Jökull - 01.12.1980, Side 94
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS
Úr skýrslu formanns um störf félagsins
starfsárið 16. febr. 1978—26. febr. 1979
JÖKLARANNSÓKNAFÉLAG ÍSLANDS
FÉLAGSSTJÓRN
Stjórn Jöklarannsóknafélags íslands starfsár-
ið 1978—79 skipuðu:
Sigurður Þórarinsson, formaður
Sigurjón Rist, varaformaður
Stefán Bjarnason, ritari
Guttormur Sigbjarnarson, gjaldkeri
Valur Jóhannesson, meðstjórnandi
í varastjórn sátu:
Helgi Björnsson
Hörður Hafliðason
Magnús Eyjólfsson
Ragna Karlsdóttir
RANNSÓKNIR
Eftirfarandi um rannsóknir á Vatnajökli
1978 hefur Helgi Björnsson látið mér í té. Er
það mikið gleðiefni, hvílíkur skriður er nú að
komast á þykktarmælingar á jöklum hérlend-
is, og megum við vera stolt yfir því, að jaau
tæki, sem tæknimenn okkar hafa smíðað til
slíkra mælinga, eru hin beztu sem nú er völ á í
veröldinni, svo að sótzt er eftir þeim bæði úr
vestri og austri.
„ Vorferð
Lagt frá Rvík. laugardag 3/6. Komið heim
13/6.
lssjármœhngar
1) mælilína frá Tungnárjökli til Grímsfjalls,
2) Grímsvötn mæld nákvæmlega og svæðið
austan þeirra. Alls 140 km langar mæli-
línur samanlagt. Unnið er að gerð korta
af neðra borði íshellunnar og mati á
rúmmáli hlaupavatnsins.
3) mælilína vestan Grímsvatna til Bárðar-
bungu og síðan kannaður botn á Bárðar-
bungu. Þar er mikil megineldstöð og í
henni askja um 50 km- að flatarmáli með
hringlaga barma á um 50—100 m dýpi,
en allt að 400 m dýpi innan jaðranna,
4) mælilína frá Bárðarbungu að sigkötlun-
um, sem hleypa vatni í Skaftá. Við sig-
katlana reyndist um 500 m þykkur ís.
Alls voru mælilínur um 250 km samanlagt.
Snjóbíll: Jaki frá Landsvirkjun
Bílstjórar: Hannes Haraldsson og Hörður
Hafliðason
Vélsleðar: tveir frá No'rrænu eldfjallastöðinni
Staðsetningartæki: Loran-tæki frá Land-
helgisgæzlunni og gervitunglstæki frá RH
Þátttakendur: Helgi Björnsson, Marteinn
Sverrisson, Ævar Jóhannesson, Halldór
Ólafsson, Sævar Skaptason auk bílstjór-
anna Harðar Hafliðasonar og Hannesar
Haraldssonar.
Haustferð
Mælingar með íssjá á Tungnárjökli 3 — 6/9.
Vegna jökulþýfis varð minna úr mælingum en
til stóð.“
Ráöstefna nornenna jöklafnvðinga
Eins og félagsmönnum mun kunnugt, er
starfandi alþjóðlegt jöklarannsóknafélag: The
International Glaciological Society, sem hefur
aðsétur í Cambridge og gefur út timaritið
92 JÖKULL 30. ÁR