Feykir - 06.03.2008, Blaðsíða 13
09/2008 Feykir 13
Tryggvi Björnsson og Akkur frá Brautarholti.
Hestaíþróttir
Molar
...Tryggvi Björnsson og sig gríðarlega vel á ísmóti á
Akkur frá Brautarholti stóðu Eiðavatni við Egilsstaði á
Óvæntur gestur.
dögunum. Gerðu þeir
félagar sér lítið íyrir og
sigruðu B flokk gæðinga
með eink-unnina 8,66 sem
þykir góð einkunn þetta
snemma vetrar.
...Þá gerði Magnús Bragi
Magnússon á Punkti frá
Varmalæk ekki síður góða
ferð á Mývatn þar sem þeir
félagar sigruðu í tölti með
einkunnina 7,50.1 öðru sæti
varð einnig Skagfirðingur,
Artemisia Bertus á Rósant
frá Votmúla. Einnig sigraði
Magnús í 100 metra skeiði á
Fjölni frá Sjávarborg á
tímanum 8,32 sek.
...Þegar Loafer og Kristín í
Miðhópi í Húnaþingi vestra
fóru að gefa hrossum sínum
á þriðjudagsmorguninn
hafði þeim fjölgað um
nóttina,! hópinn hafði bæst
jarpur hestur. Ekki hefur
hann hlotið fast nafrt ennþá
en er kallaður Óvæntur, því
enginn vissi um tilurð hans,
móðirin átti að vera geld.
( FERMINGAR & FERMINGARBÖRN )
Þegar kemur aö því aó gefa fermingarbarninu eitthvaö sem
viókemur áhugamáli þess, í þessu tilviki hestamennsku, ber aó
hafa í huga aldur þiggjandans, reynslu og aóstöóu hans
til þess aö stunda áhugamálið.
Hvaö skal gefa
fermingarbarninu?
■ Passa þarf upp á að barninu sé ekki gefið
eitthvað sem það kann ekki með að fara.
Þetta ber sérstaklega að hafa í huga sé um
að ræða barn þar sem fjölskyldan er ekki
með í sportinu.
■ Reiðhjálma þarf að endurnýja ekki
sjaldnaren á fimm ára fresti ogeða eftir þungt
högg. Því getur hann verði góð fermingargjöf.
En reiðhjálmur er ekki það sama og góður
reiðhjálmur. Passa þarf að hjálmurinn passi
barninu og eins að hann sé af viðurkenndri
gerð. Rangur hjálmur getur verið alveg jafn
hættulegur og enginn hjálmur.
■ Ef gefa á hnakk þarf að vanda valið.
Hann skal vera úr vönduðu og góðu leðri og
eins þarf hann að henta vaxtarlagi knapans
þannig að hann stuðli að því að knapinn sitji
í réttri ásetu. Þarna gæti borgað sig að hafa
fermingarbarnið með í ráðum og alls ekki
vitlaust að fá að prófa samskonar hnakk
og kaupa skal, á hesti. Því það er ekki það
sama að prófa hann í búðinni og nota síðan
hnakkinn raunverulega. Öryggisístöð skulu
skilyrðislaust fylgja.
• Beisli ogtaumur. Passa þarf aðtaumurinn
sé mjúkur og gott að halda um og oftar en
ekki henta svokallaðir stopparar börnum
sérstaklega vel. Eins að gefa þeim beisli
með einföldum hringamélum því ungur og
óreyndur knapi kann ekki með stangamél að
fara.
• Spennandi nýung sem gott er að venja
börnin á eru þessi svokölluðu öryggisvesti.
Þarna er um að ræða vesti sem bæði styðja
við bakið og vernda hrygginn ef barnið lendir
í einhverju, dettur eða fær hnykk, þá dregur
þetta úrhöggi oghlífir. Margsannaðeraðbörn
eru móttækilegri en fullorðnirfyrir nýungum og
því gott að venja sig strax við öryggið því að
sjálfsögðu viljum við börnunum okkar allt það
besta og þá á aldrei að spara í öryggismálum.
Því miður þá bíður hestamennskan miðað
við margar aðrar íþróttagreinar, ekki upp á
margar öryggisvörur en þær sem þó til eru á
skilyrðislaust að tileinka sér að nota.
