Feykir - 06.03.2008, Qupperneq 9
09/2008 Feykir 9
Bjartur dagur og fagur
Á pálmasunnudag fermir
Sigríður sín fyrstu fermingar-
börn og segir hún að þessi
fyrsti fermingarárgangur eigi
eftir að skipa sérstakan sess
í huga hennar. En hvemig
skyldi fermingardagur sókn-
arprestsins hafa verið? -Minn
fermingardagur var sólríkur
og skemmtilegur, við vomm
fermd saman í Silfrastaða-
kirkju, ég og Addi nágranni
minn. Ég man að það þyrmdi
alveg yfir mig þennan dag, mér
fannst ég orðin svo fullorðin,
rifjar Sigríður upp brosandi,-
Veislan var heima í Tungu, þar
sem fjölskylda og vinir glöddust
með mér. Ég fékk Polaroid
myndavél í fermingargjöf sem
framkallaði myndina strax.
Ulu heilli fengust ekki í hana
filmur nema í takmarkaðan
Börnin sér til altaris
í dag koma mörg fermingar-
barna ffá blönduðum heim-
ilum, það er að segja foreldrar
þeirra hafa skilið og eru jafhvel
komnir með nýja fjölskyldu.
Fermingardagurinn er því oft
fyrsti dagurinn sem virkilega
reynir á samstöðu þessara
fjölskyldna.
Sigríður segir að við þessu
hafi forveri hennar í starfi
brugðist með því að láta
fermingarbörnin ganga ein og
sér til altaris og síðan koma
kirkjugestir á eftir. Hún sagði
mér að sér hefði verið þakkað
þetta á hverju ári. I sumum
fjölskyldum getur það verið
viðkvæmt hver á að fara með
barninu til altaris og hver ekki,
en með þessari aðferð þarf
ekkert að spá í það. Ég veit ekki
til þess að nágrannaprestarnir
hafi altarisgönguna með þess-
um hætti.
Nær tengslum við
fermingarbörnin
Hvað með fermingarbarna-
fræðsluna hefúr hún mikið
breyst frá því að þú fermdist?
-Já, ekki síst sökum þess að
í dag hefjum við fræðsluna
með vikuferð í Vatnaskóg.
Þar förum við í hefðbundna
fermingarffæðslu fyrir hádegi
en eftir hádegi velja krakkarnir
sér viðfangsefni eftir áhuga,
undir eftirliti og leiðsögn. Þá
er farið á báta, í íþróttahúsið,
heita potta og ýmislegt fleira.
Á kvöldin eru haldnar kvöld-
vökur og messur, enda mikil
áhersla lögð á helgihald, söng
og bænir. Þarna gefst manni
tækifæri til þess að kynnast
krökkunum og mynda tengsl
við þau. Þessi upplifun krakk-
anna er ekki ósvipuð því að fara
í sumarbúðir. Síðan hitti ég þau
reglulega ff am að fermingu auk
þess sem þeim er skylt að koma
í messur og kyrrðarstundir.
Það er liðið á kafiibollann
og tímabært að slá enda í
spjall okkar. I upphafi, áður
en Sigríður ákvað að láta vígja
sig til prests ákvað hún að gefa
starfinu tækifæri því ffeistandi
var það. Hvernig skyldi það
leggjast í hana svona eftir
þennan reynslutíma? -Það
leggst vel í mig, starfið er
þakklátt og oftast skemmtilegt
og alltaf lærdómsríkt, svarar
Sigríður að lokum.
tíma en þetta var mikil græja.
Síðan man ég að ég fékk þrjá
útvarpsvekjara og ýmislegt
fleira nytsamlegt dót og bækur
sem ég á enn, t.d Biblíu sem
Guðmundur á Egilsá gaf mér,
bætir hún við.
Heldur þú að dagurinn sem
þín fermingarbörn eiga í
vændum sé í miklu ffábrugðin
þínum? -Nei, ég held ekki.
Það er alltaf stór dagur í lífi
unglings þegar hann fermist og
þar af leiðandi gjarnan töluvert
tilstand á heimilinu.
Finnur þú fyrir því í starfi
þínu að það sé fólk sem ekki
hefur efni á að ferma bömin
sín? -Nei, sem betur fer verð
ég ekki vör við það.
FERMINGARBÖRNIN SVARA FYRIR SIG )
Kristveig Anna Jónsdóttir
Af hverju ákvaðst þú að láta ferma þig? -Ég er ekki alveg viss en maður þarf að
staðfesta skímina.
