Feykir


Feykir - 02.04.1986, Blaðsíða 4

Feykir - 02.04.1986, Blaðsíða 4
4 FEYKIR 7/1986 á ritvellinum Slys og slysavamir Hörmulegt slys á Aðalgötunni nú nýverið leiðir ósjálfrátt hugann að því hvað hægt sé að gera til varnar slíkum atburðum. Og ekki síður hvarslysagildrur eru. Við Hótel Mælifell eru aðstæður þannig, að einungis rúmlega gangstéttarbreidd er frá dyrum útá götu. Oft eru fjömennar samkomur í hótelinu bæði barna og fullorðinna sem lýkur með því að fólkið þyrpist úr húsinu og útá götu. En Aðalgatan er mikil umferðar- gata sem kunnugt er. Víða hefir maður séð aðstæður sem þessar og þá hefir sumstaðar sést að sett er grindverk viðgangstéttarbrún. Er það til að hindra að anað sé beint útá götu. Væri ekki e.t.v. þörf á því hér? Gildir hér raunar einu hvort fullorðnir eru að koma af mannfagnaði eða börn, því að þeir gá stundum ekki að sér frekar en börnin. Önnur slysagildra er augljós. Og það sem verra er, að hún er beint af mannavöldum. Seint í sumar, eða í haust var komið bannmerki við því að aka vestur Ránarstíg frá Hólavegi, inná Skagfirðingabraut. Þetta leiddi til stóraukinnar umferðar um Freyjugötu. Sú gata er mjó og ber ekki mikla umferð. Það sem einkum skapar hættu þarna, er að stoppistaður skólarútunnar er á þessari þröngu götu. Undan hliðinu inná skólalóðina er þó grind- verk á gangstéttarbrún. Þarria safnast fjöldi barna kl. 12 að bíða eftir rútunni og um kl. 1 eftir hádegi fara á þessum stað mörg börn úr skólarútunni og úr einkabílum á leið í skólann. Þó að enn haFi ekki orðið þarna siys er augljóst að slysahættan er mikil. Mikið yrði til bóta að stoppistöð rútunnar yrði færð, t.d. þannig að aka inná skólalóðina að austan, frá Sæmundargötu. Eða opna leið fyrir rútuna milli Freyjugötu og Sæmundar- götu, meðfram skólahúsinu að norðan. Jafnframt yrði Ránar- stígur opnaður að nýju til vesturs frá Hólavegi að Skagfirðingabraut, til að létta á umferðinni á Freyjugötunni. Jón Karlsson. Félag áhugaslökkviliðsmanna „Átak í þágu aldraðra” í lok síðasta árs fór Öldrunar- nefnd Skagafjarðar fram á það við Lionsklúbb Sauðárkróks og Lionsklúbbinn Höfða á Hofsósi, að þeir sameinuðust um loka- átak til að hægt yrði að taka í notkun nýja álmu fyrir aldraða við Sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Lionsklúbburinn á Sauðárkróki baðst undan almennri fjár- söfnun en lýsti sig reiðubúinn til að safna fyrir sjúkrarúmum ásamt fylgibúnaði í hina nýju álmu, samtals 25 rúm. Að sögn Rraga Haraldssonar formanns fjáröflunamefndar Lions- klúbbs Sauðárkróks var ákveðið að leita bréflega til um 100 fyrirtækja, verslana og þjónustu- aðila á Sauðárkróki og í vestanverðum Skagafirði um framlög. Bragi sagði að undir- tektir hefðu verið mjög góðar, hæsta framlag fyrirtækis hefði t.d. numið 162.000 kr. Þá hefðu og verið opnaðir bankareikningar til að gefa einstaklingum kost á að leggja sitt að mörkum. Þaðan hefði komið hæst framlag, þegar einn einstaklingur gaf 250.000 kr. Þá hafa ýmiss félagasamtök lagt fram fjármagn í söfnunina. Lionsklúbburinn Höfði á Hofsósi ákvað hins vegar að v * ■PW'rn? Sjúkrarúmin sem Lionsmenn hafa safnað fyrir. gangast fyrir almennri fjár- söfnun