Feykir - 25.06.1986, Qupperneq 12
25. júní 1986
Feykir
13. tbl. - 6. árg.
Auglýsendur athugið
Feykir mun í sumar liggja frammi á öllum
hótelum á Norðurlandi vestra.
Auglýsingasími Feykis er 95-5757
Gatnagerð á Hvammstanga
Skagafjörður:
Fjölbreytnin eykst
Enn á ný bryddar Mjólkur-
samlag Skagfirðinga upp á
nýjungum, því nýlega kom á
markaðinn ný tegund af' súr-
mjólk. Er hún með hnetu- og
karamellubragði, en eins og
kunnugt er kom jarðarberja-
súrmjólk á markaðinn fyrr á
þessu ári.
Að sögn Snörra Evertssonar
samlagsstjóra var jarðarberja-
súrmjólkinni strax mjög vel
tekið og hefur salan verið um
þriðjungi meiri en áætlað var í
upphafi eða um 2700 I á mánuði.
Reynsla er hins vegar ekki
komin á nýju súrmjólkina. Þá
kom fram hjá Snorra að nú er
fyrirhuguð kynning á þessum
súrmjólkurtegundum, og e.t.v.
þeirri þriðju, á næstunni í
Varmahlíð, Ketilási og á
Sauðárkróki eða á dreifingar-
svæði samlagsins. Snorri sagði
ennfremur að áhugi væri hjá
Samlaginu að koma súrmjólk-
inni í sölu víðar um land og væri
það nú í undirbúningi.
(jgj)
Um eða upp úr næstu
mánaðamótum verður byrjað
að leggja út malbik á götur á
Elvammstanga. Ráðgert er að
leggja malbik á um eða yfir 15
þúsund fermetra í sumar og er
það verulegur áfangi í því
gatnagerðarátaki, sem undan-
farin ár hefur staðið yfir á
Hvammstanga. Eftir þessa fram-
kvæmd er talið að 41% af
gatnakerfi þorpsins hafi verið
lagt bundnu slitlagi. Þess ber þó
að geta að þegar þessi tala er
fundin út eru taldir með vegirnir
upp í Kirkjuhvamm og út á
sorphauga, þannig að í raun er
búið að leggja bundið slitlag á
mun stærri hluta af götunum í
þorpinu sjálfu.
Það er Króksverk hf. á
Sauðárkróki, sem í sumar rekur
malbikunarstöð er sveitarfélög á
Norðurlandi vestra keyptu fyrir
nokkru.
A Hvammstanga verður einnig
unnið að því að steypa
gangstéttir í sumar en fram að
þessu hefur fremur lítið verið
gert af gangstéttum í þorpinu.
Þá verða nokkrar götur undir-
byggðar undir bundið slitlag en
á þær lagt síðar. (mó)
Viðurkenning
fyrir
umgengni
Á Jónsmessuhátíð Búnaðar-
sambands A-Húnvetninga sem
haldin var síðastliðinn föstudag,
var að venju veitt viðurkenning
fyrir snyrtilega umgengni á
bændabýli. Það er Búnaðar-
sambandið og Kvenfélaga-
samband sýslunnar, sem standa
að þessari verðlaunaveitingu og
hlutu hana ábúendur og
eigendur bæjarins Ártún í
Bólstaðarhlíðarhreppi að þessu
sinni. (mó)
Hvammstangi:
Bætt aðstaða
fyrir smábáta
Skagaströnd skal það vera
Jafnhliða kosningum á síðustu, árum hefur nafnið
Skagaströnd fór fram skoðana- Skagaströnd átt vaxandi fylgi að
könnun meðal hreppsbúa um fagna og hefur þetta valdið
nafn staðarins, þ.e. hvort halda ýmisskonar misskilningi.
bæri nafninu Höfðakaupstaður Mikill meirihluti íbúanna
eða taka upp nafnið Skaga- kaus að nafnið Skagaströnd yrði
strönd tekið upp sem nafn staðarins,
Kauptúnið heitir frá f'ornu eða 211 af þeim 301, sem
fari Höfðakaupstaður, en á greiddu atkvæði.
Sauðárkrókur:
Dögun kaupír
Rækjuvinnslan Dögun hf á
Sauðárkróki hefur nú nýverið
keypt 152 lesta bát frá
Grindavík. Skipið nefnist nú
Röst Sk-17 og var kaupverð þess
tilbúið til rækjuveiða um 27
milljónir króna.
Garðar Sveinn Árnason fram-
kvæmdastjóri Dögunar var
inntur nánar eftir þessum
kaupum.
