Feykir


Feykir - 02.04.1986, Blaðsíða 3

Feykir - 02.04.1986, Blaðsíða 3
7/1986 FEYKIR 3 umsjón: Ingi V. Jónasson Eins og fram kom í síðasta blaði var Bragamálum þröngt skorinn stakkur og náðist ekki að birta alla seinniparta. Rétt er að geta þess að til að seinnipartar nái birtingu verða þeir að hafa borist eigi síðar en á föstudag áður en blaðið kemur út. Einnig skal það tekið fram að seinnipartar verða einungis birtir í næsta tölublaði á eftirþví sem viðeigandi fyrripartar birtust í, þannig að nú verða menn að gerast hraðkvæðir. Þó munum við þiggja allt efni með þökkum, þar sem stefnt er að vísnasafni við Feyki. Mun þarallt efni sem berst blaðinu verða varðveitt, hvort sem það nær birtingu eður ei. Er nú mál að afgreiða að fullu þá seinniparta er borist hafa við fyrriparta í 5. tölublaði Feykis 1986. Þó mín eyðist orka há, ýmsir meiði klafar. Áfram greiðir orkan smá, okkar leið til grafar. S.J.G.K. Þroska skeiði er ég á, alla leið til grafar. Andrés H. Valberg. Við næsta fyrripart barst botn frá 12 ára stúlku og kunnum við henni góðar þakkir fyrir. Vonandi á eftir að berast meira frá henni og öðrum á því aldursskeiði. Oft er heimsins yndi valt, að því skaltu hyggja. Af þeim sökum ei þú skalt, elskuna þína hryggja. Ein 12 ára. Framhleypnina forðast skalt, á framtíð áttu að byggja. S. Skýjaborgir út um allt, eru menn að byggja. Valnastakkur Áður en lengra er haldið er rétt að geta þess að prentvillu- púkinn hefur angrað okkur tvisvar. í síðasta blaði vantaði þá aftast í hendingu eftir F.K. og í vísu eftir Jóhannes Sigurðsson frá Engimýri sem um var spurt, á síðasta orð vísunnar að vera ..minni í stað þinni. Nokkuð hefur borið á því að vísur sem berast séu ekki með réttum bragarhætti t.d. ofstuðlaðar. Öll viðleitni er góðra gjalda verð, og reynum við að koma á framfæri öllu efni sem berst, einkum og sérí lagi vísum ortum um líðandi stund og helstu viðburði dagsins í dag. í síðasta blaði lofaði ég að gera nánari grein fyrir eftirfarandi vísu: Við hér enda verðum grín, vegir skilja að sinni, en haltu á, vinur, heim til þín, hjartans kveðju minni. Tveir ágætis menn, þeir Hannes Pétursson skáld og Árni Rögnvaldsson veittu upplýsingar um höfund hennar og tildrög. Vil ég hér grípa niður í bréf Hannesar er hann hafði spurt Magnús Gíslason frá Vöglum um höfund vísunnar. „Magnús svaraði strax: Jóhannes á Engimýri. Hann bætti því við, að framan af okkar öld hefðu menn í Skagafirði oft gripið til þessarar vísu þegar þeir kvöddust að loknum kveðskap”. Að sögn Árna Rögnvaldssonar hafði Jóhannes Jónsson á Þorleifs- Vídeóhornið. 1. Forced witness. 2. Carmen. 3. Othello. 4. Marbella. 5. Siam I-II. 6. Nighthawks. Söluskálinn Skagaströnd. 1. A view to a kill. 2. A fortunate life. 3. Stick. 4. Hefnd busanna. 5. Funny people I-II. 6. Police Academy II. Nýja Bílasalan. 1. A fortunáte life I-IV. 2. Cut and run. 3. Fox Trap. 4. Gorky park. 5. The big score. 6. Hörkutólið Knox. Bláfellsvídeó. 1. Funny people I-II. 2. A view to a kill. 3. Police Academy I-II. 4. Chishols I-III. 5. Póstflugið. 6. Lassy I-III. Ábær. 1. Perfect. 2. A view to a kill. 3. A burning bed. 4. The man from Snowy river. 5. Funny people I-II. 6. Police Ácademy. Versl. Sigurðar Pálmasonar. 1. A view to a kill. 2. Police Academy I-II. 3. The Emerald Forest. 4. Stick. 5. Prodocol. 6. Oh God you Devil. Essoskálinn Blönduósi 1. A view to a kill. 2. Lögregluskólinn I-II. 3. Stick. 4. Shaker run. 5. Turk 182. 6. The burning bed. bragamál stöðum í Blönduhlíð komið í Engimýri til nafna síns er síðan fylgdi honum á leið. Vísan var ort er þeir félagar skildu við Bakkasel í Öxnadal. Kunnum við Feykismenn sem og aðrir þeim Árna og Hannesi bestu þakkir fyrir upplýsingarnar. Bragamálum hefur borist skýrt og greinargott bréf frá Agli Helgasyni. Agli er meðal annars hugsað til kosninga. Senn eru að koma kosningar. Enn kraftur auðvalds ræður. Nú alþýðunnar eflum far - að því vinnum bræður. Og Egill sendir Valnastakki og bragskælingum sunnan heiða kveðjur. Elliglöp víst af sér sver, enginn sannur drengur. Nú „Valnastakkur” virðist mér, ei viss um rímið lengur. Ferskeytlan nær eyrum enn. Þó ýmsa skorti tíma. Aumast þegar ungir menn ekki nenna að ríma. Hér hagyrðingar hafa völd. Hót ei því ég kvíði. Þó lifum nú á atómöld, er endarím við líði. Þó einhver fari enn á stjá, atóms-hræra-sullið. Látið þið ei ykkur á, óðar sannað bullið. Kristján í Gilhaga sendi Feyki tvær gullfallegar vísur, sem með sanni má segja að séu óður til landsins. Eyðisandar órafirð, ótal myndir geyma. Gulli brydd í grafar kyrrð, glitra fjöllin heima. Auðnar fegurð-undraland. Iss í veldi og sólar, upp sig heíja yfir sand, Eyfirðingahólar. Með fylgir mynd af yrkis- efninu, en ekki er víst að hún prentist nógu vel til að hennar verði notið að fullu. Nú skal bæt’ í andans eld svo okkur taki að hlýna. Nú skal taka hnakk og hest, halda á fornar slóðir. Nú verðið þið að gerast hraðkvæðir lesendur góðir til að botnarnir nái birtingu. Botnar verða að hafa borist eigi síðar en föstudag 13. apríl. Sem fyrr, má senda inn efni skriflega til Feykis Aðalgötu 2 550 Sauðár- króki, eða í síma 95-5757. Vöndum gerð þó vissir menn, vísna herði nöldur. Hún mun verða áfram enn, okkar sverð og skjöldur. Að lokum koma hér tveir fyrripartar fyrir menn að spreyta sig á. f . ' .. Sæluvikugestir Bílasýning á nýjum og notuðum bílum alla sæluvikudagana. Opið frá kl. 13-18 daglega. Nýja bflasalan - Sauðárkróki - Sími 5821 ————- 'J

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.