Feykir - 02.04.1986, Blaðsíða 5
7/1986 FEYKIR 5
á rítuellinum
Ingi V. Jónasson:
Nýtt afl
Nýtt afl er framboðshópur
fólks með misjafnarlífsskoðanir
og ólíkan bakgrunn, jafnt
flokkspólitískan sem annan.
Þessi hópur, sem við fyrstu sýn
virðist all sundurleitur á sér þó
eitt sameiginlegt hagsmunamál.
Við teljum að bjartsýni á framtíð
okkar bæjarfélags hljóti að
byggjast á breyttum viðhorfum
til margra af grundvallar-
atriðum íslenskrar samfélags-
stjórnunar í dag. Við lítum svo á
að málefni hvers einstaks
sveitarfélags sé ekki hægt að
skoða öðruvísi en í ljósi málefna
landsbyggðarinnar í heild. Til að
gæta hagsmuna okkar teljum
við að til séu ýmsar vænlegri
leiðir, en að lúta miðstýringar-
alræði fjórflokkakerfisins, sem
teygir anga sína áþreifanlega inn
í bæjarstjórnir víða um land.
Þetta kerfi fjórflokkanna hefur
tröllriðið pólitísku siðferði al-
mennings síðastliðna áratugi.
Við teljum okkur eiga
hljómgrunn meðal ungra sem
aldinna. Við teljum óæskilegt að
æska þessa lands, sem veðsett
hefur verið fyrir hundruðir
þúsunda á erlendri grund njóti
ekki þeirra sjálfsögðu mann-
réttinda að geta hlutast til um
stjórn á eigin landi og mótun
eigin framtíðar. Gamla flokka-
kerfið er gengið sér til húðar, en
þar gefst mönnum ekki kostur á
þátttöku í mótun samfélagsins
fyrr en þeir eru komnir á miðjan
aldur. Hafa þeir þá gengið í
gegnum eldskím pólitísks „þroska”
í ungliðahreyfingum flokkanna.
Pólitískt uppeldi fjórflokkanna
samanstendui- af þriþættu mennta-
kerfi sem notað er bæði til
uppbyggingar og viðhalds pólitískrar
skoðanamyndunar. Það er að spila
félagsvist og bingó eða gefa
náðarbrauð á kökubasara, flokk-
num til fjáreflingar og fram-
dráttar.
Ergó, menn ná pólitísku
stórbingói og alslemmu. Sá
lúmski áróður hefur t.d. gengið
hér í bæ að kökur sjálfstæðis-
kvenna beri af öðrum, sökum
glæsilegra skreytinga. Aftur eru
kökur framsóknarkvenna heldur
fábrotnar, enda bakaðar úr
Juvel hveiti frá Kaupfélaginu.
Síðan prýða umbúðir hveitis
þess sem alþýðubandalagskvenna-
fylkingin notar í hálfmána sína,
rnyndir af alkunnum uppreisnar-
manni úr hrísmóum Englands.
Ut á þetta virðist hið pólitíska
ATVIN N UMÁLARÁÐSTEFN A
Fellshreppur, Hofshreppur og Hofsóshreppur boða til
Atvinnumálaráðstefnu í Höfðaborg Hofsósi föstudaginn 4. apríl
kl. 14.00.
Málshefjendur verða m.a.:
Álfhildur Ólafsdóttir, ráðunautur
Árni Snæbjörnsson, ráðunautur
Atli Benónínsson, iðnráðgjafi
Einar E. Gíslason, bóndi
Gísli Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Ófeigur Gestsson, sveitarstjóri
Sigfús Jónsson, sveitarstjóri
Stefán Guðmundsson, alþingismaður
og formaður Byggðastofnunar
Teitur Arnlaugsson, framkvæmda-
stjóri
Tumi Tómasson, fiskifræðingur
Ráðstefnustjóri verður Björn Níels-
son, oddviti.
Sveitarstjórnirnar
starf ganga. Kæra borgarar á
Sauðárkróki sig um stjóm þessara
afla á okkar bæjarfélagi. Nýtt
afl, telur brýnna að efla eftir
mætti sjálfsforræði sveitarfélaganna
og landsbyggðarinnar fremur en
þau mál séu í höndum
spekulanta suður í Reykjavík er
hvorki hafa séð hringorm eða
færilús. Við höfum lýst yfir
fullum stuðningi við Samtök um
jafnrétti milli landshluta og
teljum að í samvinnu við
nágrannasveitarfélög okkar þurfum
við að ná fjármagninu heim, svo
við þurfum ekki að gegna
hlutverki tilberans í augum
Reykvíkinga eins og verið hefur
hingað til.
Ingi V. Jónasson
OÐINSVE
NÖTAL
Kjósendur á Sauðárkróki
Margir gera mjög skýran mun á
landsmálapólitík og hins vegar á
málefnum sveitarstjórna. Það skiptir að
sjálfsögðu miklu hverjir eru í framboði en
ekki síður skiptir máli fyrir hverju er barist
og á hvaða hátt markmiðum er náð.