„Við muntim einvörðOngu
nýta skiþið til rækjuveiða, en því
fylgir fyrir næsta ár 600 tonna
bolfiskkvóti, þar af um 400
tonn af þorski og 500 tonna
síldarkvóti”.
Að sögn Garðars verður reynt
I
að semja við fiskvinnslu- og
útgerðarfyrirtæki hérástaðnum
um að þau skip sem hér eru á
sóknarkvóta nýti kvóta Rastar,
en veiði þess í stað rækju fyrir
Dögun. Þetta ætti að koma
öllum aðilum til góða, þar sem
það styttir þann tíma sem skip
útgerðarinnar liggja og myndi
auka hráefni hjá Dögun.
Hið nýja skip Dögunar, Röst
Sk-17 er fyrst og fremst ætlað til
úthafsrækjuveiða. Forráðamenn
Dögunar binda miklar vonir við
að Röst muni gjörbreyta
rekstrargrundvelli fyrirtækisins
þar sem um miklu jafnari vinnu
verður að ræða. í venjulegu
Um miðjan júlí er áætlað að
dýpkunarskipið Hákur komi til
Hvammstanga til þess að dæla
skíp
árferði á þetta skip að gefa
möguleika á úthaldi allt árið, þó
reikna verði með veðri og
hafisárum sem hindrað gætu
veiðar. Hingað til hefur Dögun
verið algerlega háð því að fá báta
hér úr firðinum og annarsstaðar
að áf landinu til að veiða rækju
og leggja upp hjá fyrirtækinu.
Þrátt fyrir tilkomu Rastar
verður því haldið áfram. Af
þessu leiðir að mögulegt verður
að vinna á tvískiptum vöktum,
sem þýðir tvöföldun á fjölda
starfsmanna.
Að lokum sagði Garðar
rekstrarstöðu fyrirtækisins erfiða
þar sem vinnsla hefur ekki átt
sér stað frá því í janúarlok og
fram í maí, vegna þess að öll
rækja hvarf úr firðinum. Skuldir
Dögunar eru á bilinu 10-12
milljónir fyrir utan skipa-
kaupin. í sambandi við þau var
hlutafé aukið úr 5 milljónum í
tíu.
Tryggingamat eigna segir
Garðar langt umfram eignir og
Dögun alls ekki á leiðinni á
hausinn.
(ivj)
upp úr höfninni þar. Áætlað er
að dæla um 11 þúsund
rúmmetrum úr höfninni en enn
er ekki fyllilega ákveðið hvað
gert verður við efnið. Hugsanlegt
er að því verði dælt út á sjó.
Áætlaður kostnaður við þessa
framkvæmd er 3-4 millj. kr. og
fer það nokkuð eftir því hvað
gert verður við efnið.
Þá er búið að smíða tvær
flotbryggjur sem komið verður
upp í höfninni og með því bætt
aðstaða fyrir smábátaútgerð
sem er mjög vaxandi frá
Hvammstanga eins og öðrum
þorpum við Húnaflóa. (mó)
iii
lesenda
Innheimta áskriftargjalda stendur
nú yfir eins og lesendum er
efalaust kunnugt um. í þéttbýli
á Norðurlandi vestra er gengið í
hús, en aðrir áskrifendur fá
sendar bréfapóstkröfur. Þeim
sem þegar hafa brugðist skjótt
við og greitt áskriftina, eru
færðar þakkir. Það eru vinsamleg
tilmæli til annarra að þeir dragi
það ekki úr hófi að greiða, því
fjárhagsgrundvöllur blaðsins stendur
og fellur að verulegu leyti með
áskrifendum og mjög kostnaðar-
samt er að fara út í ítrekaðar
innheimtuaðgerðir.
Þá skal bent á að bréfapóst-
kröfur er einungis hægt að
greiða á pósthúsi (ekki í banka).
Með fyrirfram þökk
ritstjóri
Feykir spyr
fólk í þjónustu á
Sauðárkróki:
Er ferðamannavertíðin hafin?
Ólafur Jónsson:
„Já, í fluginu hef ég orðið var við
það að ferðafólk er farið að
tínast hingað”.
Brynjar Pálsson:
„Nei. Ekki nokkurn hlut byrjuð
og vantar allan ferðamanna-
straum í bæinn sem endranær”.
Baldur Heiðdal:
„Já. Aðeins merkjanlegt að hún
er byrjuð”.
Hrönn Pálmadóttir:
„Já. Hún er byrjuð en fer hægt
af stað”.