Feykir - 02.04.1986, Page 10
10 FEYKIR 7/1986
Tindastóll á þröskuldi
fyrstu deildar
Nýtt eldhús í G.S.S.
Um áramót var tekið í notkun nýtt og glæsilegt skólaeldhús í
Grunnskóla Sauðárkróks. Með því breytist aðstaða til náms
í heimilisstörfum mikið til batnaðar. Stunda allirbekkirefra
stigs Grunnskólans nám í heimilisstörfum. Kennari þar er
Anna Rósa Skarphéðinsdóttir.
Tískusýning á skemmtuninni.
r
Arshátíð Gagnfræðaskólans
á Sauðárkróki
Nú líður að lokum úrslita-
keppni annarrar deildar. Þegar
tveim leikjum er ólokið eru
Tindastóll og Skallagrimur jöfn
að stigum með sex stig. Snæfell
er einnig með sex stig, en hefur
lokið sínum leikjum. Tindastóll
á einmitt báða þessa leiki sem
eftir eru, gegn Skallagrími í
Borgarnesi n.k. föstudagskvöld
og gegn HSK á Selfossi á
sunnudaginn. Má því reikna
með að leikurinn gegn Skalla-
grími verði úrslitaleikur keppninnar,
þar sem HSK er nánast úr
myndinni. Tindastóll hefur
þrívegis lagt Skallagrím í vetur.
I næst síðustu viku lék
Tindastóll þrjá leiki í keppninni,
alla hér á Krók. Fyrsta gegn
HSK og lenti þá í miklu basli.
Höfðu Skarphéðinsmenn yfir
lengst af og leiddu 42-35 í
leikhléi. Það var svo ekki fyrr en
á síðustu sjö mínútunum sem
heimamenn náðu yfirhöndinni
er þeir skoruðu 28 stig gegn 4
stigum gestanna. Lokatölur 90-
73 Tindastól i vil. Eyjólfur
Sverrisson var drýgstur í
skorinu, gerði 28 stig.
Síðan kom Snæfell úr Stykkis-
hólmi í heimsókn og lék tvo
leiki. I þeim fyrri var um
öruggan sigur Tindastóls að
ræða 87-78 og höfðu yfir 51-37 í
leikhléi. Heimamenn voru yfir
allan tímann, átta til fimmtán
stigum. Tindastólsliðið lék þennan
leik vel, þó sér í lagi Eiríkur
Sverrisson í seinni hálfleiknum
og skoraði hann alls 37 stig í
leiknum. Eyjólfur bróðir hans
gerði 16.
Strákarnir voru svo yfir lengi
vel í seinni leiknum og höfðu
forystu 37-29 í hálfleik. En
leikur þeirra var mjög sveiflu-
kenndur, nokkrir slæmir kaflar.
Uppúr miðjum seinni háltleik
komst hið reynslumikla lið
Snæfells yfir og sigraði í leiknum
69-61. Ríkarður Hrafnkelsson
þjálfari Snæfells var Tindastóls-
mönnum erfiður ljár í þúfu í
þessum leik sem hinum fyrri,
skoraði 37 stig í seinni og 32 í
fyrri leiknum. Eiríkur skoraði
mest fyrir Stólinn í þessum leik
24 og Kári Mar gerði 16. Engu
var líkara en Tindastólsmenn
væru of öruggir með sig,
einbeitninguna og ögunina
virtist oft vanta. Kannski er
komin einhver þreyta í liðið,
æfingatíminn er búinn að vera
langur, en of fáir leikir. En við á
Feyki erum sannfærðir að
Tindastóll endar keppnistíma-
bilið með góðum leikjum og
sigrum, það hafa þeir svo
sannarlega burði til. Við hlökkum
til að fylgjast með þeim í fyrstu
deildinni næsta vetur, þar á liðið
heima.
------íþrottir-
umsjón:
Þórhallur
Ásmundsson
Hársbreidd frá
r
Islandsmeistaratitli
Þriðji flokkur Tindastóls
hefur aldeilis gert það gott í
vetur. Liðið sigraði fyrir nokkru
í b-grúbbu og vann sig upp í a-
grúbbuna, sem þýddi úrsita-
keppni í byrjun síðasta mánaðar.
Þar stóð liðið sig mjög vel sigraði
IR með þrem stigum og Val með
29 stigum, en tapaði fyrir ÍBK
með sjö stigum, en það varfyrsti
leikur keppninnar. Keflvíkingar
urðu Islandsmeistarar, en Tinda-
stóll í öðru sæti. Voru strákarnir
mjög svekktir yfir þessu tapi
gegn Keílvíkingum og að missa
af íslandsmeistaratitlinum, en
strákarnir mega vel við una,
frammistaðan var góð og þeirra
er framtíðin í tilvonandi úrvals-
deildarliði Tindastóls. I liðinu
eru: Eyjólfur Sverrisson, Haraldur
Leifsson, Karl Jónsson, Stefán
Reynisson, Agúst Eiðsson, Sverrir
Sverrisson, Birgir Valgarðsson,
Hjalti Amason, Kristinn Baldvins-
son og Héðinn Sigurðsson.
