Feykir


Feykir - 18.12.2002, Blaðsíða 11

Feykir - 18.12.2002, Blaðsíða 11
44/2002 FEYKIR 11 Héraðshælið á Blönduósi. var byijaður á í Þýslalandi, þ.e. kven- sjúkdómum og fæðingarhjálp. Ég tók mér þvi ffí ffá störfúm 1985 og hélt á- ffam minu námi þar sem ffá var horf- ið, vann þá bæði á handlækningadeild og kvennadeild Landspítalans, en lauk svo náminu við kvennadeild Háskóla- sjúkrahússins í Wurzburg í Þýskalandi 1988. Jólin á sjúkrahúsi Á Héraðshælinu á Blönduósi á þessum tíma, má segja að bæði sjúk- lingarnir og eldra fólkið sem bjó á dvalarheimilinu, hafi verið ein fjöl- skylda. Það var venjan að fá séra Þor- stein Gíslason sem þá var í Steinnesi til að halda helgistund á sjúkrahúsinu um jólin. Hann var um þetta leyti far- inn að þreytast til ferðalaga og ég fékk í hans stað prestinn á Skagaströnd, séra Pétur fngjaldsson. Það var venjan að hefja jólin með helgistund klukkan fjögur á aðfanga- dag. Þá var jólastund fyrir sjúkingana og gamla fólkið á dvalarheimilinu. Ef prestur gat ekki af einhveijum ástæð- um mætt til aðventustundar þá hljóp ég í skarðið og var með smá jóla- andakt í ein þijú skipti. Mæltist það á- gætlega fyrir. Það var líka fastur liður um jólin að eftir að jólasveinamir vom búnir að heimsækja bömin á jólaballið, að þá komu þeir við á Héraðshælinu með pakka handa sjúklingunum og dvalar- heimilisgestum. Það var skemmtileg- ur og ágætur siður, fólk hafði gaman af þessum líflegu heimsóknum. Útkall á jóladag Stundum kom það fyrir að læknir- inn var kallaður út um jólin. Mér er það minnisstætt einu sinni að þá var það bam sem átti í öndunameyð. Það var sýnt að við yrðum að flytja bamið til Akureyrar, en tvísýnt var með veð- ur þegar við lögðum af stað á sjúkra- bílinum. Á Öxnadalsheiðinni var kominn talsverður snjór og ófærð og það batnaði ekki þegar við komum niður í Öxnadalinn. Þegar við komurn urn miðjan dalinn sáum við bíl sem lent hafði utan vegar. 1 bílnum var lamaður maður, ffá mitti, og ung kona með honum. Þetta fólk var ffá Sauðár- króki. Fólkinu var orðið kalt en það hafði gert ráðstafnir þannig, að ef það yrði ekki komið til síns heima fyrir til- tekinn tíma þá yrði grennslast eftir því, ekki vom nú farsímamir á þess- um tíma. Við tókum fólkið upp í sjúkrabilinn og þegar við nálguðumst Akureyri mættum við leiðangrinum sem sendur var effir fólkinu. Baminu var komið á sjúkrahús, en ég og bílstjóri sjúkrabílsins urðum að leita gistingar á Akureyri um nóttina þar sem vegir vom orðnir ófærir. Þetta var á jóladag og allir matsölustaðir og hótel lokuð. Það var lítið matarkyns sem við höfðum, en við fómm á lög- reglustöðina að leita aðstoðar. Þar var okkur bent á að hafa samband við konu sem veitti okkur húsaskjól. Við fórum svo í kjölfar Norðurleiðarrút- unnar til baka morguninn effir, á ann- an í jólum, enda var þá komið skikk- anlegt veður. Árið kvatt í vinahópi Við hjónin bjuggum í enda Hér- aðshælisins og dvalarheimilið var á efstu hæðinni. Þama var hátt í tuttugu manns. Gamla fólkið kom alltaf niður á gamlársdagskvöld og við reyndum að gera smá dagamun. Gáfum gestun- um snafs, eitthvað dauff í glas, og smá veitingar. Það