Feykir - 25.06.1986, Qupperneq 7
13/1986 FEYKIR 7
Ferðaþjónusta bænda
- vaxandi aukabúgrein
Ferðaþjónusta bænda er nú
vaxandi aukabúgrein. Hér verður
nú getið þeirra staða á
Norðurlandi vestra sem bjóða
feiðamönnum uppá þessa þjónustu.
Þeir aðilar sem hlut eiga að
þessu máli hér á landi hafa gefíð
út mjög vandaðan litprentaðan
upplýsingabækling á ensku.
Nú munu vera um 70 bændur
á landinu sem bjóða ferða-
mönnum þjónustu, þar af tólf
hér í fjórðungnum.
Að Staðarskála í Hrútafirði er
boðið uppá gistiaðstöðu fyrir
tólf manns og tjaldstæði auk
þeirrar þjónustu sem veitt er í
söluskálanum sjálfum.
I næsta nágrenni er hið forna
prestssetur Melstaður. Til stóð
að byggja þar hátt og reisulegt
hús, en frá því var horfið og þess
í stað útbúin aðstaða fyrir
ferðafólk. Þar er boðið uppá
gistingu, eldunaraðstöðu, silungs-
veiði og útsýnisferðir.
Að Brekkukoti í Miðfirði
gefst mönnum kostur á fæði og
gistingu auk viku til níu daga
ferðalaga á hestum uppá
hálendið.
Þegar Miðfirði sleppir tekur
næst við á austurleið, Víðigerði í
Víðidal, þar sem gist geta allt að
tólf manns. Þarerog tjaldstæði,
silungsveiði og bílaþjónusta.
Að Hnausum í Húnaþingi er
boðin gistiaðstaða hvort sem er
heima á bænum eða í skálum við
Hnausatjörn, en þar hafa gestir
afnot af árabát og rétt til veiði.
Skoðunarferðir eru og í boði.
Á Stóru-Giljá á Ásum er íbúð
til afnota með öllu tilheyrandi.
Tjaldstæði, bensínafgreiðsla og
skoðunarferðir eru einnig í boði.
I Langadal er bærinn Geita-
skarð. Gistirými er þar fyrir átta
til tíu manns, skoðunarferðir
hvort sem er gangandi eða á
hestum auk veiði. Ohætt er að
segja að Húnvetningar hafi tekið
vel við sér í þessum efnum.
I Skagafirði eru fimm bændur
Niðjamót
Sigríður Hallgrímsdóttir og Óskar Þorsteinsson.
Niðjamót hjónanna Sigríðar
Hallgrímsdóttur (1872-1953) og
Óskars Þorsteinssonar (1873-
1967) var haldið í skólahúsinu í
Varmahlíð 7.-8. júní sl. Þau
hjónin eignuðust 12 börn og eru
8 þeirra enn á lífi, en
afkomendur þeirra munu vera
um 170. Mótið sóttu um 180
manns.
Upp úr hádegi á laugardag
var ekið að Hamarsgerði, þar sem
þau hjón bjuggu í 17 ár og öll
börn þeirra utan tvö þau elstu
fæddust. Um kl. 18 hófst
sameiginlegur kvöldverður og
var Hróðmar Margeirsson veislu-
stjóri. Óskar Jónsson og
Hlaut ferð til Sauðárkróks
þessa vann hann í verðlauna-
samkeppni um hagræðingu og
sparnað í rekstri bæjarfélags, en
hann er húsvörður sundhallar á
vetrum og umsjónarmaður
íþróttavalla á sumrin í Kristianstad.
Norrænafélagið á Sauðárkróki
skipulagði dvöl hans hér á
Sauðárkróki. Var m.a. farið með
hann í útsýnisflug um Skaga-
fjörð undir leiðsögn Aðalheiðar
Arnórsdóttur og Matthíasar
Viktorssonar, og var það að
sögn Eriks hápunktur ferðar-
innar. Þá vakti hitaveitan
mikla athygli hans.
Um ferðina í heild sinni sagði
Erik, er hann leit inn á skirfstofu
Feykis skömmu fyrir brottför,
að hún hefði verið eitt ævintýri
frá upphafi til enda og ætti það
jafnt við um fólkið sem hann
hefði kynnst og hinnar íslensku
náttúru. „Þetta var ferð sem ég
mun seint gleyma”.
