Feykir - 06.03.2008, Page 12
12 Feykir 09/2008
5. - 7. bekkur Árskóla
Furðuverur og tvær
úr Tungunum
Líflegar verur settu svip
sinn á árshátíð miðstigs
Árskóla sem haldin var í
sfðustu viku.
Leikarar framtíðarinnar
stigu á stokk, léku, dönsuðu
og jafnvel sungu áhorfendum
til ómældrar ánægju. Alls voru
fjórar sýningar á árshátíðinni
og voru krakkarnir því orðin
vel æfð í atriðum sínum og léku
líkt og um atvinnumenn væri
að ræða.
Ljósmyndari Feykis var á
staðnum og tók þessar skemmti-
legu myndir.
( TÖLVUPÓSTURINN )
Leikfélag Blönduóss frumsýnir á föstudagskvöldið gamanieikinn
Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney í þýóingu Árna Ibsen. Leikstjóri er
Ingrid Jónsdóttir en alls taka átta leikarar þátt í sýningunni.
Feykir sendi Ingrid tölvupóst og forvitnaðist örlítió meira um verkið.
Önnur sýning á verkinu veróur sunnudaginn 9. mars kl. 16:00.
Leikstjóri meö flensu
> >
>
Hvað er að frétta frá Blönduósi?
-Allt gott, Veðrið er gott en hefði
mátt vera betra þann tíma sem
ég er búin að vera hérna. Annars
gengur allt sinn vanagang hér á
Blönduósi.
En af þér sjálfri?
-Jú takk ágætlega. Fékk flensu og
er búin að vera með hana í 2 vikur
sem er dáiítið erfitt þegar maður
er að æfa svona mikið en iss, ég
hristi þetta af mér.
Nú hefur þú dvalið á Blönduósi
í smá tfma hvernig kanntu við
þig?
-Jú bara ágætlega. Allir eru
vingjarnlegir og góðir héma.
Hefur verkið verið sýnt áður hér á landi?
- Já í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum árum.
Hverjir fóru með aðalhlutverk þá?
-Það sem ég man, Hilmir Snær og Öm Árnason,
held ég.
Hvernig gekk að fá leikara í verkið?
-Bara mjög vei.
Hefur þú leikstýrt áður hjá Leikfélagi
Blönduóss?
-Já ég leikstýrði Smáborgarabrúðkaupi eftir
Berthold Brecht að mig minnir fyrir þremur árum.
Hvaða verkefni tekur við hjá þér næst?
-Ég ætla að taka mér smá fn' og svo fer ég á
Patreksfjörð að dytta að húsi sem ég á þar.
Nú er blaðið þessa vikuna með fermingarþema,
það er því ekki hægt annað en biðja þig að
lokum að rifja aðeins upp þinn fermingardag?
-Ég man að ég leið vítishvalir því ég þurfti að vera
með slöngulokka og í klumpskóm með háum
hælum og það var ömurlegt fyrir mig því ég er
soddan strákastelpa.
> >
>
Þú ert að frumsýna Tvo tvöfalda
með Leikfélagi Biönduóss á föstu-
daginn, hvernig verk er þetta?
-Þetta erfarsi, einn misskilningur út í gegn.
grín og mikið gaman.
Mikið
Hvar verður verkið sýnt?
- Á Hótel Höll ífélagsheimilinu á Blönduósi
'SAUÐÁRKRÓKUR
SKAGASTRÖNDæ
BLÖNDUÓS,
I HVAMMSTANGl^ 1
’akureyri
VÖRUMIÐLUN?Af9re^slur 1 Reykjavik og Akureyri; Flytjandiog Landílutningar/Samskio
f AFGREIDSLA BLÖNDUÓSI g Æ simi 455 6606 ^ 1 pql A> tm
\lEYKJAVÍK \ - Jjflf