Feykir


Feykir - 02.04.1986, Blaðsíða 8

Feykir - 02.04.1986, Blaðsíða 8
8 FEYKIR 7/1986 Opin vimiuvika hjá F.á S. Sæluvikudagana 4.-13. apríl verður mikið um að vera hjá fjölbrautarskólanemendum á Sauðárkróki. Halda á svo- kallaða opna starfsviku í skólanum. I stað þess að rýna í bækurnar ætla menn að standa upp, líta í kringum sig og tengja starf skólans umhverfinu. Reynt verður eftir megni að koma vinnu nemenda á framfæri og kynna hana. Til þess verða notaðir tveir fjölmiðlar sem starfa munu í vikunni. Þar er um að ræða dagblað sem dreift verður í öll hús á Sauðárkróki án endurgjalds. Einnig verður rekin útvarpsstöð frá miðvikudegi 9. apríl til 13. apríl. Vikan hefst á föstudag 4. apríl, á forsæludag Sæluviku Skagfirðinga. Þá munu koma um 100 manns frá Mennta- skólanum á Akureyri og etja kappi við fjölbrautaskólanemendur í ýmsum íþróttum. Tungumálanemendur hafa unnið að þýðingum á bókmennta- perlum þjóðtungna þeirra, er numdar eru við Fjölbrauta- skólann, og hyggjast standa að kynningu á viðkomandi landi og þjóð. Verður það efni flutt í útvarpinu, ásamt fleira fræðslu- efni í léttum dúr. Nemendur ætla að koma sínu starfi á framfæri eftir ýmsum öðrum leiðum en í gegnum dagblað og útvarp. í ljósi þess að skólinn er fyrir allt Norðurland vestra munu nemendur fara með kynningu í alla grunnskóla á svæðinu sem útskrifa upp úr níunda bekk. Kynnt verður námsefni það er skólinn hefur upp á að bjóða og félagslíf nemenda. Þá munu verknáms- og iðnnámsnemar kynna sér störf ýmissa fyrirtækja. Heima fyrir, í skólanum sjálfum mun hópur starfa að andlitslyftingu á útliti skólahúsanna, jafnt að innan sem utan og er ekki Verknámshús Fjölhrautaskólans. Má þar nefna knattspyrnu, körfuknattleik, frjálsar íþróttir, sund og ræðukeppni. Verða viðburðir þessir öllum opnir er hug hafa á. Hin eiginlega starfsvika mun síðan standa yfir frá mánudegi til föstudags. Nemendur hafa skipað sér í ýmsa hópa er þeir munu vinna í. Fyrripart vikunnar munu hóparnir vinna úr þeim verkefnum er verið hafa í undirbúningi. Mörg þeirra eru tengd náminu beint eða óbeint. vanþörf á. Af menningarmálum er nóg að taka og hljóta uppákomur Fásara að krydda Sæluvikuna til muna. Fengin verða nokkur af yngri skáldum okkar Islendinga til að hafa kynningu á verkum sínum, og kynning á skagfirskum rithöfundum og ljóðskáldum er í deiglunni. Tónlistarmenn innan veggja skólans ætla heldur ekki að láta sitt eftir liggja og flytja lifandi tónlist við öll möguleg og ómöguleg Breyttir Hitaveitureikningar Hitaveita Sauðárkróks tekur nú í notkun nýtt innheimtukerfi. Helstu breytingar því fylgjandi eru: 1. Breytt útlit reikninga. 2. Gleggri upplýsingar um notkunar- tíma, gjalddaga, eindaga og dráttarvexti. 3. Reikningana má greiða í Búnaðarbankanum og Sam- vinnubankanum á Sauðárkróki. 4. Hafi greiðsla ekki verið innt af hendi fyrir eindaga, reiknast dráttarvextir sjálfkrafa og koma til innheimtu á næsta reikningi á eftir. 