■ Hvað fatnað snertir þá er mikið úrval til
af góðum hestafatnaði auk þess sem hlýr
ullar innanundir fatnaður nýtist alltaf vel
í hestaferðum sumarsins. Þó ber að hafa í
huga að fatnaðurinn sé gerður til þess að
vera á hestbaki þannig að hann sé hvorki
skrjáfgjarn né háll. Eins er mikilvægt að
fatnaðurinn sé aðsniðinn og blakti því ekki í
roki sem geturskapað slysahættu. Vandaður
hestafatnaður er dýr, en endingargóður og
borgar sig því þegar upp er staðið.
Ungt afreksfólk:: Linda Björk Valbjörnsdóttir
Æfir sta'ft og
stefnir hátt
Hverju þakkar þú þennan árangur?
-Númer eitt-tvö og þrjú; Miklar og
þrotlausar æfingar og mikið
keppnisskap, ég hef líka verið með
góða þjálfara sem skiptir miklu máli
og svo er stuðningur foreldra minna
ómet-anlegur.
Passar þú upp á mataræði og annað
í kringum íþróttirnar? -Já, ég passa
vel uppá mataræðið. Égtek alltaf með
mér hollt nesti ískólann, borða aldrei
sætindi og drekk ekki gos. Síðan
passa ég mig alltaf á því að fá nægan
svefn.
Hvað ertu búinn að fara á mörg mót
þaðsemaferári? -Égerbúin aðfara
á átta mót á þessu ári.
Þetta hlýtur að vera mjög kostn-
aðarsamt hver greiðir þessar ferðir?
-Allurferða-, gisti- og matarkostn-aður
lendir á foreldrum mínum sem alltaf
fylgja mér á mót og æfingar.
Eru þær ekkert niðurgreiddar af
íþróttafélagi þínu? -UMSS greiðir
keppnisgjöldin á mótin en allur annar
kostnaður lendir á foreldrum mínum.
Eru einhverjir sem styrkja þig sem
íþróttamann ? -Á síðasta ári fékk ég
styrk frá Afreksjóði UMSS og einnig frá
Menningarsjóði Kaupfélags Skagfirð-
inga, svo er ég á samning hjá Asics en
þeir skaffa mér æfingafatnað og skó.
Þessum aðilum færi ég mínar bestu
þakkir fyrir þennan frábæra stuðning
sem er mjög mikilvægur fyrir mig.
Hvert stefnir þú íþróttalega séð? -Ég
stefni á að halda mínu sæti í lands-
liðinu og verða afrekskona í frjáls-
íþróttum. Allt íþróttafólk stefnir á
toppinn og að sjálfsögðu langar mig
að komast á Ólympíuleikana !!
Linda Björk Valbjörnsdóttir 15
ára frjálsfþróttakona hefur þrátt
fyrir ungan aldur náð frábærum
árangri í íþrótt sinn. Linda Björk
er í afrekshópi landsliðsins, hún
er margfaldur íslandsmeistari og
nú síðast var hún kjörin íþrótta-
maður Tindastóls fyrir árið 2007.
Feykir spurði þessa frábæru
íþróttakonu út í íþróttina, árang-
urinn og sfðast en ekki síst hvert
stefnan hafi verið tekin.
Hvaða íþróttagreinar æfir þú að
staðaldri? -Ég æfi frjálsíþróttir af
fullum krafti.
Hvað æfir þú oft f viku og hversu
lengi? -Ég tek tækni- og þrekæfingar
5 sinnum íviku og lyftingar 4 sinnum í
viku og hver æfing er c.a 2,5 klst.
Hverjar eru aðstæður þfnar til þess
að stunda þessar æfingar?
-Útiæfingasvæðið er það flottasta á
landinu, en innanhúsaðstaðan erekki
nógu góð sérstaklega ekki fýrir
hlaupara. Á æfingatímabilinu um
veturinn þarf ég að fara margar ferðir
til Reykjavíkur til að taka hlaupa-
æfingar.
Hverjir eru þínir bestu árangrar á
íþróttasviðinu? -Ég hef sett 4
íslandsmet, 1 í 4x200m boðhlaupi, 1
í 200m hlaupi og 2 í 400m grinda-
hlaupi. Ég er 13 faldur íslands-
meistari, 4 sinnum í 60m hlaupi, 2
sinnum í lOOm hlaupi, 1 sinni í 200m
hlaupi, 2 sinnum í 80m grindahlaupi,
1 sinni í 300m grindahlaupi, 3 sinn-
um í 60m grindahlaupi, svo er ég í
Afreks- og úrvalshópi unglinga auk
þess er ég í A-landsliði Islands.
Linda Björk Valbjörnsdóttir, íþróttamaður Tindastóis 2007.
MYND: VG