Feykir - 12.06.2008, Blaðsíða 7
23/2008 Feykir ~7
Úrtaka fyrír
Landsmót
en hún er það hross úr minni
ræktun sem er líkast því að sitja
á Hrímni frá Hrafnagili með
þetta ganglag og fallega háa tölt
og brokk, útskýrir Magnea og
ég fæ Björn til þess að rifja upp
sín íyrstu kynni af Hrímni.
-Það var árið 1980 að pabbi
keypti hann norður á Akureyri
og gaf hann mér strax
helminginn í honum á leiðinni
heim en við höfðum farið
ríðandi í þessa ferð. Ég vissi um
leið og ég kom á bak á þessum
hesti að þarna væri ég komin á
alveg sérstakan hest. Með þessa
svakalega miklu frambyggingu
og fótaburð sem var svo hár að
þó að maður sæti hann sá
maður á honum framlappirnar.
Hrímnir var tímamótahestur í
mínu lífi og þar sem byggingin
á reiðskemmunni núna er
tímamótabygging í mínu lífi
var við hæfi að hún beri nafnið
Hrímnishöll.
Heldur fá
oggóð hross
Björn og Magnea hafa mikinn
metnað fyrir sinni ræktun og
segir Bjöm að markmiðið sé að
rækta frekar fá en góð hross en
hann eignast ekki nema 12
folöld þetta vorið sem hann
segir þó sjálfur að sé hámarks
ræktun. -Ég vil frekar fá folöld
undan fáum en góðum merum
og er stefnan sú að vera með
allt fyrsta einkunnar merar í
ræktuninni en við höfum þó
ekki náð því enn enda missti ég
þrjár úr þeirra hópi sökum
aldurs síðasta haust, segir
Bjöm.
Það er ekki síst í ljósi þess
metnaðar sem þau hafa fyrir
ræktuninni að ráðist var í
byggingu á jafn stóru húsnæði
og Hrímnishöllin er, fyrir utan
er fallegur sýningarvöllur og
einnig er gert ráð fýrir hringlaga
vaðlaug fyrir hestana. Innan
dyra er aðstaða öll hin besta og
allt hannað með þægindi
manna og hesta fyrir augum.
Sturtu- og þurrkklefi fyrir
hrossin að ógleymdri góðri
vinnuaðstöðu fyrir manninn
sjálfan. -Okkur var ljóst að ef
við viljum vera í hópi þeirra
bestu var ekki um annað að
ræða en byggja upp aðstöðu í
samræmi við það. Aðstöðu þar
sem hægt er að vinna við bestu
aðstæður allt árið um kring. Á
hringvellinum verðum við
síðan með smærri sýningar eða
inni þegar verður leyfir ekki úti
sýningar.
Þið verðið líka með laug ekki
satt? -Þetta er smá misskiln-
ingur með laugina. Þetta verður
ekki eiginlega hestasundlaug
heldur hringlaga vaðlaug með
tveim dýptum þar sem gert er
ráð fyrir að hesturinn vaði í
vatninu. Það synda ekki allir
hestar eins og sund hentar því
ekki öllum og hef ég þá trú að
vaðlaugin henti stærri hópi
hesta, hins vegar hef ég engar
áreiðanlegar rannsóknir á bak
við þessa skoðun mína. En allt
er þetta gott í bland og því
fannst okkur sniðugt að koma
með eitthvað nýtt inn í þetta,
svarar Björn.
Auk Björns er Barbara
Wenzl tamningamaður á
Varmalæk og segir Magnea að
hún hafi borið hitann og
þungann af vinnunni þetta árið
meðan þau voru við byggingu.
í framhaldinu fari Björn aftur á
fullum þunga út í tamningar og
þjálfun og eru þau hjónaleysi
ekkert nema bjartsýn á fram-
haldið. -Við erum með góða
ræktun og hún á að borga þessa
framkvæmd. Meðan við ein-
beitum okkur af því að hafa þá
hluti í lagi er okkur borgið,
segir Magnea. Framhaldið lofar
svo sannarlega góðu, nokkur
ung og efnileg hross í uppeldi
og sjö af tólf folöldum eru fædd
þetta árið og lofa þau öll góðu.
Það er því ljóst að það er ekkert
nema bjart framundan í
hrossaræktuninni á Varmalæk.
Heimasíða Varmalœkjar er
www. varmilaekur. is
hestafréttír Feykis
Hestar
Um síðustu helgi fór fram
úrtökumót hestamanna-
félaganna í Skagafirði og
Siglufirði á Vindheima-
melum.