5. Þeir sem vilja að bankarnir annist greiðslu hitaveitureikn- inganna með millifærslu og hafa ekki gengið frá slíku fyrirkomulagi áður, þurfa að skrifa undir beiðni þess efnis, að hitaveitureikningurinn skuli sendur bankanum og úttekt af bankareikningi sé heimil. 6. Innheimt verður á tveggja mánaða fresti, eins og verið hefur. Hitaveita Sauöárkróks Tilkynningar um bilanirog beiðn- ir um breytta innmælingu skal tilkynna í síma 5257. Skrifstofa veitu- stjóra er að Borgarteigi 9-15 Áhaldahús, sími 5257, þósthólf í tækifæri, þannig að fólk ætti að geta skrúfað niður í glym- skröttum heima í stofu og stillt á rás Fás vilji .það hlýða á hvað ungt fólk með ferskar hugmyndir hefur fram að færa. Og ekki er allt upp talið enn, því komið verður upp svo kölluðu „Speakers corner” líkt því sem er við Hyde park í Lundúnum. Gefst þar mönnum kostur á að koma með kassa eða stól svo þeir geti hafið sig yfir mannfjöldann og sagt það sem þeim á hjarta liggur, sjálfum sér og öðrum til ánægju og uppfræðslu. Málæði og handapat mun þó verða víðar því áformaður er fundur um skólamál með forsvarsmönnum stjórnmálaflokkanna hér í bæ. Til að athygli umheimsins nái að verða vakin, verður sett heimsmet af nemendum Fjöl- brautaskólans, en hvað það verður mun ekki látið hér uppi. Loks mun Leikhópur Fjöl- brautaskólans standa fyrir tveim sýningum í Sæluviku á leikritinu ,,Sjö stelpum”. Getur nánar að líta um það í ýtarlegri grein á öðrum stað hér í blaðinu. Til að allt þetta starf varðveitist víðar en í minningum þeirra sem að því stóðu mun myndbandahópur og ljósmynda- hópur verða á þönum við að festa það sem fram fer á filmu til varðveislu. Opin vika sem þessi verður vonandi að árlegum viðburði og fer vel á því að láta slíkt bera upp á sama tíma og Sæluviku. Með því er fengin ágætis viðbót í Sæluvikuna sem allir ættu að fagna. Frá aðalfundi M.O.R.F.Í.S. Aðalfundur M.O.R.F.I.S. Aðalfundur M.O.R.F.Í.S. var haldinn á Sauðárkróki í boði nemendafélags íjölbrautaskólans laugardaginn 15. mars. Fyrirþá sem ekki vita er þarna um að ræða „Mælsku- og rökræðu- keppni framhaldsskóla á Islandi”. Fundinn sátu fulltrúar flestra framhaldsskóla á íslandi, rúm- lega 30 manns. Hulda Gústafs- dóttir flutti skýrslu um starf liðins vetrar fyrir hönd fráfarandi stjórnar. Kom fram í máli hennar, að upp kom deila vegna keppni Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Fjölbrautaskólans á Akranesi. Snérist deilan um meint meiðyrði þejrra Breið- hyltinga. Ákvaðstjóm M.O.R.F.Í.S. að víkja viðkomandi ræðumanni úr keppninni en Akurnesingar voru ekki ánægðir og hafa nú ákveðið að slíta öllu sambandi við M.O.R.F.Í.S. um ókomna tíð. Furða menn sig á því að stjórn nemendafélags sem ein- ungis situr einn vetur geti tekið sér slíkt vald. Að lokum fordæmdi Hulda frekju þá og yfirgang sem sjónvarpsmenn sýndu við úrslitakeppnina í Háskólabíói þann 5. mars sl. og er vonandi að slíkt endurtaki sig ekki. Gerðar voru umtalsverðar lagabreytingar er afmarka mun betur en áður starfssvið stjómar- innar. Að lokum var kosin ný stjóm, þ.