Jökull - 01.12.1980, Síða 90
Jöklarannsóknafélag íslands reisir skála á
Goðahnúkum
Jöklarannsóknafélag Islands reisti nú fyrir
skömmu sinn áttunda skála. Er hann stað-
settur á Goðahnúkum í austurhluta Vatna-
jökuls, norðan Goðaborgar. Á nú félagið fjóra
skála á Vatnajökli, þ. e. á Grímsfjalli, byggður
1957, í Esjufjöllum og Kverkfjöllum, reistir
1977, og nú síðast á Goðahnúkum. Um síðustu
páska var settur upp skáli við Fjallkirkjuna í
Langjökli, vestan Hrútafells. Fjórir síðast
byggðu skálarnir eru allir svipaðir, 15m2 með
sex tveggja manna kojum, byggðir í bænum
og fluttir fullfrágengnir á ákvörðunarstað.
Hinir skálar félagsins eru: Tveir í Jökulheim-
um, byggðir 1955 og 1965, og einn á Breiða-
merkursandi, ,,Breiðá“, reistur 1950.
Heimilt er ferðalöngum að gista í skálunum
gegn sama gjaldi og er hjá Ferðafélagi íslands í
þeirra sæluhúsum. Ber að koma greiðslu til
Vals Jóhannessonar, upplýsingasimi 12133 og
86633. Það skal tekið fram, að engin tæki til
hitunar eru í skálunum.
Ferð sú, sem lítillega verður sagt frá hér, var
farin vorið 1979 á uppstigningardag, 24. maí,
og komið til baka þriðjudaginn 29. maí. Þeir
sem að ferð þessari stóðu voru Jöklarann-
sóknafélag íslands, Hjálparsveit skáta í
Skálinn reistur á hlaðinu hjá Jóni ísdal.
88 JÖKULL 30. ÁR
Reykjavík, sem lagði til Vísil snjóbíl, Flug-
björgunarsveitin í Reykjavík og „Tjaldlausa
félagið“, en þessir aðilar hafa átt drýgstan þátt
i að koma upp síðustu fjórum skálum félags-
ins. Aðrir tveir beltabílar voru fengnir hjá
Landsvirkjun og Orkustofnun, sem hafa veitt
félaginu drjúga aðstoð við flutninga á jöklum.
Daginn fyrir uppstigningardag var gengið
frá farangri. Skála og tveim snjóbílum var
komið fyrir á einum dráttarvagni frá G. G.
flutningafyrirtækinu, sem hefur verið ein
mesta lyftistöng félagsins í sambandi við
skálaflutningana. Vörubill frá Vegagerð
ríkisins flutti einn snjóbíl, vélsleða og hluta af
sleða þeim, sem húsið var dregið á. Hefur
Vegagerðin ætíð verið boðin og búin aö veita
Jörfi aðstoð, þegar til hennar hefur verið leit-
að, bæði með bíla og önnur tæki.
Klukkan 6 árdegis á uppstigningardag
mættu leiðangursmenn, 37 talsins, að Duggu-
vogi 2 og þaöan var haldið af stað um kl. 7 á
fólksflutningabíl, sem flutti 28 manns og vél-
sleða á toppnum, Bronco-jeppa, sem dró kerru
með snjósleða, og flutningabílunum tveim.
Ekið var sem leið lá austur á bóginn og
drukkið kaffi í Vík um kl. 11. Síðan haldið
áfram með smástoppum og komið að Breiða-
merkurjökli um kl. 17.30. Var þá tekið til
óspilltra málanna að ganga frá farangri til
flutnings á jöklinum, en á meðan skerptu
eldabuskur á kjötsúpunni, sem Árni í Voga-
veri hafði eldað handa okkur daginn áður.
Öllum undirbúningi og áti var lokið fyrir kl.
22 og þá haldið af stað upp jökulinn. Nokkuð
var hann brattur neðst, cn fastur fyrir og
snjólaus og gaf góða spyrnu fyrir beltabílana.
Ekið var vestan Mávabyggðarandarinnar um
það bil 4 km en þá beygt í austur og stefnan
tekin í austanverða Norðingalægð austan
Esjufjalla og vestan Breiðubungu. Heldur