafjarðar
Framsóknarflokkurinn, Hjálparsveit skáta, Kiwanis-
klúbburinn Básar, Litli leikklúbburinn, Njála frímúrara-
stúka, Oddfellowreglan á íslandi, Sjálfstæðisfélag Isa-
fjarðar, Skátafélagið Einherjar, Björgunarsveitin Tindar
og Björgunarsveitin Skutull.
Arnarí
bæjarráð
Arnar Kristinsson sat sinn fyrsta fund í bæjarráði ísafjarðar
hinn 23. nóvember sl. Hann korn þar inn sem varamaður hjá
Alþýðuflokknum.
Þessi mynd var tekin í húsakynnum Sálar-
rannsóknarfélags Vestfjarða I húsi Kaupfélags ísfirðinga.
Á henni eru, talið frá vinstri, Margrét Hreiðarsdóttir úr
Hnífsdal, sem túlkaði orð hins enska miðils fyrir þá sem
það vildu, Vilborg Arnarsdóttir úr Bolungarvík, og Diane
Elliott miðill frá Englandi.
Vestfirska
fréttablaðið
á miðilsfundi
Enski miðillinn Diane Elliott var á ísafirði í síðustu viku
á vegum Sálarrannsóknrafélags Vestfjarða. Vestfirska
fréttablaðið notaði tækifærið og fór á miðilsfund í fyrsta
sinn á ævinni, enda er félagið með aðsetur í sama húsi
og á sömu hæð og blaðið, í húsi Kaupfélags ísfirðinga.
Diane Elliott bauð upp á einkatíma, og var allt sem fram
fór tekið upp á segulband. Hver maður fékk svo sína
spólu með sér heim til frekari íhugunar.
Sálarrannsóknarfélag Vestfjarða er óneitanlega nokk-
uð stórt félag, miðað við fólksfjölda hér vestra. Félagar
eru nú 374 á norðanverðum Vestfjarðakjálkanum. Fé-
lagið var upphaflega stofnað um 1970 en síðan endur-
vakið fyrir þremur árum. Formaður er Vilborg Arnarsdóttir
í Bolungarvík.
Að sögn Vilborgar stendur félagið fyrir komu miðla til
Vestfjarða og einnig gengst það fyrir ýmiskonar nám-
skeiðum, svo sem í reiki, sem er forn tíbesk heilunar-
tækni. Hingað hafa komið tvennskonar miðlar á vegum
félagsins, þ.e. sönnunarmiðlar eins og Diane Elliott,
Þórunn Maggý og Þórhallur, og svo miðlar eins og Guð-
björg Sveinsdóttir, sem hefur fræðsluaflið Ásgeir á bak
við sig. „Fræðsluafl fræðir okkur um líf okkar“, segir Vil-
borg, „hver er tilgangur okkar hér á jörðunni, hvers vegna
við erum ólík innbyrðis og hvernig við getum breytt lífi
okkar og lagað það svo að okkur líði betur og eigum
auðveldara með að skilja hvert annað. í nánum tengslum
við félagið eru síðan starfandi bænahringir, þar sem
beðið er fyrir fólki, bæði á ísafirði og í Bolungarvík."
Diane Elliott kom áður til ísafjarðar í janúar á síðasta
vetri, en hún hefur einnig starfað á Akureyri og Akranesi..