á.m. einn úr Fjölbrauta- skólanum á Sauðárkróki. Sem áður sagði bauð nemenda- félag Fjölbrautaskólans á Sauðár- króki til þessa fundar og sá öllum fundargestum fyrir fæði og gistingu þeim að kostnaðar- lausu. Var almenn ánægja með framkvæmd fundarins. Minning: Ólafur Gunnar Ragnarsson Hátúní Skagafirði Fæddur 16. des. 1970 Dáinn 27. febr. 1986 * Tignarsjóli himna hár, heyr mitt kvak frá lægsta inni, þó að ég sé smærri en smár, og smæðar minnar sárt til finni. Græddu þegna þinna sár, þrautastundum svo að linni, svo ei streymi sorgartár, svo að birti í veröldinni. Helgi Gíslason Menn setti hljóða þegar fréttist um hið sviplega slys sem hinn ungi drengur varð fyrir föstudaginn 21. febr. sl. En hann lést á Borgarspítalanum í Reykjavík, fimmtudaginn 27. febr. sl. Það er okkur hulin ráðgáta þegar svo ungur og efnilegur drengur er burt kallaður með svo sviplegum hætti og hér varð. Foreldrar Olafs heitins eru María Valgarðsdóttir og Ragnar Gunnlaugsson bóndi Hátúni, Skagafirði. Þar ólst hann upp, ásamt 3 systkinum og í skjóli afa og ömmu. Allir þeir sem fæðast inn í þennan heim geta eigi vikist undan því að dauðinn kemur í heimsókn fyrr eða síðar. Það er svo óráðin gáta hversu lengi hver og einn fær að lifa í þessum heimi. Dauðinn getur verið velkominn þeim sem lifað hafa langan dag, eiga við heilsuleysi að stríða og eru þrotnir kröftum og heilsu. En þegar dauðinn kemur með svo sviplegum hætti og hér varð, skiljum við ekki. Já við skiljum ekki þegar ungur drengur í blóma lífsins er burtu kallaður. Það hefur stundum verið sagt að þeirsem Guðirnir elska deyi ungir. Eg var við guðþjónustu í Glaumbæjarkirkju á nýársdag sl. og skammt frá mér sat þessi frændi minn er hér er kvaddur. Það rifjast upp á þessum döpru dögum að mér varð hugsað þá er ég horfði á þennan unga pilt í kirkjunni að það væri gleðiefni hvað hann væri hneigður til búskapar og myndi feta ötullega í fótspor feðra sinna í Hátúni. Þeir hafa gert jörðina að einu stærsta og myndarlegasta býli í Skagafirði, landinu öllu og íslenskri bændastétt til sóma. En vegir Guðs em órannsakan- legir, enginn veit hvenær kallið kemur eða hver verður næstur, verður það ég eða verður það þú lesandi góður. Allt frá því ég man fyrst eftir mér, já reyndar löngu fyrr, hefur staðið traustur frænda- garður í Hátúni mér og mínu ættfólki til halds og trausts. Þar óx úr grasi stór og mannvænlegur barnahópur hjá þeim hjónum Steinunni Sigurjóns- dóttur og Jónasi Gunnarssyni, langömmu og langafa Olafs heitins. Blessuð sé minning þeirra hjóna. Að lokum flyt ég Ragnari og fjölskyldu, Gunnlaugi og fjöl- skyldu, Valgarði og fjölskyldu svo og öðrum ættingjum og vinum, innilegar samúðar- kveðjur frá mér og fjölskyldu minni og bið algóðan Guð að styrkja þau öll í þeirra miklu sorg. Blessuð sé minningin góðan dreng. um Aldrei er svo bjart yfir öðlingsmanni, að eigi geti syrt jafn sviplega og nú. Aldrei er svo svart yfir sorgarranni, að eigi geti birt fyrir eilíf trú. (M.J.) Sigurður Haraldsson

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.