Feykir - 25.06.1986, Blaðsíða 5
13/1986 FEYKIR 5
Aðalfundur Feykis
Aðalfundur Feykis var hald-
inn 11. júní sl. í Safnaðarhúsinu
á Sauðárkróki, skv. boðaðri
dagskrá. Fór hann fram sam-
kvæmt venjulegum aðalfundar-
störfum. í skýrslu formanns og
ritstjóra kom m.a. fram aðfastir
áskrifendur eru nú orðnir
rúmlega 1500 og hef'ur þeim
fjölgað nokkuð á annað hundrað
það sem af er árinu.
Blaðstjórnin var öll endur-
kosin, en hana skipa nú; Hilmir
Jóhannesson, sr. Hjálmar Jóns-
son, Jón F. Hjartarson, Sigurður
Ágústsson og Sæmundur Her-
mannsson. Til vara Björn
Sigurbjörnsson og Stefán Árna-
son. Endurskoðendur voru
endurkjörnir þeir Guttormur
Óskarsson og Hörður Ingimars-
son. (jgj)
Jóhann Magnússon á Kóng Lúðvíks Kemp.
r
Urtökumót fyrir landsmót
Þriðjudagskvöldið 3. júní var
haldið úrtökumót á vegum
hestamannafélagsins Léttfeta á
Sauðárkróki fyrir landsmót
hestamanna á Hellu í sumar.
Urtakan fór fram á félags-
svæði Léttfeta við Flæðagerði.
Úrslit urðu sem hér segir:
A-flokkur góðhcsta.
1. Blær.
Eigandi: Sveinn Guðmundsson.
Knapi: Ingimar Ingimarsson.
2. Seifur.
Eigandi: Leifur Þórarinsson.
Knapi: Ingimar Ingimarsson.
B-flokkur góðhesta.
1. Dökkvi.
Eigandi: Jón Eiríksson.
Knapi: Jóhann Friðgeirsson.
2. Drottning.
Eigandi: Halldór Gunnlaugsson.
Knapi: Jóhann Magnússon.
Eldri flokkur unglinga.
1. Blakkur.
Eigandi: Ingimar Pálsson.
Knapi: Helgi Ingimarsson.
2. Sleipnir.
Eigandi: Halldór Þorvaldsson.
Knapi: Halldór Þorvaldsson.
Yngri flokkur unglinga.
1. Sandra.
Eigandi: Helgi Ingimarsson.
Knapi: Júlíus Jóhannsson.
2. Glóð.
Eigandi: Sæmundur Hermanns-
son.
Knapi: Tjörfi Jónsson.
(ivj)
Vertshúsið
Hvammstanga
Nýtt og glæsilegt veitinga- og gistihús
Fjölbreyttur matseðill
Eins og tveggja manna herbergi með baði - svefnpokapláss
Sextíu manna veitingasalur - fundarsalur
Hestaleiga - silungsveiði - bátsferðir
Þægilegur áningastaður miðja vegu milli
Reykjavíkur og Akureyrar,
aðeins 5 km frá hringveginum.
Vertshúsið hf. - Norðurbraut 1 - Hvammstanga
Sími 95-1717
Mjólkursamlag Skagfirðinga
hefur sett á markaðinn
tvær nýjar tegundir
af súrmjólk
- með jarðarberja
með karamellu-
og hnetubragði
Við bjóðum þér kost sem þú getur ekki hafnað,
til að lífga uppá skyndiréttamatseðilinn.
Súrmjólk á morgnanna, í hádeginu og á kvöldin
- hvar sem er
- hvenær sem er
- við öll tækifæri
Mjólkursamlag Skagfirðinga