Feykir - 12.07.2007, Side 4
4 Feykir 26/2007
Gísli Árnason skrífar
Hvað gengur
mönnum til
Kaupfélag Skagfirð-
inga, sem er í eigu
almennra félags-
manna í Skagafirði,
og stjórnendur þess,
hafa á síðastliðnu ári
selt meginhluta stofn-
fjárbréfa sinna í Sparisjóði
Skagafjarðar út úr
héraðinu.
Kaupendur voru fýrirtæki og
einstaklingar í viðskiptalífinu,
sem meðal annars tengjast
Sparisjóði Mýrasýslu og gömlu
Sambandsfyrirtækjunum.
Þessir nýju stofnfjáreigendur
hafa nú eignast meirihluta
stofnfjárbréfa í sparisjóðnum
okkar og stefna nú á þessum
dögum, ásamt stjórnendum
Kaupfélags Skagfirðinga, að
yfirtölcu sjóðsins og leggja hann
niður.
Ekkert er við því að segja þótt
einstaklingar selji hlut sinn
úr héraði en spyrja má að því
hvaða hagsmunir liggja að baki
þegar Kaupfélag Skagfirðinga
selur hluti sína, án þess að hafa
fyrir því að bjóða stofhfjárbréfin
til sölu í heimabyggð, í grasrót
Kaupfélagsins sjálfs. Ég veit að
ekki skortir áhuga heimafyrir
að kaupa hluti í sjóðnum.
Með þvi væri verið að fjölga
viðskiptaaðilum og skjóta
styrkari fótum undir starfsemi
hans.
Tillaga um aukinn hlut
heimamanna ekki
tekin fyrir
Það er einnig ótrúlegt að
meirihluti stjórnar sjóðsins
hafi í tvígang komið í veg fýrir
að tillaga mín verði tekin f'yrir á
fundi stofnfjáreigenda. En hún
gerir ráð fýrir aukningu stofhfjár
um 200 milljónir til almennings
í Skagafirði.
Með því að hafha tillögu
minni var augljóslega unnið
gegn hagsmunum sparisjóðsins
og Skagfirðinga. Unnið gegn
héraðinu í heild.
Sparisjóður Skagafjarðar
hefur mikil sóknarfæri sem
fjármálastofnun í héraðslegri
eigu. Hins vegarhefúrmeirihluti
stjórnar sparisjóðsins unnið að
því hörðum höndum að gera
stöðu hans sem versta í augum
almennings á opinberum
vettvangi. Haft er eftir
stjórnarformanni sparisjóðsins,
Ólafi Jónssyni, sem jafnframt
er sparisjóðsstjóri Sparisjóðs
Siglfirðinga, í Morgunblaðinu
26. júní síðastliðinn að
“stjórnin telji sjóðinn ekki
rekstrarhæfan í núverandi
mynd, þrátt fjtir 200 milljón
króna stofnfjáraukningu”.
Stofnfjáraukning heimafýrir
hafi ekkert að segja og því komi
tillaga mín ekki til greina. Hvað
í ósköpunum er þessi maður
að gera í stjórn Sparisjóðs
Skagafjarðar.
Að sitja báðum megin
við borðið
Hvergi hefur annað komið fr am
en tillaga mín væri fýrsta skrefið
til þess að gera sparisjóðinn
að öflugri fjármálastofiiun í
heimabyggð.
Það má velta fýrir sér
hagsmunum þeirra sem sjá
hag sinn í að tala Sparisjóð
Skagafjarðar niður samtímis og
verið er að leggja hann inn í ann-
an sparisjóð, sem viðkomandi er
í forsvari fyrir. Rétt er að minna
á að Sparisjóður Mýrasýslu á
Sparisjóð Siglufjarðar að fúllu
en hann á að fá okkar sjóð á
silfurfati. Segja má að þarna séu
sömu hagsmunaaðilar beggja
vegna borðsins.
Hagsmunir Skagfirðinga
í húfi
í fjölmiðlum undanfarið
hefur verið reynt að gera
lítið úr áhrifum Kaupfélags
Skagfirðinga á framgang
mála að undanförnu. Það
er aumt yfirklór, þar sem
Sigurjón R. Rafnsson aðstoðar-
kaupfélagsstjóri K.S. og Ágúst
Guðmundsson deildarstjóri
K.S. eru fúlltrúar þess í stjórn
Sparisjóðs Skagafjarðar og ráða
málum þar. Hverra hagsmuna
eru þeir að gæta? Hvað gengur
þeim til?
Gísli Ámason,
stofnjjdreigandi
Skagafirði
María Reykdal skrifar
Um Krabbameins-
féiag Skagafjarðar
Þann 12. júní 1966
var Krabbameinsfélag
Skagafjarðar stofnað
á fundi í Héðinsmynni
í Akrahreppi.
