Feykir - 12.06.2008, Síða 1
HRIM
í heimsókn hjá Birni og
Magneu á Varmalæk
Höll til heiðurs
Hnmni
Hrímnishöllin var formlega vígð á
Varmalæk sl. föstudag. Höllin er rúmlega
1000 fermetrar að stærð og öll hin
glæsilegasta. Stefnt er að því að hún
verði með öllu fullbúin á þessu ári. Feykir
hitti þau Björn og Magneu, fékk söguna
á bak við höllina og ekki síst ástina sem
gerði hana að veruleika. Húsið er byggt
úr forsteyptum einingum frá Loftorku á
Akureyri ogþakið er frá BM Vallá. Það var
framleitt í vetur og byrjað að reisa það í
apríl og komið undir þak og að mestu búið
nú í byrjun júní.
sjá bls. 6-7
Norðvesturnefndin
Rúmlega 20 störf
á tveimur árum
Ríkisstjórnin hefur samþykkt svokallaóa Norðvesturskýrslu
þar sem gert er ráð fyrir að til verði rúmlega 20 opinber
störfum á næstu tveimur árum. Ekki var tekin afstaða
til Hólaskóla. Nefndin skilaði 11 tillögum til nkisstjórnar
en samkvæmt heimildum Feykis fékk hún 146 tillögur til
umfjöllunar en þær komu flestar úr héraði. í skýrslunni sjálfri
segir að nær engar tillögur hafi komið frá ráðuneytunum
sjálfum um flutning opinberra starfa út á land.
Hlustum betur á börnin okkar
Isbjörninn sást fyrst
á mánudagskvöld
Karen Sól Káradóttir 9 ára
stúlka á Blönduósi var
fyrst til þess að sjá
ísbjörninn sem veginn var
á Þverárfjalii í liðinni viku.
Karen sá bjöminn seint á
mánudagskyöld en foreldrar
hennar héldu að þarna væri
bara um fjörugt ímyndunarafl
barns að ræða.
-Við vorum stödd akkúrat
á þessum gatnamótum þar
sem björninn var daginn eftir
og hún segir aftur í bílnum að
hún hafi séð ísbjörn. Við hins
vegar héldum að barnið hefði
séð hvítan hest og gerðum
ekkert frekar i málinu, segir
Kári Kárason faðir Karenar
Sólar. -Þetta kennir okkur
foreldrum kannski að hlusta
betur á börnin okkar, bætir
hann við.
Prestum íSkagafirði fækkar
Mælifellsprestakall lagt niður
Störfm rúmlega tuttugu
skiptast milli sveitarfélaganna á
svæðinu og er gert ráð fyrir að
einhver þeirra verði til á þessu
ári. Athygli vakti hér norðan
heiða að skýrslan varð fyrst
sýnileg sveitarstjórnarmönn-
um inni á vef Morgunblaðsins
og hafa þeir því lítið svigrúm
haft til þess að kynna sér
innihald skýrslunnar.
Gréta Sjöfn Guðmunds-
dóttir skilaði sér bókun.
Kom bókun Grétu í ljósi
þess að nefndin tók ekki
efnislega afstöðu til tillagna
sem bárust frá Háskólanum
á Hólum. í bókun sinni
segist Gréta Sjöfn telja að
uppbygging menntamála
á Norðurlandi vestra sé
einn helsti vaxtarbroddur
svæðisins og ein sú öflugasta
byggðaaðgerð sem ríkið geti
gripið til. Eitt af verkefnum
Norðvesturnefndar hafi
verið að koma með tillögur
um mögulega styrkingu
menntunar og rannsókna á
svæðinu og því ætti tillaga
frá Háskólanum á Hólum
um endurmenntunar og
fjölgreinadeild að vera
ein af þeim tillögum sem
Norðvesturnefndin legði til.
Sú tillaga komi til með að
auka menntunartækifæri
á háskólastigi fyrir íbúa
svæðisins auk þess að vera sú
tillaga sem auðveldast sé að
koma í framkvæmd.
í ljósi þess að sveitar-
stjórnarmenn og aðrir höfðu
ekki fengið skýrsluna í hendur
og þau Adolf Berndsen og
Gréta Sjöfn eru bundin trúnaði
um störf nefndarinnar náðist
ekki að vinna fréttaskýringu
um málið í þessari viku en hún
mun birtast í næsta Feyki.
Mælifellsprestakall verður
lagt niður og sameinað
Miklabæjarprestakalli er
séra Ólafur Hallgnmsson fer
á eftirlaun sfðar á þessu ári.
Var þetta samþykkt á
kirkjuþingi. Ekki hefur verið
tekin nein ákvörðun um hvað
verði um jörðina.
íTengli!
TÖLVUDEILD TENCILS
BORGARFLÖT 27 SAUÐÁRKRÓKI C 455 7900
Töskiirfýrir
nyndavélar og faiiölvur
d fiiiu verði!
chi^—
VIÐ BÓNUM OG RÆSTUM!
Daglegar ræstingar og
reglubundið viðhald á bóni
í fyrirtækjum og stofnunum
SSIgpiSSfé?
©^idses'(É&ff,
Hringdu núna eða sendu tölvupóst
Sími: 848 7007 * Netfang: siffo@hive.is
Bílaviðgerðir