Jökull - 01.12.1963, Blaðsíða 26
VatnajökulsleiSangur 1963
The Vatnajökull Expedition June 1963
Lagt var upp frá Lakjarkoti Guðmundar
Jónassonar laugardaginn 1. júní kl. 16.00. Far-
arstjórar voru þeir Stefán Bjarnason og Magnús
Eyjólfsson, Er eftirfarandi skýrsla rituð eftir
dagbókum þeirra.
Ferðin var gerð til- þess að mæla vetrarsnjó
á Vatnajökli og bæta ofan á snjómöstrin hjá
Pálsfjalli og Grímsvötnum, mæla yfirborðshæð
Grímsvatna miðað við Depil og dytta að skál-
anum á Grímsfjalli.
Til þessara starfa fóru auk fararstjóranna:
Elalldór Gíslason
Sigurður Waage
Margrét Sigþórsdóttir
Elaukur Elafliðason
Ólafur Friðfinnsson
Magnús Elallgrímsson
Grímur Þ. Sveinsson
Gegndi hinn síðastnefndi störfum póstmeist-
ara á Grímsfjalli eins og að undanförnu.
Átta Ármenningar höfðu samflot með leið-
angrinum. Fararstjóri þeirra var Árni Kjartans-
son, en farartæki Gusi.
Leiðangursmenn höfðu báða vísla Jöklarann-
sóknafélagsins til fararinnar.
Færi var blautt og þungt inn með Ljósufjöll-
um, og var ekki kornið í Jökulheima fyrr en kl.
0330 um nóttina eftir því nær 12 klst. ferðalag.
Sunnudagur 2. júní. Þótt liðið væri á nótt,
var þegar gengið í að koma snjóbílunum, far-
angri og 800 1. af benzíni inn á jökul. Var því
lokið kl. 1030, eri síðan sofið til kl. 1500. Þá
var tekið til að setja eldhús á sleða, ganga frá
farangri, setja upp veðurathugunartæki í Jökul-
heimum og bora fyrir tveimur stöngum til
leysingamælinga á Tungnárjökli, 500 m og 2500
m frá jökuljaðri. Þá var sett talstöð í annan vísil-
inn. Öllu þessu var lokið á níunda tímanum, og
var þá gengið til náða, en fótaferð ákveðin um
fjögurleytið.
Mánudagur 3 júni. Lagt var upp frá Jökul-
heimum kl. 05 og farið sunnan undir Nýja-
felli á jökul. Nyrðri leiðin má heita ófær, og
vantar ekki nema herzlumun til þess, að jökul-
laust verði allt í kringum Nýjafell, hvaða áhrif
sem það kann að hafa á farveg Tungnár þar
efra. Kl. 2030 uni kvöldið var komið að mastr-
inu norðan Pálsfjalls. í sama mund bilaði Jök-
ull II, hafði brætt úr sér. Var þá „tjaldað og
gengið til hvílu eftir tæplega sólarhrings basl
í hnédjúpum krapasnjó og slæmu færi. Veður
gott, hiti 6—8 st., logn og skyggni 150—200 m.
Snjór gljúpur, förin eftir bílana 8 cm djúp.“
Þriðjudagur 4 júní. KI. 1320 var haldið áleið-
is til Grímsvatna. Var stýrt eftir áttavita, því
að skyggni var mjög slæmt. „Kl. 2145 komum
við upp úr þokunni í réttri stefnu á Vestur-
hnjúk Grímsfjalls. Blasti þá við okkur dýrlegt
útsýni suður á Oræfajökul og norður til Kverk-
fjalla. — Að skála var komið um miðnætti.“
Miðvikudagur 5. júní. Árla morguns var hald-
ið ofan að Grímsvatnamastri til snjómælinga.
Frá toppi að snjó voru 376 cm, en voru 780 cm
vorið áður. Ákoma því 404 cm. Vatnsgildi var
frá 0,49—0,65 gr/cm3, meðaltal 0,52, og saman-
lagt vatnsgildi ársákomu 2100 millimetrar.
Þá var ekið vestur yfir Grímsvötn í stefnu á
Depil og lesinn hæðarmælir með 1000 m milli-
bili. Hæðarmunur á sléttunni og Depli mældust
49 m og Litlamósa 9,8 m. Hafði yfirborð „Vatn-
anna“ því hækkað um 14 m síðan vorið áður
eða 3,8 cm á sólarhring.
Miðja vegu á Grímsvötnum var boruð hola,
520 cm djúp. Neðstu 30 cm voru íshröngl, og
auk þess var ryklag í 500 cm dýpi. Meðalvatns-
gildi var 0,62 og vatnsgildi vetrarákomu 3100
mm. Var þessu öllu lokið kl. 2320 og ekið sem
hraðast heim í skála. Veður og færi með ágætum.
Fimmtudagur 6. júni. Dagurinn rann upp hjá
flestum undir hádegisbil. Uti var SA-strekking-
ur, 1,5° liiti, skýjað og lélegt skyggni. Var ákveð-
ið að halda kyrru fyrir til miðnættis, en aka þá
til Öræfajökuls. Um daginn var farið ofan í is-
hellana og gekk allt að óskum. Um kvöldið var
veður og hitastig óbreytt og færi slæmt. Var því
haldið kyrru fyrir.
Föstudag 7. júní vakti Grímur póstur okkur
JÖKULL 196 3
22