Feykir


Feykir - 19.12.2001, Blaðsíða 11

Feykir - 19.12.2001, Blaðsíða 11
44/2001 FEYKIR 11 kvöldi í nokkur ár. Fólki virðist líka það rnjög vel og þetta er hátíðleg stund.” Agnar er fæddur og uppalinn íyrir vestan, í Bolungavík. „Það var svo sem ekki mikið til- stand á aðventunni heima í Bolunga- vík. Það var komið fyrir jólatijám á þremur áberandi stöðum í bænum. En mér fannst aðaltáknið um komu jól- anna þegar nýju bækurnar voru komnar út í gluggann í Bjarnabúð sem kölluð var, Verslun Bjama Eiríks- sonar. Það ægði öllu saman í þessari búð, fengust allir skapaðir hlutir. Þama rétt við gluggann þar sem nýju bækumar voru, við afgreiðsluborðið, var af- greidd steinolía á brúsa. Bækumar vom í hillum hátt uppi á veggnum og afgreiðslumaðurinn þurfti að ná í tröppu til að komast þangað upp. Svo var fólkið í bænum að spyrja hann hvaða bók þessi og hinn mundi nú helst vilja fá í jólapakkann, þannig að hann var mjög ráðgefandi, og það skilaði sér í því að nánast ekkert var um skil á bókum í Bolungavík. Skötuveisla á Bíldudal En ég vandist því vitaskuld ungur að borða skötu. Þegar við vomm flutt til Bíldudals vildi ég halda þessari venju og fór niður í búð og keypti mér skötu til að elda á Þorláksmessu. Eg vildi nú að venju hafa félagsskap við að borða skötuna og það bar vel í veði að ég hitti i þorpinu þennan dag kunn- ingja minn Olaf Hannibalsson sem þá bjó í Selárdal, en var í kaupstaðarferð. Ólafúr kemur heim með mér og ég sýð skötuna. Ber hana svo á borðið þegar ég álít að hún sé soðin, en fannst eitthvað skrítið við lyktina af henni, fannst þetta lítil skötulykt. Ólafúr tekur til matar síns og það ber ekki á neinu, en þegar ég læt upp í mig fyrsta bitann, þá áttaði ég mig á því að bölvuð skatan var ekki kæst heldur söltuð, og meira að segja brim- sölt. Þetta var eginlega ekki neyslu- hæfúr matur, en Ölafúr var svo kurteis að hann sagði að þetta væri hinn ágætasti matur.” „Við emm alltaf með hamborgara- hrygg á aðfangadagskvöld og reynd- ar líka lambahrygg, þar sem að eldri sonurinn Trostan segir að það sé ó- mögulegt að borða svín á jólunum. Svo er eftirrétturinn yfirleitt aðalblá- ber og ijómi”, segir Dalla. „Já oft koma aðalbláberin ffá Möggu frænku í Bolungavík”, skýtur Agnar inn í. Agnar viðurkennir það ekki að kapítalisminn hafi verið afgerandi í Bolungavík, í veldi Einars Guðfinns- sonar. „Það var hugsjón hjá Einari að allt vinnandi fólk í þorpinu hefði vinnu. Þannig að þegar kreppan skall á ‘67- ’68, þegar síldin hvarf, að þá var reynt að brúa bilið með skelveiðum, en þetta var í fyrsta sinn sem hörpuskel var veidd á Islandi. Það var allt unnið með handafli,fiskurinn handskorinn úr skelinni, og það fengu allir vinnu við þetta sem ekki höfðu annað. Þannig að atvinnuleysi var lengi vel óþekkt í Bolungavík. Jólahrekkurinn En ég þarf endilega að segja þér frá jólahrekk sem við fúndum upp á þeg- ar við bjuggum á Bíldudal. Við karlamir vomm með Iions- klúbb og vissum að því að bóndi í ná- grenninu, úti í Ketildalahreppnum, Bjarni Kristófersson hreppsstjóri í Hvesm, var