Feykir - 12.07.2007, Blaðsíða 5
26/2007 Feykir 5
íþróttafréttir
Landsmót UMFÍ
Góðuppskera
Landsmót UMFÍ var haldið
um helgina í Kópavogi.
Frjálsíþróttalið var sent írá
UMSS, sem og einn keppandi
frá USVH og einn frá USAH.
Þetta ágæta íþróttafólk stóð sig
allt með stakri prýði á mótinu.
I liði UMSS voru 9 keppend-
ur og var heildaruppskera
þeirra á mótinu ekki verri en sú
að liðið fékk eitt gull, tvö silfúr
og þrjú brons. Helga Margrét
var keppandi USVH og stóð
sig ffábærlega, en hún sigraði
í kúluvarpi auk þess sem hún
fékk silfúr í spjótkasti. Loks var
það Haukur Geir Valsson sem
keppti fyrir USAH, en hann
komst í úrslit í spjótkasti og
hafnaði þar í 9. sæti.
Karlaspark
Stólar og Hvöt
í toppbaráttu
Heil umferð var leikin í C riðli
3. deildar karla síðastliðinn
föstudag og báru bæði Hvöt
og Tindastóll sigurorð af
andstæðingum sínum. Hvöt
tók á móti Álftanesi og sigraði
þá viðureign 1-0 en Tindastóll
burstaði Hvíta Riddarann 8-1.
Tindastóll hafði yfirhöndina
mest allan leikinn gegn
Hvíta riddaranum og tóku
frumkvæðið strax í byrjun
leiks. Staðan í hálfleik var 2-1,
Tindastóli í vil, og voru það þeir
Konráð Þorleifsson og Kristján
Baldursson sem skoruðu mörk
Tindastóls.
Snemma í seinni hálfleik
tók Tindastóll að raða inn
mörkunum, hvorki meira né
minna en 6 mörkum. Það
voru þeir Konráð og Kristján
sem voru aftur á ferðinni með
sín önnur mörk hvor, Ingvi
Hrannar Ómarsson var með
tvennu, sem og Ebbe Nygaard,
en Ebbe hefúr nú skorað 6
mörk í 4 leikjum fyrir Tindastól.
Stólarnir eru enn í efsta sæti
riðilsins, en Hvöt fylgir þeim
í öðru sætinu og eru með 17
stig.
Viðureign Hvatar og
Álftaness fór þannig að Hvöt
sigraði með einu marki gegn
engu ogvar það Milan Djurovic
sem skoraði mark Hvatar á 44.
mínútu, en þetta er þriðja mark
hans í sumar. Hvatarmenn
brenndu af mörgum færum og
hefðu vissulega átt að setja fleiri
mörk. En engu að síður, sigur í
höfii og 3 stig í pottinn. ,
Tindastólsstúlkur uppskáru 4 stig fyrir austan
Sigur og jafntefli
Meistaraflokkur Tindastólskvenna hélt austur á land um
helgina. Stefnan var sett á Fáskrúðsfjöró og seinna á Höfn í
Hornafirði og öttu þær kappi við Leikni F. og Sindra.
Tindastóll byrjaði leikinn þær Halla Mjöll Stefánsdóttir og
gegn Leikni F. af miklum krafti Elva Friðjónsdóttir á ferðinni.
og setti mark fyrst á 16. mínútu Stelpumar spiluðu mjög vel og
og affur á þeirri 19., enþarvoru loks setti Rabbý Guðnadóttir
þriðja mark Stólanna á 22.
mínútu. I seinni hálfleik héldu
stelpumar áffam af krafti, þó svo
að andstæðingarnir hafi komið
ögn sterkari til leiks en áður. Það
var Svala Guðmundsdóttir sem
skoraði annað mark seinni
hálfleiks og hitt var sjálfsmark.
Leiknum lauk loks með 5-0 sigri
Tindastóls.
Á sunnudeginum var leikur
gegn Sindra á Mánavelli á Höfn.
Sindri skoraði snemma tvö
mörk og sló Stólana útaf laginu.
Stelpumar gáfúst ekld upp þrátt
fyrir að vera 2-0 undir í hálfleik
og komu mun sterkari til leiks í
seinni hálfleik. Svala minnkaði
muninn og Halla jafnaði síðan
glæsilega úr aukaspymu.
Færðist nú spenna í leikinn,
Tindastóll átti m.a. skot í slá og
rétt yfir. En allt kom fýrir ekki og
úrslitin 2-2.
Heimsókn í Húnaþing
-----------------------------------\
Með krafta í kögglum! - sýning á
myndum Halldórs Péturssonar listmálara
við Grettissögu og Ár og kýr! - fjórir
mánuðir af 365 kúamyndum Jóns
Eiríkssonar bónda og listamans á Búrfelli
verða í Blöndustöð í sumar.
Kynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar
í starfsmannahúsi stöðvarinnar.
Kynnist okkur af eigin raun
Heimsækið Landsvirkjun í sumar.
Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar.
^ Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000
Landsvirkjun