að sögn Guðna Óskars- sonar formanns klúbbsins, og hafa þeir nú afhent 50.000 kr. í söfnunina. Bragi Haraldsson sagði að kostnaður við hvert sjúkrarúm væri liðlega 80.000 kr. og heildarupphæð því rúmar 2 millj. króna. Nú þegar hafa safnast andvirði 20 rúma, en ætlun Lionsmanna er að halda bankareikningum áfram opnum fyrir framlögum. Sagðist Bragi bjartsýnn á að það tækist, að safna fyrir því sem upp á vantaði. Kosningar Undirbúningur fyrir kosn- ingarnar í vor er mis langt á veg kominn hér í kjör- dæminu. Á stærri þéttbýlis- stöðunum, Sauðárkróki og Siglufirði, eru nokkuð margir framboðshópar búnir að kunngjöra sína frambjóðendur, en engir á smærri stöðunum. Verða nú birt nöfn efstu frambjóðenda á þeim listum sem lagðir hafa verið fram. Sauðárkrókur: Alþýðuflokkur 1. Björn Sigurbjörnsson, skóla- stjóri. 2. Jón Karlsson, form. verka- mannafél. Fram. 3. Pétur Valdimarsson, kaup- maður. 4. Sigmundur Pálsson, hús- vörður. 5. Helga Hannesdóttir, verslunar- maður. Sjálfstæðisflokkur 1. Þorbjörn Árnason, fram- kvæmdastjóri. 2. Aðalheiður Arnórsdóttir, snyrtifræðingur. 3. Knútur Aadnegard, tré- smiður. 4. Þorgeir Ingi Njálsson, fulltrúi. 5. Elísabet Kemp, hjúkrunar- fræðingur. Siglufjörður: Alþýðubandalagið 1. Sigurður Hlöðversson, tækni- fræðingur. 2. Brynja Svavarsdóttir, hús- móðir. 3. Hafþór Rósmundsson, starfsm. lífeyrissj. verkal.fél. á NV. 4. Svava Baldvinsdóttir, iðn- verkakona. 5. Þormóður Birgisson, sjó- maður. Hinn 8. mars sl. var stofnað að Hreðavatni „Félag áhuga- slökkviliðsmanna á íslandi”. Voru mættir slökkviliðsmenn víðsvegar af landinu. Tilgangurinn með stofnun félagsins er að vinna að bættum launamálum, tryggingarmálum og allri aðstöðu fyrir slökkviliðs- menn. Ýmsar tillögur voru lagðar fram á fundinum og voru eftirfarandi ályktanir samþykktar: Að allir slökkviliðsmenn verði tryggðir gegn slysum í starfi fyrir eigi lægri upphæð en 2 millj.kr. miðað við fulla örorku eða dauða, og að greiddar verði eigi lægri dagpeningar en kr. 12.000 á viku í allt að 40 vikur. Að félagsmálaráðherra vinni að því, að stofnsettur verði sérstakur sjóður til eflingar brunavarna í landinu. Fundar- menn töldu eðlilegt, að aflað verði tekna í þennan sjóð með því að leggja 1% gjald á allar brunatryggingar í landinu. Að stjórn félagsins hefji nú þegar viðræður við samtök sveitarfélaga í landinu og víð einstök sveitarfélög í þeim tilgangi, að vinna að og samræma launamál áhugaslökkvi- liðsmanna. Þar sem sveitarfélög telja 1000 íbúa eða fleiri, verði skipaður slökkviliðsstjóri í fullt starf og hafi hann jafnframt á hendi eldvarnareftirlit í um- dæminu. Stjórn félagsins skipa: Formaður: Björn Sverrisson, Sauðárkróki. Ritari: Bjarni Þorsteinsson, Borgarnesi. Gjaldkeri: Símon Aðalsteins- son, Bæjarsveit. Og til vara: Guðjón Jónsson, Suðureyri og Sævar Benediktsson, Hólmavík. Stjórn Félags áhugaslökkvi- liðsmanna á Islandi. Fréttatilkynning Ferðaskrifstofan Terra Sunnudaginn 6. apríl n.k. kl. 15.00 verður ferðakynning á vegum Ferðaskrifstofunnar Terru, á Hótel Mælifelli. Sýnt verður myndband frá ítölsku Rivierunni og einnig munu tveir starfsmenn Terru kynna glæsilegt úrval ferða, þar sem m.a. er