einhverra hluta vegna á- kaflega lítíð hrifinn að Lions, kannski beinlínis illa við þennan félagsskap. Bjami reykti kjöt fyrir jólin og okkur ,Jólin eiga að vera laus við prjál“ „Nei ég get ekki sagt að ég sé mjög mikið jólabarn, en hef þau í heiðri eins og hver annar kristinn maður. Eg ólst upp við mikið jóla- hald, jólin voru stór þáttur á mínu heimili sem bam, í Vík á Skaga- strönd, en samt er engin sérstök nrinning þaðan sem hefúr rist djúpt í mína sál”, segir Hallbjöm Hjartarson kántríkóngur á Skagaströnd. „Jólin hafa verið yndisleg í einu orði sagt. Við eigum dásamleg börn og reynum að sýna þeim eins mikinn kræleik og eins mikla kristna trú og okkur er unnt”, segir Hallbjörn sem er mjög trúaður rnaður. Hann segist þó ekki rækta sambandið við guð sinn neitt umffam á jólunum, en ann- an tíma ársins. „Ég er alltaf í sam- bandi við hann alla daga lífs míns, tala við Guð á hveijum einasta degi.” En ertu mikið fyrir skreytingar? „Nei ég er ekki mikið fyrir að skreyta en geri það samt svolítið. Ég er svo gamaldags í mér að mér finnst að jólin eigi ekki að vera eintómt glis, prjál eða eitthvað til að sýnast. Mér finnst að jólin eigi að vera þau sjálf, látlaus í sínum anda. Skreytingar skapa jólastemmingu, en ég vil eng- ar öfgar í því.” Leggið þið mikið upp úr matn- um? „Já við gerum það, reynurn að hafa tilbreytingu dálítið mikla, og matinn góðan og spennandi. Uppá- haldsmaturinn minn er svínasteik með harðri og góðri pöru, beikonið vel harðnað utan á steikinni. Ég hef aldrei smakkað ijúpu, það er kannski ekki alveg rétt. Mig minnir að ég hafi borðað hana hjá foreldrum mínum einu sinni þegar ég var lítill og fannst ég vera með mold uppi í mér. Ég hef aldrei látið hana inn fyrir mínar varir síðan. Svona get ég nú verið klikkað- ur, en ég hef í heiðri hangikjötið og við borðum það alltaf á gamlárs- kvöld.” Hvað er nú uppáhalds jólagjöfin sem Hallbjörn hefúr fengið? „Ekki nein sérstök sem stendur upp úr. Þegar ég var að alast upp vom aðrir tímar. Ég var yngstur af 16 systkinum og þá var fólk ánægt með hvað sem það fékk. Það sem maður hugsar um er að eiga ánæguleg jól með fjölskyldunni, börnum og barnabörnum, njóta jól- anna og nærvem fjölskyldunnar. Það er það sem mér finnst skipta mestu máli,” sagði Hallbjöm Hjartarson. félögunum í klúbbnum datt það í hug að það væri upplagt að borða hangi- kjöt á jólafúndinum. Við tókum okk- ur því til og sendum kjötskrokk til Bjarna ásamt öðru kjöti en létum hann ekkert vita um okkar kjöt. Eftir jólin sendum við Bjarna kort og þökkuðum honum kærlega fyrir reyk- mguna. Bjama fannst þetta svo gott hjá okkur að um næstu jól gekk hann eftir að fá skrokkinn til reykingar fyr- ir klúbbinn og alltaf upp frá því með- an hann liföi. Þetta varð árvisst að við komum saman á jólafúndinn, lásum jólaguðspjallið, fómm með faðirvor- ið saman og borðum svo hangikjötið. Það eru nokkur ár síðan klúbburinn lagði upp laupana, en ennþá er komið saman til jólafundarins á Bíldudal og borðað hangikjötið.”

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.