Erik Malm (t.v.) færir Vaigeiri
Kárasyni form. Norrænafélagsins
vinarvott í ferðalok.
Dagana 8.-12. júní sl. dvaldi
hér á Sauðárkróki Erik nokkur
Malm frá Kristianstad, vinabæ
Sauðárkróks í Svíþjóð. Ferð
sem reka ferðamannaþjónustu.
Að Varmalæk í Tungusveitgefst
kostur á gistingu, eldunar-
aðstöðu og allt að viku
ferðalögum á hestum auk styttri
ferða. Afnot eru af einka-
sundlaug.
Steinsstaðaskóli í Tungusveit
er nýttur á sumrin til ferða-
mannaþjónustu. Þar er gisti-
pláss fyrir 50 manns og
sundlaug. Boðið er uppá
skoðunarferðir og afnot af
hestum í samvinnu við Varma-
læk.
Á Fagranesi á Reykjaströnd
er ferðafólki boðið uppá gistingu,
skoðunarferðir á hestum, Drang-
eyjarferðir og veiði.
Að Vatni á Höfðaströnd eru
tvö vel búin og vistleg sumarhús
til afnota, hestar, skoðunar-
ferðir og veiði í Höfðavatni.
Einnig er boðið uppá þjónustu
yfir veturinn, m.a. veiði í
gegnum ís á Höfðavatni.
Loks er að nefna Haun í
Fljótum. Þar er gistiaðstaða,
skoðunarferðir, veiði og afnot af
hestum fyrir gesti.
Hér hefur verið stiklað á því
stærsta sem boðið er uppá og
mætti lengi telja áfram að
ógleymdri gestrisni Norðlend-
ing3. (ivj)
Margrét Margeirsdóttir leiddu
almennan söng. Þá fluttu m.a.
ræður; Guttormur Óskarsson,
sr. Gunnar Gíslason, Sigurjón
Björnsson, Friðrik Margeirsson
og Sigurður Jónsson. Enn-
fremur lék ungt listafólk,
afkomendur þeirra hjóna, á
hljóðfæri; Guðrún Óskarsdóttir
á píanó, Ragnheiður Þorsteins-
dóttir á fiðlu og Þórólfur
Stefánsson á gítar. Á eftir var
síðan dansað undir harmoníku-
spili Kristjáns Stefánssonar.
Mótinu lauk með guðþjónustu
á sunnudag í Glaumbæjar-
kirkju. Sóknarpresturinn sr.
Gísli Gunnarsson predikaði.
Föstudaginn 27. júní
Kynning á Sesam og Polo súkkulaðikexi frá Frón
Kynningarverð:
Sesam kex kr. 29.90 S5í@5
Polo kex kr. 54.10 6§r©0
Allt í
ferðalagið
Tjöld
Svefnpokar
Bakpokar
Göngutjöld
Tjalddýnur
Tjaldhúsgögn
Gassuðutæki
Kælitöskur
Pottasett
Mataráhöld
Vatnsbrúsar
Fyrir
hestamenn
Allt í garðinn:
Reiðbuxur
Reiðstígvél
Hnakkar
Beisli
Taumar
Mél og stangir
Reiðmúlar
Hófhlífar
Skeifur
Hóffjaðrir
Járningaráhöld
Garðhúsgögn
Útigrill
Grillkol
Grilláhöld
Garðsláttuvélar
Garðklippur
Garðslöngur og tengi
Skóflur og hvíslar
Ný sending af barna- og dömuskóm.
íþróttaskór og sportskór.
Pantier sportskórnir með franska lásnum fyrir alla fjölskylduna.
Skólökk í tískulitum.
Skóáburður.
s&' sntnvíHMH
SOUJBOÐ
frá 24. júní til 9. júlí
OTA Hafrafras 375 gr.101.60 kr.
Pally súkkulaðikex . 47.50 kr.
Pally vanillukex.......... 47.50 kr.
Cantolan mintellikex . 55.20 kr.
Frygg Ýfa þvottaduft 2,3 kg. 199.75 kr.
Frigg ífa þvottaduft 2,3 kg. . 199.75 kr.
Frigg Þvol þvottalögur 0,5 I. . 43.10 kr.
Dún mýkingarefni 2 1. 109.20 kr.
SkagMingabúb
Þú þarft ekki annað!