Frambjóðendur A-listans á Sauðár-
króki til bæjarstjórnarkosninga í vortelja
að grundvallarregla í sveitarstjórnar-
málum sé að sem mestur og bestur
árangur náist fyrir það fjármagn sem
bæjarbúar leggja í sameiginlegan sjóð og
einnig að fyrirhyggja og hagsýni verði
látin ráða um framkvæmdir á vegum
bæjarins.
í síðasta blaði Feykis var framboðs-
listinn kynntur og einnig nokkur mál sem
áhersla verður lögð á, í þessu og næstu
tölublöðum Feykis munu enn frekar verða
kynnt mál sem A-listinn leggur áherslu á
að unnið verði að næsta kjörtímabil.
Frambjóðendur A-listans telja nauðsyn-
legt að gæsluvellir verði starfandi, einkum
á sumrin. Til greina kemur að hluti
gæslunnar verði í höndum elstu krakkanna
í bæjarvinnunni.
Frambjóðendur A-listans telja að
aðstoða þurfi einstæða foreldra eftir því
sem frekast er kostur m.a. með því að taka
þátt í greiðslu vegna barnagæslu og koma
á dagvistun. Hluti af þessari aðstoð gæti
verið að aðstoða dagmæður og veita þeim
ýmsa þjónustu t.d. námskeið o.fl.
Frambjóðendur A-listans telja það
skyldu þeirra sem nú eru í blóma lífsins að
leitast við að uppfylla óskir og fullnægja
þörfum þeirra sem aldraðir eru.
Sú kynslóð sem nú er hætt störfum í
þjóðfélaginu á sannarlega skilið að henni
sé þökkuð unnin verk og þeim létt
ævikvöldið. M.a. er hægt að stuðla að því
að aldraðir bæjarbúar geti sem lengst
búið í eigin húsnæði með að auka enn
frekar heimahjúkrun og aðra nauðsyn-
lega þjónustu.
Æska landsins er ekki síður auðlind en
þær auðlindir sem fyrirfinnast í fall-
vötnum, jarðhita eða fiskimiðum umhverfis
landið.
Frambjóðendur A-listans telja að það
fjármagn sem notað ertil uppbyggingar í
skólastarfi og íþrótta- og æskulýðsstarfi
skili sér margfalt síðar með æskufólki sem
betur er tilbúið til að axla ábyrgð
fullorðinsáranna.
Mikil umræða hefir verið um fíkniefna-
vanda unglinga. Öllum ber saman um að
besta vörnin gegn þeim vágesti er að gefa
unglingum kost á góðu og heilbrigðu
tómstundastarfi.
Hér á Sauðárkróki hefir Umf. Tindastóll
lyft Grettistaki í íþróttalífi æskufólks
bæjarins undir styrkri stjórn dugandi
manna. Glæsilegt íþróttahús er risið af
grunni og með tilkomu þess má búastvið
enn glæsilegri árangri íþróttahópa héðan.
Frambjóðendur A-listans munu leita
eftir að enn frekar verði stutt við starf Umf.
Tindastóls, m.a. á þann hátt að aðstoða
félagið við að byggja félagsaðstöðu.
Áætlun verði gerð um frekari fram-
kvæmdir á íþróttavelli og einkum
sundlaug t.d. heita potta og aðstöðu fyrir
fatlaða.
X-A
Frambjóðendur A-listans munu einnig
beita sér fyrir því að önnur félög sem vinna
með og fyrir æsku bæjarins fái þann
stuðning sem kostur er.
Kjóstu Alþýðuflokkinn i vor og þá verður þú þátttakandi í
öflugri sókn og uppbyggingu á Sauðárkróki
Alþýðuflokkurinn kynnir að
þessu sinni stefnu sína í
atvinnumálum og skólamálum.
Atvinnumál
Frambjóðendur A-listans munu standa að og beita
sér fyrir eftirfarandi meginatriðum:
: Tryggja rekstur Útgerðarfélags Skagfirðinga og
annarra þeirra fyrirtækja sem hafa grundvallarþýðingu í
afkomu bæjarbúa og bærinn er eigandi að.
: Hafa jafnan tilbúnar lóðir fyrir atvinnufyrirtæki.
Athugaðar verði leiðir til ívilnunar á gjöldum eða
samningum um greiðslutíma á gjöldum til bæjarins
vegna stofnunar nýrra fyrirtækja.
: Gera sérstakt átak í að vekja athygli á Sauðárkróki sem
vænlegum stað fyrir ný iðnfyrirtæki.
: Vinna skipulega og markvisst að undirbúningi
stofnunar nýs meðalstórs iðnfyrirtækis.
: Vinna sérstaklega að því að komið verði upp
ýmiskonar smærri iðn- og þjónustufyrirtækjum.
: Fylgst verði með þróun atvinnulífsins, og gerðar
ráðstafanir til að hamla gegn atvinnuleysi.
Skólamál
Frambjóðendur A-listans munu leggja áherslu á:
að áfram verði haldið uppbyggingu Fjölbrautaskólans á
Sauðárkróki.
að frágangi heimavistar F.á S. verði hraðað.
að hafist verði handa um að byggja bóknámshús F.á S.
að Grunnskólinn verði efldur og hann búinn nútíma
kennslugögnum (t.d. bókasafn) og húsnæði (t.d.
eðlisfræðistofa).
að Tónlistaskólinn verði efldur.