kunni afskaplega vel að meta þetta. Fólk var svo nægjusamt á þessum tíma og það sem var á dvalar- heimilinu átti margt hvert lítið annað en fötin sem það var í. Þetta voru skemmtilegar stundir og við hlustuð- um saman inni í stofunni hjá okkur þegar útvarpsstjóri flutti áramóta- ávarpið og nýtt ár gekk í garð. Myndaáhuginn Ég hef lengi verið mikill áhuga- maður um að taka myndir og á árinu 1966 fékk ég mér þessa „súper átta“ kvikmyndatökuvél sem þá var kom- inn á markaðinn. Ég var svo búinn að fá mér 16 mm vél þegar Blönduós fagnaði 100 ára verslunaraffnæli 1976. Ég gerði mynd um hátíðina og sýndi hana við ýmiss tækifæri. Fékk svo mikla hvatningu um að setja hana á myndband, sem ég gerði skömmu effir að ég varð sjötugur. Svo var ég að vinna með Páli Steingrimssyni og Kvikmönnnum að gerð myndar um A.-Hún. 2000, sem nýlokið er við. Núna þegar ég er búinn að fá mér á- gætlega fiillkomna digital vél, þá er ég búinn að færa myndir sem ég tók á Héraðshælinu 1966-’67 inn í þetta form, en á effir að vinna efnið betur, svo sem hljóðsetja.“ Sigursteinn sýnir blaðamanni hluta Kór eldri borgara á Blönduósi. Sigursteinn lengst til vinstri. af þeim myndum og þama er þekkt fólk úr héraðinu sem nú er löngu horf- ið. „Halldóra Bjamadóttir passaði sig alltaf á því að taka niður gleraugun þegar teknar vom af henni myndir, svo ekki speglaðist í þeim“, segir Sig- ursteinn. Þama era m.a. myndir af Jóni pósti Sölvasyni, skáldinu Ólafi Sigfussyni frá Forsæludal, Guðmundi frá Holti á Ásum og fleirum. Sérstakir karakterar Það em sjálfsagt margir minnis- stæðir samferðamenn og sérstakir karakterar? „Það var sérstaklega gaman að hitta Lúðvík Kemp sem þá bjó á Skagaströnd og var formaður sjúkra- samlagsins þar. Þá var sjúkrasamlag í öllum tíu hreppum A.-Hún. Lúðvík hugsaði vel um sitt sjúkrasamlag og það var dæmigert fyrir hann, að þegar einhver sjúklingur úr hans samlagi var lagður inn á sjúkrahús, þá var Lúðvik fljótur að koma við hjá mér og fá vott- orð til að senda suður i ráðuneyti. Þetta gerði hann til að koma sjúkl- ingnum strax á ríkisframfærslu, svo sjúkrasamlagið þyrffi sem minnst að borga. Hann lét ekki duga að senda vottorðið, heldur samdi jafnan heil- mikinn brag með þvi. Þeim í ráðu- neytinu var víst orðið fengur í því að fá sendingamar frá Lúðvík, höfðu garnan af þeim. Kernp sagði sjálfur að þeir í ráðuneytinu fæm lítið effir vott- orðunum frá lækninum, það væri miklu meira atriði hvemig bragurinn félli í kramið hjá þeim. Ólafur Sigfússon skáld frá For- sæludal var ráðsmaður hjá mér á sjúkrahúsinu. Ólafúr hafði gaman af því að fá sér tár i glas, en fór vel með. Séra Hjálmar Jónsson var góður kunningi Ólafs, en hann hafði verið prestur í Bólstaðahlíð og var kominn á Sauðárkrók á þessum tíma. Hjálmar sendi Óla þessa vísu. Hollur siður heldur dvín hefúr nautnin völdin. Skyldu þeir breyta vatni í vín í Vatnsdalinum á kvöldin. Ólafúr var skjótur til svars. Ekki skaltu efa það um þær hetjur slyngar. í fórspor Krists þeir fygljast að flestir Vatnsdælingar.“ Sigursteinn ásamt sambýliskonu sinni Kristínu Ágústsdóttur.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.