Feykir - 21.02.2007, Qupperneq 6
6 Feykir 08/2007
Alexandra Chernyshova ætlar að setja upp LaTraviata í Skagafirði
Fallega söngkonan
frá Hofsósi
Alexandra Chernyshova söngkona vekur athygli hvar sem hún kemur. Fyrir fallegan
söng, glæsilegan klæöaburö og fágaöa framkomu. Þessa dagana vinnur hún aö
uppsetningu óperunnar LaTraviata og þaö ekki hjá íslensku óperunni heldur Óperu
Skagafjaröar. Okkur langaöi að fá aö vita aöeins meira.
Hann er örlítið þoku- Korsakov, Gilda frá óperunni
kenndur dagurinn sem við
hittumst. Eítir froststillur
síðustu viku er hálf grátt um að
litast og þegar rennt er inn á
Hofsós er ekki hræðu að sjá.
Allir í vinnu eða skóla. Hjónin
Alexandra Chernyshova og Jón
Hilmarsson, skólastjóri, taka
vel á móti mér og inni hjá þeim
er allt annað en grámygla.
Heimili þeirra ber góðum
smekk húsmóðurinnar fagurt
vitni og inni í stofu á píanóið
sinn heiðursstað. Jón mundar
kaffivélina og við fáum okkur
sæti. Viðtalið getur hafist og
við hefjum söguna í Úkraínu.
Afar og ömmur Alexöndru
höfðu líkt og hún sjálf orðið
fyrir áhrifum listagyðjunnar.
Afinn var kvikmyndaleikstjóri,
amman leikkona og bróðir
hennar óperusöngvari. -Síðan
kemur pabbi minn og hann er
lögfræðingur og mamma hún
er prófessor í bókmenntum og
starfar sem slíkur. Mamma og
pabbi voru því alltaf að reyna
að lieina mér inn á sínar brautir.
Ég átti að vera lögfræðingur
eða eitthvað slíkt. Það má þó
ekki misskiljast að ég hafi orðið
fyrir miklum þrýstingi þannig.
Þau vildi mér aðeins það besta
og fannst að framtíðin væri
betri ef ég lærði eitthvað
hagnýtara en söng, rifjar
Alexandra upp.
Alexandra kemur frá Kænu-
garði þar sent búa um 4
milljónir manna og til gamans
má geta að í borginni eru yfir
200 leikbús. Eða eins og eitt
leikhús á hvern íbúa Hofsóss.
Listagyðjan sleppti þó ekki
alveg heilli kynslóð því fáðir
Alexöndru er ljóðskáld sam-
hliða lögfræðistörfunum og
hefur gefið út fjórar Ijóðabæk-
ur. Sjálf byrjaði Alexandra ung
að læra á píanó og síðar tók
söngnámið við.
Samhliða því að taka há-
skólagráðu í ensku, spænsku
og bókmenntum. Eftir nám
var hún fastráðin við óperuna í
Kiev og söng þar nokkur stór
hlutverk á borð við Zarevna
Lebed frá óperunni Skazka o
zare Saltane eftir Rimskiy -
Rigólettó eftir G. Verdi, Gosi
úróperunni Gosi eftir O.Bilash
o.fl.
-Þetta óperuhús hafði þá
sérstöðu að það var líka með
óperur fýrir börn og var með
verk sem voru að höfða meira
til yngra fólks, segir Alexandra.
Eins og gefur að skilja fór allur
tími Alexöndru í námið og
sönginn. 16 ára görnul söng
hún með útvarpssinfóníu
Úkraínu. 18 ára söng hún fyrst
í óperunni og lék þá strák. 22
ára hafði hún síðan lokið
tveimur háskólagráðum. -Það
var því ekki mikill tími fýrir
stráka og skemmtanir og ég
þurfti að hafa mikinn sjálfsaga
til þess að halda öllu því sem ég
var að gera. Eins höfðu
foreldrar mínir mikinn metnað
fýrir rnína hönd og þrýstu á
ntig að taka eitthvað alvöru
nám meðsöngnum. Námsferill
minn hafði alltaf verið mjög
góður og þau vildu styðja mig
til mennta. Eftir að ég hafði
með láði lokið námi í
tónlistaháskóla sáu þau hins
vegar að söngurinn var mitt líf
og hafa síðan þá stutt mig á
þeirri braut.
Ást við fyrstu sýn
Alexandra hefur lagt stund
á söngnám í Þýskalandi og á
Italíu og sumarið 2003 lá leið
hennar til Spánar. Um sumarið
vann hún sem túlkur fyTÍr
börn frá Chernobil sem þetta
sumarið höfðu sumardvöl á
spænskum heimilum. Um
haustið átti síðan leið hennar
að liggja til Madrid, nánar
tiltekið í Escuela Superior de la
Musica de la Reina Sofia.
Skóli sem er ætlaður
atvinnutónlistarmönnum sem
búnir eru með meistaragráðu.
