Feykir - 19.12.2001, Blaðsíða 3
44/2001 FEYKIR 3
SSK veitir úr
vinnuvökus j óðnum
Karl Lúðvíksson með múrbrjótinn.
Karl hlaut múrbrjótinn
Rauði krossinn opnar nýtt og glæsilegt húsnæði
Kvenfélagasamband Skaga-
fjarðar afhenti affakstur síðustu
vinnuvöku sl. mánudag. Að þessu
sinni rann hann til öldrunarmála og
var skipt jaíht til tveggja aðila, 115
þúsund krónur á hvom stað, dvalar-
heimili aldraðra á Sauðárkróki og
dagvistunar aldraðra sem einnig er
með starfsemi í húsnæði dvalar-
heimilisins.
í ávarpsorðum Sigrúnar Aad-
negaard formanns SSK kom fram
að vinnuvökumar hafa verið haldn-
ar síðan 1982, fyrst að haustinu en
síðan síðvetrar til að konumar gætu
unnið að handverkinu allan vetur-
inn og klárað það síðan á vinnu-
vökunni sem lengst af var haldin á
Löngumýri, en nú er hún búin að
sprengja það húsnæði utan af sér og
síðasta vinnuvika var haldin í
Varmahlíðarskóla. Agóðanum hef-
ur ætíð verið varið til líknar- og
menningarmála og er áætlað að
næsta úthlutun verði til forvamar-
mála.
Að sögn Sigrúnar á Bergsstöð-
um fær vinnuvakan alltaf góðar
viðtökur og salan er góð. Það var
Helga Friðriksdóttir frá Krithóli
einn vistmanna á dvalarheimilinu
sem veitti gjafabréfinu viðtöku en
fyrir peningana hefúr m.a. verið
keypt kaffistell fyrir 60 manns. El-
ísabet Pálmadóttir forstöðukona
dagvistunar aldraðra tók við gjöf-
inni og reiknar hún með að pening-
unum verði að stórum hluta varið
til kaupa á hjálpartækjum á fondur-
stofú.
Skagfirskar kvenfélagskonur
láta mikið af hendi rakna til samfé-
lagsins á hveiju ári. Til gamans má
geta þess að á síðasta ári gáfú þær
um 1,5 milljón króna til liknar- og
menningarmála í héraðinu. Rúm-
lega 220 konur em i kvenfélögum i
Skagafirði.
Karl Lúðvíksson i Varmahlíð var einn
þriggja sem hlaut „múrbrjótinn” svokall-
aða að þessu sinni, en það er árleg viður-
kenning sem Landssamtökin Þroskahjálp
standa fyrir. Karl hlaut múrbijótinn vegna
uppbyggingar sumarbúða að Löngumýri
og starfa að kennslumálum, en Karl hef-
ur veitt forstöðu í nokkur ár starfsbraut
fatlaðra við Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra. Hinirtveir sem hlutu múrbijótinn
nú voru Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra, fyrir uppbyggingu fjögurra ára
framhaldsnáms við almenna ffamhalds-
skóla og Atak félag fólks með þroska-
hömlun fyrir öflugt félagsstarf, en þau
samtök hafa m.a. staðið fyrir svokölluð-
um umræðuhópum meðal fatlaðra.
Karl Lúðvíksson hefúr starfað mikið á
sviði Rauða krossins, en Rauðakross-
deild Skagafjarðar er einn helsti aðilinn
að baki sumarbúðunum á Löngumýri.
Deildin festi á síðasta ári kaup á húsnæði
i Aðalgötunni á Sauðárkróki, rúmgóðu
húnæði sem tekið var formlega í notkun
8. desember sl. Skagafjarðardeildin varð
60 ára á síðasta ári og var þess einnig
minnst við opnun þessarar nýju aðstöðu
deildarinnar.
Að sögn Karls Lúðvíkssonar standa
vonir til að með bættri aðstöðu verði
hægt að efla og treysta starf deildarinnar.
Þarna er hægt að halda fræðslufúndi og
námskeið og sinna ýmsum þeim verkefn-
um sem Rauði krossinn stendur fyrir, s.s.
fatasöfnun og hjálp við þá sem minna
meiga sín.
„Héma hjá okkur fá unglingar aðstöðu
sem vilja vinna í okkar hugsjón. Það er
þónokkur hópur sem finnur sig í því. Það
er í sjálfu sér liður í forvarnarmálunum
sem við látum líka til okkar taka. Við tök-
um þátt í verkefni þvi tengu með því að
leggja fram húsnæði undir skrifstofú for-
varnarfulltrúa. Hér er ætlað að for-
eldraröltið fái afdrep, krakkar sem standa
fyrir tombólum og hlutaveltum, og ýmis-
legt fleira. Kosturinn við þennan nýja
stað er líka sá að starf okkar verður sýni-
legra og við höfum þegar orðið vör við
það að fólk er farið að hafa meira sam-
band en það gerði áður”, segir Karl Lúð-
víksson.
Frá afhendingunni sl. mánudag. Fremst er Helga Friðriksdóttir frá Krithóli,
Elísabet Pálmadóttir forstöðukona dagvistar aldraðra er til vinstri og síðan
stjómarkonur í SSK: Sigrún Aadnegaard, Helga Haraldsdóttir og Helga
Bjamadóttir.
Aldaii stéttarfélag
færir félögum síniim Skagfirðingum öllum
og nágrömium bestu óskir um
Gleðileg jól
gott og farsælt komandi ár