Feykir


Feykir - 25.06.1986, Blaðsíða 3

Feykir - 25.06.1986, Blaðsíða 3
13/1986 FEYKIR 3 spurt og spjallaö Þórður Þórðarson bæjarstjóri inga við landeigendur um árangurinn lætur ekki á sér Nú ert þú að hœtta sem bœjarstjóri á Sauðárkróki og hvað er framundan? „Ætli ég byrji nú ekki á því að taka mér gott frí áður en ég fer að snúa mér í alvöru að nýjum verkefnum. Eg hef lengi stefnt að því að fara í sjálfstæðan rekstur á lögfræðiskrifstofu þar sem áhugasvið mitt liggur fyrst og fremst á vettvangi lögfræð- innar. Eg neita því hins vegar ekki að fleiri valkostir eru til staðar sem ekki er tímabært að ræða, en þetta kemur brátt í ljós”. ómetanlega reynslu á því sviði. Það voru því gífurleg viðbrigði að taka við starfi bæjarstjóra á Sauðárkróki á sínum tíma, en starfið hefur verið fjölbreytt og skemmtilegt og dýrmæt reynsla”. Hvernig hefur þér almennt líkað við Sauðárkróksbúa og sveitarstjórnarmenn? „Það verður ekki á betra kosið. Hér í Skagafírði býr lífsglatt og gott fólk oghérhefur fjölskyldunni liðið vel. Um- hverfið og staðurinn hafa upp á allt að bjóða. Eg hef gaman af veiðiskap og útivist og það verða Þórður Þórðarson. Er það dœmigert fyrir lögfræð- inga að vinna í fyrstu hjá hinu opinbera og fara síðan útí sjálfstœðan rekstur? „Að mínu mati verða lögfræð- ingar að afla sér sem fjöl- þættastar reynslu áður en farið er í praxis, það þýðir ekkert að koma beint frá prófborðinu, enda verða menn fyrst að afla sér lögmannsréttinda áður en lengra er haldið. Eg starfaði um 10 ára skeið að opinberum málum, fyrst sem rannsóknarlögreglu- maður og síðan í 5 ár hjá fikniefnadómstólnum og öðlaðist mikil viðbrigði að fara aftur á mölina á suðvesturhorninu. - En hvað viðkemur starfinu þá hefur samstarf við meiri- og minni- hluta verið með ágætum og samstaða í flestu er máli skiptir. Samstarfsfólkið á bæjarskrifstofunni er alveg einstakt og þar er valinn maður í hverju rúmi”. Er eitthvað sérstakt sem þú hefðir viljað sjá framkvœmt í þinni bœjarstjóratíð en ekki varð af? „Það er nú erfitt að setja fram einhvern óskalista í þessu sambandi. Ég tel að vel hafi Vídeóhornið. 4. Silence of the heast. I. Jane Doe. 5. The legend of Billy Jane. 2. A death in California l-2. 6. Löggulíf. 3. Einskonar kraftaverk. 4. Hot pursute. Versl. Sigurðar Pálmasonar. 5. St. Elmos fire. I. Dirty Harry. 6. Blóð og orkideur. 2. Miami supercups. 3. St. Elmos fire. Söluskálinn Skagaströnd. 4. The river. I. If tomorrow comes l-3. 5. Vitnið. 2. Fletch. 6. Jamica Inn l-3. 3. Weird science. 4. Mad Max 3. 5. Song writer. Essoskálinn Blönduósi 6. The Deep. l. Vitnið. 2. Fletch. 3. Weird science. Bláfellsvídcó. 4. Mad Max 3. I. Amateur. 5. Moonlightning. 2. Dinasty 52-60. 6. Of unknown orgin. 3. Of unknown orgin. 4. Mad Max 3. Nýja bílasalan 5. Dirty Harry. l. Moonlightning l -18. 6. Best Defence. 2. Mannaveiðarinn l-IO. 3. Missing in action l-2. Ábær. 4. The sackettes l-2. I. If tomorrow comes l-3. 5. Cut run. 2. A night in heven. 6. The river. 