Hvenær er stóri dagurinn? -16 mars.
Er langt síðan þú og þið fjölskyldan fóruð að plana daginn? - Já, það er svolítið
síðan. Við emm búin að kaupa kertið, sálmabók, fötin, dúka og svoleiðis. Það er
allt að verða klárt
Hvaða væntingar hefur þú til fermingardagsins? -Ég held að hann verði
bara góður og mjög skemmtilegur. Það verður öll fjölskyldan saman komin og
hlátrasköllin munu dynja um húsið.
Haukur Sindri Gissurarson
Af hverju ákvaðst þú að láta ferma þig? ? -Það gera þetta allir og líka upp á
trúna, ég ólst upp við þessa trú og vil því staðfesta hana.
Hvenær er stóri dagurinn? -16. mars.
Hvað finnst þér þú hafa lært á fermingarfræðslunni? -Bara svona um Jesú og
allt sem hann gerði.
Á að halda stúra veislu? -Já, já svona svolítið. Við leigðum sal úti í bæ og ég verð
að játa að ég veit ekkert hvað á að bjóða upp á. Mamma sér um þá hlið.
?rmingardagurinn er stór dagur í lífi hvers unglings og margir vilja meina að
leð þessum degi skilji milli barns og unglings. Oft eru krakkarnir þó
Dinberlega sökuö um að ferma sig bara peninganna vegna og lítið standi á
ak við heitin sjálf. Feykir hitti nokkur fermingarbörn í fermingarfræöslutíma
g spurði þau út í ferminguna, veisluna og væntingar þeirra til stóra dagsins.
:erma sig til aó staófesta trú sína
Ása Svanhildur Ægisdóttir
Af hverju ákvaðst þú að láta ferma þig? -Af því að ég trúi á guð og er með því að
láta ferma mig að staðfesta þá trú. Eins til að allir sjái að ég trúi á guð.
Hvenær er stéri dagurinn? -29. mars.
Sumir segja að fermingarböm fermi sig í dag bara gjafanna vegna, hvað finnst
þér um það? -Það er auðvitað gaman að fá gjafir en þetta gengur ekki út á það
heldur ferminguna og staðfestingu trúarinnar. Sjálf veislan gengur lika út á að
hitta ættingja ogfagna þessum áfanga.
Hvað finnst þér fermingarfræðslan hafa kennt þér? -Mérfinnst hún hafa kennt
mér margt, hún hefur kennt mér út á hvað þetta allt gengur og hvers vegna ég er
að fermast Hvað guð gerði og svoleiðis.
Af hverju ákvaðst þú að láta ferma þig? -Til að vera fermdur.
Hvenær er stári dagurinn? 29. mars.
Á að halda stéra veislu? -Pínu við ætlum að halda hana heima og það koma allir
ættingjamir og við ætlum að bjóða upp á held ég bæði mat og kaffi.
Ef þú mættir breyta einhveiju í fermingarfræðslunni og undirbúningnum hverju
myndir þú breyta? -Engu, þetta er bara ágætt eins og það er.
Jenný Sif Ólafsdóttir
Af hverju ákvaðst þú að láta ferma þig? -Bara, staðfesta trú mína á guði.
Hvenær er stóri dagurinn? -11. maí á Hvítasunnu en égfermist í Vopnafjarðar-
kirkju. Ég er frá Vopnafirði og langar því að fermast þar með æskuvinum mínum.
Hvemig á veislan að vera? -Það verður matur og ég held femningarveisluna með
tveimur frændum mínum, við erum miklir vinir og okkur langaði til þess að halda
þetta saman.
Hefur fermingarfræðslan sjálf eitthvað breytt þínum hugmyndum varðandi
ferminguna? -Nei, eiginlega ekki, við emm svo sem ekki búin að vera að læra
neitt sérstakt.
Guöjón Vilhjálmur Ágústsson
Jónas Sigurjónsson
Af hveiju ákvaðst þú að láta ferma þig? -Það er góð spuming maður, ég veit
það ekki ég ákvað það af því að eldri systkini mín gerðu það, ég vil því bara halda
þeim hefð.
Hvenær er stór dagurinn? -16. mars á Pálmasunnudag.
Tniir þú á guð? -Já, ég trúi á guð, mjög svo.
Hvernig hefur fermingarfræðslan verið? -Hún hefur verið mjög, mjög skemmti-
leg. Gaman að vera svona allir krakkamir saman og eins skemmtilegt allt sem við
emm að gera.