Það er skemmst frá því að
segja að þetta sumar breytist
allt. Jón nokkur Hilmarsson
hafði skellt sér í sumarffí til
Barcelona þar sem hann koma
auga á þessa líka gullfallegu
stúlku. Alexandra vill fá að
eiga þessa sögu fýrir sig en Jón
kemur því að að málið hafi
ekki verið neitt flókið. Ást við
fýrstu sín hafi verið málið og
um haustið hélt Alexandra
ekki áfram í söng-námi sínu
heldur flutti hún til Keflavíkur.
Jón, ekki síður metnaðarfullur,
vann þá sem umsjónarmaður
Garðalunds, félagsmiðstöðvar
í Garðabæ, samhliða því var
hann í viðskiptafræði og hafði
lokið kennaramenntun.
-Það voru viðbrigði að
koma til Keflavíkur. Svo fáir
á ferli og húsin svo lítil. Mér
fannst eins og þau væru bara
dúkkuhús. Ég kom hingað í
byrjun nóvember og það var
allt svo dimmt úti og síðan
keyrði maður til Reykjavíkur
og það var öll leiðin upplýst.
Það fannst mér mjög sérstakt
því að í Úkraínu er rafmagnið
nrjög dýrt og ekki svona mikið
af ljósum. Það tók mig tíma
að átta mig á þessu og til þess
að byrja með gekk ég um og
slökkti öll ljós til þess að spara,
rifjar hún upp og þau hjón
hlæja bæði.
Skapar eigin
tækifæri
Eftir að Alexandra
flutti til íslands
fór hún þrisvar sinnum
í prufu eftir að auglýst
hafði verið effir óperu-
söngkonum. Einu
sinni var henni hafnað
vegna þess að hún
var atvinnusöngkona,
í hin skiptin var
henni hrósað fyrir
fallegar háar nótur
en ekkert varð úr. J
-Þetta er mjög
þröngur hópur
sem kemst að
hér á landi
og þetta eru
einu aug-
lýsingarn-
ar sem
hafa
verið síðan ég flutti. Auðvitað
langar mig að syngja í óperunni
og ég tel að það yrði ekkert
mál þrátt fyrir að ég búi hér.
Það dreymir allar söngkonur
um að fá að syngja í óperunni
með hljómsveit á bak við sig
en á meðan það er aðeins ein
ópera hér á landi þá verður
það erfitt. Þess vegna kviknaði
sú hugmynd að setja á svið
óperu hér í Skagafirði, segir
Alexandra.
Hún segir að það hafi
komið sér mjög á óvart þegar
hún kom hingað í fjörðinn og
fór að rekast á bændur sem
aldrei höfðu menntað sig neitt
í söng en réðu engu að síður
við það að stökkvað upp á svið
sem fúllskapaðir söngvarar.
-Þvílíkir náttúruhæfileika-
menn, það eina sem þá
hefur kannski vantað er að
læra að lesa nótur, annað
hafa þeir frá náttúrunnar
hendi, segir Alexandra með
aðdáun í röddinni. Sjálf
kemur hún til með að fara
með hlutverk Violettu sem
er aðal kvenhlutverkið. -Ari
Jóhann Sigurðsson sem býr í
Varmahlíð, æðislegur tenór,
ætlar að syngja hlutverk
Alfredo, Þórhallur Bárðarson
frá Blönduósi syngur hlutverk
Germont og Sigurður Skag-
fjörð ætlar að syngja hlutverk
Dourphol. Alls eru átta
einsöngvarar 1 sýnmgunm.
Síðan auglýstum við eftir fólki
í kórinn. Það var örlítið erfitt
að fá karlmenn í kórinn því
margir eru í öðrum kórum og
félagsstörfum og hafa því ekki
mikinn tíma en þetta hafðist
allt saman. Við erum búin
að fá 20 konur og 11 karla í
kórinn og erum við að æfa á
fullu þessa dagana. Óperan er
á ítölsku og því er þetta svolítið
erfitt fyrir fólk að ná tökum á
henni en það er allt að koma.
Tom R. Higgerson hefur
verið mjög hjálplegur og
komið sterkur inn í verkefnið
en hann er frábær píanisti.
LaTraviata er í fullri lengd um
3 tímar á lengd en Alexandra
segir að það hafi verið of langt
fyrir áhorfendur ,langt og
erfitt, og því hafi þau ákveðið
að fara í styttri útgáfu sem er
um 2 tímar.
-Þetta er blanda af tónleika-
og leikútfærslu og við höfum
fengið 143 manna kammer-
hljómsveit frá Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands til þess að
spila með. Stjórnandi hljóm-
sveitarinnar verður Guðmund-
ur Óli Gunnarsson, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveitar Norður-
lands. Þettaersamstarfsverkefni
Óperu Skagafjarðar og Sin-
fóníuhljómsveitar Norður-
lands. Þá verður mikið vandað
til með uppsetninguna meðal
annars með Ijósasýningu og
dönsurum. Það var mjög
erfitt að finna nótur fyrir
þessa tegund hljómsveit-
ar og vorum við Jón
búin að liggja yfir því
á netinu í langan tíma.
Ég held svei mér þá
að hálf Úkraína
hafi verið komin
í málið en loks
fúndum við réttu
nóturnar í
London.