Þátttakan var góð og margir
álitlegir hestar sem kepptu um
laus sæti. Þeir sem komust
áfram voru eftirfarandi:
Frá Léttfeta
A-FLOKKUR
Magnús Bragi Magnússon
/ Straumurfrá Hverhólum
Léttfeti 8,40
Skapti Steinbjörnsson
/ Grunurfrá Hafsteinsstöðum
Léttfeti 8,38
B-FLOKKUR
Bjarni Jónasson
/ Komma frá Garði Léttfeti 8,54
Mette Mannseth
/ Happadís frá Stangarholti
Léttfeti 8,4
UNGMENNAFLOKKUR
Þórey Elsa Magnúsdóttir
/ Öðlingurfrá Ibishóli
Léttfeti 8,07
Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir
/ Brenna frá Fellsseli
Léttfeti 7,13
UNGMENNAFLOKKUR
Hulda Björk Haraldsdóttir
/ Hreimurfrá Kolsholti 2
Léttfeti 8,11
Anna M Geirsdóttir
/ Kall frá Dalvík Léttfeti 7,99
BARNAFLOKKUR
Ragnheiður Petra Óladóttir
/ Prestley frá Hofi Léttfeti 7,98
Hlynur Óli Haraldsson
/ Glæsir frá Gili Léttfeti 7,48
Frá Stíganda
A-FLOKKUR
Þórarinn Eymundsson
Hestar________
Litli
Rauður
mætti
Reiðskóli Ingimars
Pálssonar fagnar tuttugu
og fimm ára afmæli um
þessar mundir.
Af því tilefni var boðið
upp á kaffi og kökur og fólki
leyft að fara á hestbak.
/ Tindurfrá Varmalæk
Stígandi 8,53
Líney María Hjálmarsdóttir
/ Fengsæl frá Tunguhálsi II
Stígandi 8,34
B-FLOKKUR
Magnús Bragi Magnússon
/ Punkturfrá Varmalæk
Stígandi 8,39
Mette Mannseth
/ Spes frá Hólum Stígandi 8,37
UNGMENNAFLOKKUR
Eyrún Ýr Pálsdóttir
/ Klara frá Flugumýri II
Stígandi 8,25
Helga Björg Þórólfsdóttir
/ Goði frá Hjaltastöðum
Stígandi 7,63
UNGMENNAFLOKKUR
Sigurður Rúnar Pálsson
/ Glettingur frá Steinnesi
Stígandi 8,06
Ástríður Magnúsdóttir
/ Góða Nótt frá Vatnsleysu
Stígandi 8,0
BARNAFLOKKUR
Jón Helgi Sigurgeirsson
/ Teista frá Miðsitju
Stígandi 8,33
Kristófer Fannar Stefánsson
/ Háfeti frá Stóru-Gröf ytri
Stíganda 8,09
Frá Svaða
A-FLOKKUR
Sölvi Sigurðarson
/ Glóð frá Grund II Svaði 8,47
Þórarinn Eymundsson
/ Sefja frá Úlfljótsvatni
Svaði 8,31
B-FLOKKUR
Þórarinn Eymundsson
/ Sefja frá Úlfljótsvatni
Svaði 8,31
Lilja S. Pálmadóttir
/ Sigurfrá Húsavík Svaði 8,06
UNGMENNAFLOKKUR
Stella Rín Bieltved
/ Svaði frá Hellulandi
Svaði 8,22
Ingrid Saga Þórisdóttir
/ Krafturfrá Hala Svaði 7,94
BARNAFLOKKUR
Ingibjörg Sóllilja Baltasardóttir
/ Mökkurfrá Kópavogi
Svaði 8,24
Það vakti athygli í
keppninni að Lilj aPálmadóttir
frá Svaða fékk dæmt ógilt
eftir sína sýningu en fékk svo
einkunnir stuttu síðar.
Ástæðan mun vera sú að
dómarar álitu í fyrstu að
keppandinn hefði átt að enda
sýninguna á skammhlið en
Lilja reið beint út af braut-
inni.
Eftir nánari skoðun og
rekistefnu hjá dómurum varð
hins vegar lj óst að keppandinn
var að nota beinu brautina í
restina á sinni sýningu og má
þá keppandi ríða beint út úr
braut.
Tölt__________________
Þrír komast
á Landsmót
Inn á Landsmót í tölti
komast þeir sem fá hærri
einkunnir en 7,07.
Þeir eru:
1. Bjarni Jónasson
/ Komma frá Garði 7,53
2. Mette Mannseth
/ Spes frá Hólum 7,53
3. Mette Mannseth
/ Baugurfrá Víðinesi 2 7,50
Á myndinni eru Helgi, Inga Halldóra.
Dóra, Litli Rauður, Ingimar og