3. Chase. tekist til hér á Sauðárkróki á undanförnum árum. Mikill samdráttur hefur verið í þjóð- félaginu og fjárveitingar til verkefna á landsbyggðinni mjög takmarkaðar. Hér á Sauðár- króki hefur tekist að halda uppi blómlegu atvinnulífi og öflug uppbygging verið á öllum sviðum. Við megum því vel við una. Ég hefði þó kosið að uppbygging varaflugvallar á Sauðárkróki væri hafin og fjármagn hefði fengist til þess að koma byggingu bóknámshúss fyrir Fjölbrautaskólann á rek- spöl”. Aðeins meira um flugvöllinn. Finnst þér sama hverjir fjár- magna hann og til hvaða nota hann verður? „Ég tel það mikið hagsmunamál byggðarlagsins að flugvöllurinn verði byggður hér svo ekki sé nú talað um þýðingu þess fyrir flugsamgöngur frá öryggissjónar- miði. Sú umræða sem verið hefur að undanförnu um fjármögnun framkvæmda við völlinn hefur að mínu viti stórskaðað hagsmuni okkar og til þess eins að sundra Skagfirðingum í þessu sjálf- sagða hagsmunamáli. - Það sem fyrir liggur er að fá endanlega ákvörðun um staðsetningu vallar- ins hér og að því hefur verið vel unnið og um það breið samstaða. Þegar sú ákvörðun liggur fyrir kemur til kasta fjárveitingavaldsins og flugmála- stjórnar. Bæjaryfirvöld hér á Sauðárkróki stjórna ekki upp- byggingu vallarins. Þau hafa hins vegar lýst því yfir að bærinn muni hafa forgöngu um samn- viðbótar landrými fyrir lengingu vallarins til þess að leggja áherslu á hug heimamanna til málsins og greiða fyrir því”. Hverja lelur þú vera vaxtar- mögu/eika Sauðárkróks iframtíðinni? „Vaxtarmöguleikar Sauðár- króks eru ótæmandi ef rétt er á málum haldið. A undanförnum árum hefur það háð bæjar- félaginu að það hefur orðið að setja mun meira fé til að treysta undirstöður atvinnulífsins en bæjarfélag af þessari stærð hefur ráð á og hefur þetta leitt til þess að ekki hefur verið kostur að sinna ýmsum öðrum aðkallandi málum sem skyldi. Þessi uppbygging er forsenda fyrir blómlegri stöðu bæjarins í framtíðinni. Einn þeirra mála- flokka, sem orðið hefurútundan hér í gegnum árin voru umhverfismálin, en allra síðustu árin hefur nokkurt átak verið gert í þessum efnum og standa. Einn er sá þáttur sem ég tel að ekki hafi verið lögð nægileg rækt við hér á Sauðárkróki í gegnum árin. Við höfum verið aðilar að Fjónðungssambandi Norðlendinga og'tekið virkan þátt í samstarfi þéttbýlissveitarfélaga á Norður- landi vestra og er allt gott unt það að segja. Ég tel ekki síður ntikilsvert fyrir Sauðárkrók að byggja upp nánara samstarf við sína nágranna hér í Skagafirði, sá þáttur hefur verið van- metinn”. Eitthvað sem þú vildir segja að lokum? „Ég vil þakka öllum hér á Sauðárkróki og í Skagafirði fyrir einstaklega ánægjuleg kynni og samstarf á þessum árum. Þó ég flytji nú suður á bóginn eru góðir vinir í Skagafirði ekki gleymdir”. (ivj) Aðalfundur Sögufélags Skagfirðinga verður haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki föstudaginn 4. júlí kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Kosning tveggja manna í stjórn. Félagar hvattir til að mæta Stjórnin Innlánsdeild KS minnir á SAMVINNUBÓKINA! Enn sem fyrr býður Innlánsdeild Kaupfélags Skag- firðinga einhver hagstæðustu innlánskjörin. Nafnvextir SAMVINNUBÓKAR eru nú 15% eða 15,56% ársávöxtun Að auki eru verðtryggingarákvæðin áfram í gildi, ávöxtunin er borin saman við ávöxtun 6 mánaða vísitölureiknings, og mismunurinn færður til tekna í bókinni, ef sú ávöxtun er hærri. Ávöxtum spariféð í okkar eigin innlánsstofnun Innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.