Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2008, Page 110
fræðimannanna Marianne Davidsen-Nielsen og Nini Leick.7 Þar eru þær
stöllur að tala um sorgin og þann sársauka sem sorgin veldur. Þær vara við
því eins og fleiri fræðimenn að sorgin sé sjúkdómsgerð. Hún er þvert á móti
merki um heilbrigði og eðlilegt ástand sem verður þegar frá manni er tekið
það sem ræður vellíðan, hvort heldur það er ástvinur í dauða, eða heilsa og
að að lokum lífið sjálft. Nauðsynlegur sársauki segja þær og vilja þar með
meina að það sé nauðsynlegt að fá að finna til undan þeim spjótalögum.
Fullorðin kona var lögð inn á spítalann vegna beinbrots. Aðgerðin gekk vel
eins og segir þegar handverkið er óaðfinnanlegt, en líðanin var mjög slæm
og í hönd fóru dagar sem voru skelfilegir. Hún lýsti því sjálf að hún hafi
stigið niður til heljar, þar sóttu stöðugt á hana árar og púkar og margvíslegar
afskræmdar skuggamyndir. Og hún var lengi að komast til sjálfs sín og ótt-
inn við endurtekningu á þessu óbærilega
ástandi var mikill. Þegar betur var að gáð þá geymdi þessi fullorðna kona
með sér gamlan sársauka og óuppgerðar sorgir. Hún hafði misst ungan son
sinn í bílslysi fyrir nær þremur áratugum. Þá hafði maðurinn hennar sem
nú var látinn algerlega misst móðinn svo hún fann sig knúna til að vera
sterk og halda sér á floti vegna hans.
Geðlæknir sem var tengdur henni vináttuböndum fann sárt til með
henni og færði henni töflur, sem hann bað hana að nota og láta helst aldrei
glasið tæmast. Og þess hafði hún gætt trúfastlega í öll þessi ár og það skýrði
m.a. að mati lækna martraðirnar sem hún fékk í kjölfarið af beinbrotinu
enda glasið orðið tómt. í samtali við þessa konu sem hafði í öll þessi ár
lifað skertu lífi kom fram að maðurinn hennar sálugi hafði að mestu leyti
verið búinn að endurheimta fyrri krafta, þegar ár var liðið frá sonarmiss-
inum. Hinn nauðsynlegi sársauki. Geðlæknirinn William Worden telur það
eitt mikilvægasta verkefni í svokallaðri sorgarvinnu að syrgjandinn greini
raunveruleika og mikilvægi og sársauka ástvinamissis.8 Það sé raunar for-
senda þess að það dragi úr hinni andlegu þjáningu svo líknin sé lögð með
þrautinni eins og segir í fornum texta og huggunin gefist smátt og smátt.
7 Marianne Davidsen-Nielsen og Nini Leick, Den nödvendige smerte om sorg,. sorgterapi og
kriseintervention, 1995
8 J. William Worden, Grief Counseling and Grief Therapy, 2001
108