Feykir - 21.02.2007, Side 10
lO Feykir 08/2007
Félagsstarf eldri borgara á Löngumýri 10 ára
Stendur í blóma
Félagsstarf eldri borgara í Skagafirði stendur í mikium
blóma og þéttskipuð dagskrá flesta daga vikunnar fyrir þá
sem áhuga hafa á að vera með. Nýlokið er þorrablóti og
innan fárra daga leggur stór hópur land undir hjól og brunar
á sparidaga á hótel Örk í Hveragerði svo það er í mörg
horn að lita hjá þessum dugmikla og glaðværa hóp.
Hinar reglubundnu sam-
verur fara að mestu fram í
Ljósheimum og á Löngumýri,
en þar var þess minnst á
dögunum að nú í febrúar
voru liðin 10 ár ífá fyrstu
skipululögðu samkomunni
fyrir eldri borgara.
1 stuttu ávarpi Helgu
Bjarnadóttur formanns félags
eldri borgara í Skagafirði
rifjaði hún upp aðdragandann
af starfinu á Löngumýri
sem var hugarfóstur hennar
og Margrétar heitinnar
forstöðukonu, en þeim stöllum
datt í hug að auglýsa samkomur
af þessum toga sem síðan hafa
verið óslitið hálfsmánaðarlega
ffá hausti og fram á vor og
ævinlega vel sóttar.
Dagskráin er í mjög föstum
skorðum á þessum dögum.
Fyrst er sungið dátt við undir-
leik Kristjáns Stefánssonar ffá
Gilhaga, en síðan er lesið eða
farið með gamanmál þar til
spilamennskan hefst. Aðeins
er gert hlé á henni til að gera
veislukaffi þeirra Helgu Bjarna
og Indu í Lauftúni góð skil, en
þær ásamt Kristjáni bera hitan
og þungan af starfinu ffemra
og hafa í öll þessi ár sveigt borð
undan veitingum.
í tilefni þessara tímamóta
heiðraði vígslubiskupinn
á Hólum Jón Aðalsteinn
Baldvinsson samkomuna og
fór vítt um í sínu líflega ávarpi.
Helga setur samkomuna.
Þrenningin sem sér um Löngumýrarsamverurnar af stakri prýði ásamt vígslubiskupi. Fv.
Helga Bjarnadótir, Kristján Stefánsson, Inda i Lauftúni og Jón Aðatsteinn.
Alltaf eru nokkrir i Briddsinum þó fleiri einbeiti sér i vist.
Umsóknir
um styrki
Menningar- og kynningarnefnd og Félags- og
tómstundanefnd auglýsa eftir umsóknum um
styrki til menningarviöburöa og til æskulýðs-
og tómstundamála á fyrri hluta ársins 2007
Nánari upplýsingar gefa:
Sviðsstjóri Markaðs- og þróunarsviðs:
sími 455 6000; netfang heidar@skagafjordur.is
Æskulýðs- og tómstundafulltrúi:
sími 455 6000; netfang mariabjork@skagafjordur.is
í styrkumsókn skal koma fram markmið verkefna og áætlanir um
framkvæmd þeirra sem skulu vera skýrar og raunhæfar hvað varðar
kostnaö, tímasetningar og kröfur til ábyrgðarmanna.
Listrænt og/eða fræðilegt gildi verkefnisins þarf aó vera Ijóst.
Sýnt skal fram á að styrkurinn sé líklegur til aö efla æskulýðs-,
tómstunda- og menningarstarfsemi í Skagafirði.
Með umsóknunum skulu fylgja upplýsingar um umsækjendur og
ábyrgóarmenn. Tekió skal fram fyrir hvað styrkurinn er ætlaður, önnur
fjármögnun tilgreind og ársskýrsla viðkomandi umsækjanda
lögö fram sé hún til.
Umsóknum skal skilað fyrir 12. mars 2007 í Ráðhús, Skagfirðingabraut 17-21
eða með tölvupósti í netfangið skagafjordur@skagafjordur.is
Menningar- og kynningarnefnd
Félags- og tómstundanefnd
www.skagafjordur.is
Skagafjörður
Sáttmáli til sóknar
í skólamálum í Skagfirði
Verkefnastjórn verkefnisins Sáttmáli til sóknar í skólamálum
í Skagafirði auglýsir eftir styrkumsóknum úr sjóðnum.
Öllum er heimilt að sækja um stuðning eða koma með ábendingar til
nefndarinnar og er einungis gerð sú krafa að um eflingu á skólastarfi
í Skagafirði sé að ræða.
Verkefnið spannar öll skólastig í héraðinu frá leikskólum til háskóla
ásamt tónlistarskóla og farskóla.
Ekki er gert ráð fyrir að veita styrki til bygginga skólahúsnæðis en
hægt er að sækja um styrki til kaupa á tækjum og búnaði.
Nánari upplýsingar á ks.is og skagafjordur.is
Einnig má hafa samband við
verkefnisstjórnina en hana skipa:
Ásta Pálmadóttir, Einar Einarsson,
Herdís Sæmundardóttir, Jón Hjartarson,
Ólafur Sigmarsson og Páll Dagbjartsson