um að ræða, seglbátaferð um Miðjarðarhaf, söngnámskeið á Ítalíu og sérstaka ferð fyrir ellilífeyris- þega, þar sem hjúkrunarfræðingur verður með til halds og trausts. Skagfirðingar, komiðog kynnið ykkur eitt ódýrasta og fjöl- breyttasta úrval sumarleyfis- ferða sem kostur er á. Umboðsmenn Ferðaskrifstof- unnar Terru á Norðurlandi vestra eru: A Sauðárkróki: Björn Björns- son Öldustíg 4, sími 5254. A Blönduósi: Sveinn Kjartans- son Brekkubyggð 30, sími 4437. A Hvammstanga: Flemming Jessen Kirkjuvegi 8, sími 1368. Fréttatilkynning Sr. Hjálmar Jónsson formaður Lionsklúbbsins vildi í þessu tilefni koma á framfæri hjartans þökkum til allra þeirra er tekið hefðu þátt í söfnuninni eða lagt henni lið, en ætlun klúbbsins er að veita þeim sem lögðu fram fé í söfnunina sérstaka viðurkenningu. Sr. Hjálmarsagðiaðlokum: ,,Þá vil ég leyfa mér að minna á að við tókum þetta verkefni að okkur með mikilli ánægju, því klúbburinn er farvegur fyrir hjálpsemi og til að mynda samstöðu um fram- fararmál á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins”. (jgj) Listi óháðra (K-listi) 1. Hörður Ingimarsson, kaup- maður. 2. Sverrir Valgarðsson, húsa- smíðameistari. 3. Hulda Jónsdóttir, húsmóðir. 4. Steinunn E. Friðþjófsdóttir, húsmóðir. 5. Jón Jósafatsson, verkstjóri. Hljómsveitin Fást á göngu eins og Bítlarnir forðum á Abbey Road. Ékkert svartnættiskukl hjá Fást Hljómsveitin Fást hefur ný- verið gefið út snældu er hefur að geyma 8 lög eftir þá Magnús Helgason og Eirík Hilmisson. Fyrir tveim árum kom út snælda með lögum þeirra félaga, Magnúsar og Eiríks og er hún nú með öllu ófáanleg. Snælda sú er nú er komin út nefnist Svartnættiskukl. Er hún tekin upp í Stúdíói Mjöt í Reykjavík. Upptökumaður var Bergsteinn Björgúlfsson. Segja má að útkoman á snældu þessari sé kraftaverk þar sem hún er einungis tekin upp á 40 tímum, sem er meðal vinnslutími á einu lagi. Ef litið er á hvert lag fyrir sig og það skoðað finnast gallar víða, sem aðallega virðast stafa af tímaleysi. Á hlið A. er eftirtalin lög að finna. Surrender: Gott lag í anda Brians Ferry með Bowie töktum. Vel unnið lag með góðri melódíu og ber af öðrum á snældunni. Waiting: Hressilegt danslag en slæmt „faiht” í endinn. Solution in a nighttime: Mikið vantar á að þetta lag sé fullunnið. Dusty days: Ágætis lag með frábærum söng Magnúsar. Hlið B. stendur þeirri fyrri nokkuð að baki í gæðum. Vor: Kraftmikið og gott lag en útsetningu er nokkuð ábótavant. Mambó: Illa mixaður HLH poppari. Out of control: Heavy metal rokkari í ætt við Skinnard. Magnús stendur sig vel í söng nema helst í þessu lagi. Eyjólfur á Melum: Skemmtilegt partýlag fullt af húmor. Hljómsveitina Fást skipa: Eiríkur Hilmisson, gítar og raddir, Magnús Helgason söngur, Sólmundur Friðriksson bassi, Guðrún Oddsdóttir söngur og raddir, Kristján Baldvinsson trommur og Ægir Ásbjörnsson hljómborð. Aðstoð veittu þeir Sigurður Ásbjömsson og Magnús Hávarðar- son. í heild er snældan mjög góð og hvet ég sem flesta til að tryggja sér eintak í tíma. Og síðan syngjum við; Eyjólfur á Melum var algjör kettlingur í sjómann..... Ingi V. Jónasson

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.