Hin árlega árshátíð Gagn-
fræðaskólans á Sauðárkróki var
haldin 21. mars sl. í Bifröst. Var
þar margt sér til skemmtunar
gert; m.a. sýndir kaflar úr
Saumastofunni eftir Kjartan
Ragnarsson, sýnt frumsamið
leikrit, gert grín að kennurunum,
eftirhermur tróðu upp, og
haldin var fegurðarsamkeppni.
Aðsókn var mjög góð og
undirtektir frábærar. Hetja
kvöldsins var án efa Hjalti
Arnason, sem dansaði og söng
af mikilli innlifun.
Eftir árshátíðina héldu nemendur
skólaball í félagsaðstöðu sinni,
Grettisbæli og spilaði hljóm-
sveitin Metan fyrir dansi.
(óp)
Mamnia er biluð
Börn segja oft skemmtilega
hluti og má hér ein slík saga
fljóta með. Bíllinn á bænum
var bilaður með brotinn
gírkassa. Síðan veiktist konan
og lagðist í rúmið. Ungur
sonur hennar heyrðist segja
leikfélaga sínum frá veikindunum
með þessum orðum: „Mamma
er biluð. Pabbi er búinn að
brjóta í henni gírkassann”.
Rökkurkórinn framh.
þrá í brjósti til að prófa
hæfileika sína á einu eða öðru
sviði.
Við skulum ekki gleyma því
að iðkun fjöldans og þátttaka, á
hvaða sviði sem er, er jarð-
vegurinn, sem snillingarnir,
afburóafólkið vex upp úr, og
kannske er það einmitt búand-
fólksins reynsla við ræktun
lands og lýðs, sem gefur því
dugnaðinn og þrautseigjuna, -
og gleðina, til að afreka slíkt,
sem Rökkurkórinn ber vitni um.
Einar M. Albertsson.
ITALSKA RIVIERAN
FRÁ KR. 23.000.- I 3 VIKUR
k BERID SAMAN OKKAR VERÐ OG ANNARRA
jstAHP
Glæsileika Rivierunnar hafa aðrrrk
staóir reynt að næla sér I meö þvl aö^
fá nafnió aö láni aö sjálfsögöu til“
þess aó.villa fólki sýn. En sam-
kvæmt Encyelopedia Brittanica er|
hin eina sanna Riviera ströndin milli
La Spezia á Ítalíu og Cannes LFrakk-
landi. Þar höfum viö þaö.
Verö frá kr. 23.000 i 3 vikur.
ÆVINTÝRA SIGLING
Gott tækifæri fyrir hresst fólk á öll-
um aldri og áhugafólk um siglingar.
19 dagar um borö I nýjum 32-36 feta
seglbátum (sem eru búnir öllum
þægindum) og siöan svifió seglum
þöndum til Korsiku — Sardiníu —
Elbu og aftur til Finale Ligure.
ITALSKA RIVIERAN("yt^^~ ! GARDAVATN
..ppStl-7
%
Hió undurfagra Gardavatn er staóurl
sem sló i gegn I fyrra. Kjörinn staóurl
fyrir þá sem vilja geta treyst því aöj
fá gott veður þegar þeir dvelja meöl
fjölskyldunni I sumarhúsi. Fyrirl
yngri kynslóóina, Gardaland einnl
stærsti skemrntigaröur ítallu og|
Caneva vatnsleikvöllurinn. '
Verö ffá kr. 28.200.
LUXUSLIF A SJÓ
Meö hinu glæsilega griska skemmti-
feröaskipi La Palma. Siglt frá Fen-
eyjum suóur Adriahaf. Viökomu-
staöir eru Aþena, Rhodos, Krit,|
| Korfu og Dubrovnik. Um boró erl
i m.a. næturklúbbur, diskótek, spila-|
viti, sundlaug o.m.m.fl.
Veró frá kr. 48.500.
RIMINI
Ströndin á Rimini er ein af þeimj
allra bestu. Og skemmtanallfiö ér
viö allra hæfi. Dansstaöir meö lif-
andi tónlist eru vlöa og urmull af
diskótekum. Þeir sem ekki dansa
fara I tivolí, sirkus eóa á hljómleika.
Skoóunarferöir til Rómar, Flórens
og frlrlkisins San Marinó, þar sem:
allt er tollfrjálst.
Verö frá kr. 24.000 3 vikur.
SIKILEY
Sigling og dvöl I sérflokki. Gist á|
Hótel Silvanetta Palace I Milazzo.
Öll herbergi meö loftkælingu. Frá-
bær aöstaöa, einkaströnd, sund-
laug, tennisvellir, diskótek, sjóskiöi,
árabátar, hraóbátar, o.fl. o.fl. ís-
lenskur fararstjóri. Fullt fæöi.
Veró frá kr. 47.800 í 3 vikur.
.FERÐASKRIFSTOFAN,
lerra
SIMI 29740
OG 62 1740-
JGAVEGI 28, 101 REYKJAVIK.
tPIETRA LIGURE
fALASSIO
ÞAÐ ER VISSARA AÐ LÁTA BÓKA SIG SEM FYRST
ÞVÍ ÞESSAR FERÐIR FARA FLJÓTT Á ÞESSU VERÐI.
STAÐFESTINGARGJAl_D MA AÐ SJALFSOGÐU GREÍÐA MEÐ VISA EÐA EURO