Stofnfélagar voru
47. Það af voru 33 úr
Akrahrepp, 8 úr Seyluhrepp,
I úr Lýtingsstaðahrepp, 1 frá
Hofsósi og 4 frá Sauðárkróki.
Um næstu áramót voru
félagar um 400 og ári síðar eða
um áramótin 1967/68 voru
félagar orðnir 756. í dag eru
þeir um 420. I upphafi
var félagið stofnað í kringum
Þú hefur alltaf góða ástæðu til
að heimsækja Norðurland vestra!
DÖFINNI
30. júní: Áskaffi, Glaumbæ -
- „Kvöldverdur að handan Vatna hætti
12. júlí: Sauðárkrókur
- Knattspyrna á króknum M.fl. karla - 3.deild,
Tindastóll - Hvöt kl. 20:00
13. -15. júlí : Blönduós
- Húnavaka 2007 Fjölskylduhátíð á Blönduósi
Fram koma meðal margra annara: Björgvin Franz Gíslason, Jógvan
og Hara, Skoppa og Skrítla, í svörtum fötum, Örn og Óskar og margir
fleiri. Fjölbreytt og hressileg dagskrá.
19. júlí: Áskaffi, Glaumbæ
- „Kvöldverður að handan Vatna hætti”
15. júlí: Hólar
-Tónlcikar. Jón Bjarnason orgel, kl. 14:00
18. júlí: Sauðárkrókur
- Kaffi Króks-mótaröðin Golfmót á Hlíðarendavelli kl. 16:00
SAMTOK SVEITARFÉLAGA A NORÐURLANDI VESTRA
ATVINNUÞROUN
leghálskrabbameinsleit hjá
skagfirskum konum, en í dag
gegnir félagið margvíslegu
hlutverki, það rekur
þjónustumiðstöð að Aðalgötu
lOb, býður upp á námskeið
fýrir krabbameinssjúka
og aðstandendur þeirra,
orlofsdvöl að Löngumýri
í Skagafirði, borgar leigu
fyrir sjúklinga í íbúðum
Krabbameinsfélagsins í
Reykjavík og margt fleira.
Undanfarið hafa Krabba-
meinsfélaginu borist margar
góðargjafir. Helga Bjarnadóttir
gaf félaginu peninga þá sem
safnast höfðu er hún hélt
upp á afmæli sitt í nóvember
2005. En hún hafði afþakkað
affnælisgjafir og óskað eftir að
fólk styrkti Krabbameinsfélag
Skagafjarðar í staðinn til
minningar um tvær frænkur
sínar sem látist höfðu úr
krabbamei.ni.
Samband skagfirskra
kvenna gaf félaginu ágóðann
af vinnuvökunni 2006 sem var
tæp 300 þúsund til að útbúa
líknarherbergi.
Bekkjarsystkini Ögmundar
Helgasonar gáfu rausnarlega
upphæð til minningar
um hann, en hann lést úr
krabbameini 2006, til kaupa á
búnaði í líknarherbergi.
Kvenfélag Lýtingsstaða-
hrepps gaf 25.000 kr. til kaupa
á hljómflutningstækjum í
líknarherbergi til minningar
um Herdísi Björnsdóttur,
Varmalæk.
Allar þessar góðu gjafir
hafa verið notaðar til þess
að útbúa líknarherbergi
við Heilbrigðisstofnunina
á Sauðárkróki og reynt
að gera það eins þægilegt
og heimilislegt og hægt
er fyrir þá sem dvelja þar
við lífslok. Meðal annars
hefur verið keyptur flatskjár
og heimabíókerfi, góður
hægindastóll, ísskápur og
kaffivél.
Einnig héldu þessir
duglegu krakkar tombólu
og söfnuðu 9000 krónum
og gáfu Krabbameinsfélagi
Skagafjarðar.
Stjórn félagsins þakkar
fýrir þessar góðu gjafir og
þann almenna velvilja sem
er ríkjandi í garð félagsins í
héraðinu.
María Reykdal
smáauglýsingar...
Bíll til sölu
Ford Mondeo árg. 2001. Ekinn 74. þús
km. Sjálfskiptur. Góð nagladekk á
felgum fylgja. Glæsilegurbill.
Upplýsingarí síma 867-5547
- Arnar
Rakstrarvél til sölu
Dragtengd Claas með vökvalyftu og
rakstrarhjólum.
Upplýsingar fást i síma 892 7482
IJón)
Rúm til sölu
Til sölu fururúm, 1,6m á breidd með
3ja ára gamalli heilsudýnu úr Svefni
og heilsu.
Tilvalið ísumarbústaðinn!
Upplýsingarísíma 8982596.
Sendlð smáauglýsingar til birtingar á feykir@nyprent.is