Jökull - 01.12.1980, Side 96
annað um páska á Langjökul, nánar tiltekið á
„Fjallkirkjuna“ vestan Hrútafells. Hitt um
hvítasunnuna á Goðahnúk norður af
Hoffellsjökli og suðvestur af Grendli.“
Menn kunnu að undrast, hvernig félagið
hafi ráð á að koma upp þessum skálum. Því er
til að svara, að skálanefnd og þeir harðduglegu
og bjartsýnu menn, sem að henni standa,
vinna smíðina í sjálfboðavinnu, njóta að
nokkru velunnara félagsins, ég nefni ekki nöfn,
við efniskaup, eiga von í fjárframlagi frá
Ferðafélagi íslands og hafa, í stuttu máli,
heitið því, að skálarnir skuli upp án þess að
blankt félagið sligist þar undir.
Fundir og árshátíð
Aðalfundur félagsins var haldinn í
Tjarnarbúð niðri 16. febr. 1978. Eftir aðal-
fundarstörf og kaffidrykkju flutti Helgi
Björnsson erindi um þykktarmælingar á
Mýrdalsjökli og Vatnajökli 1977 og Jón fsdal
sagði frá skálabyggingum í Esjufjöllum og
Kverkfjöllum.
A fundi á Hótel Borg 11. des. flutti formað-
ur erindi um Kínaferð sína haustið 1978 og
Pétur Þorleifsson sýndi myndir frá Langjökli.
Það skal tekið fram, að ekki var unnt að fá
Tjarnarbúð til fundarhalda á þessum vetri og
varð Borgin þá fyrir valinu.
Árshátíðin (Jörfagleðin) var haldin í
Snorrabæ laugardaginn 11. nóv. Ræðumaður
kvöldsins var Elín Pálmadóttir, en veislustjóri
Árni Reynisson. Þátttakendur voru um 130 og
hátiðin þótti vel heppnuð í alla staði.
Utgáfustarfsemi
Þá er það útgáfustarfsemin, sem var nokkuð
áhyggjuefni, en þó er þess að geta, sem gleði-
legt er, að það tókst að koma út á árinu
myndarlegu hefti af Jökli, 112 bls., sem von-
andi hefur fallið sæmilega í smekk félags-
manna almennt, því meira er í því af íslenzku
efni en verið hefur alllengi. Þetta er fyrsta
heftið, sem Jöklarannsóknafélagið og Jarð-
fræðafélagið standa að í sameiningu og rit-
stjórnin var í höndum fjögurra manna, en
óhætt er að fullyrða, að mest hafi hún mætt á
Helga Björnssyni. Áhyggjuefnið er það,
hversu hratt prentkostnaður eykst. Þetta hefti
kostaði um hálfa þriðju miljón og auðsætt, að
félög með samanlagt um 700 félagsmenn eiga
erfitt með að standa undir slíku. Það fé, sem
hið opinbera lagði Jöklarannsóknafélaginu á
þessu ári var 400 þús. kr. Það var hækkað um
helming í 2. eða 3. umræðu fjárlaga eftir að ég
hafði sent bænarbréf — og þakka ég þeim í
fjárveitinganefnd, sem þar að stóðu. — Jarð-
fræðafélagið hefur engan styrk. Er auðsætt, að
eitthvað róttækt verður að gera í þessu út-
gáfumáli og munu formenn beggja félaganna
leggja fram sameiginlega umsókn um fé á
næstu fjárlögum, er fari einungis í útgáfu-
starfsemi. Hefur og verið rætt í stjórninni, að
réttast gæti verið að halda fjárhag tímaritsins
alveg aðskildum frá öðrum fjárhag félagsins,
því tryggja verður, að félagið fái eitthvað af
félagsgjöldunum til annarra starfa.
Þess er að geta að stofnanir, svo sem Orku-
stofnun, Raunvísindastofnun og Eldfjalla-
stöðin stóðu að nokkru undir kostnaði við síð-
asta heftið og þau næstu á undan með því að
borga klisjur og kaupa sérprent á hærra verði
en framleiðsluverði. Verður vonandi áfram-
hald á þessu, en það hrekkur þó ekki til að
halda Jökli í gangi.
Prentsmiðjunni Odda vil ég þakka vand-
virkni að vanda í prentun Jökuis og um-
burðarlyndi með seinkun á borgun.
Læt ég svo þessari skýrslu lokið.
94 JÖKULL 30. ÁR