Feykir - 12.06.2008, Page 2
2 Feykir 23/2008
Skagafjörður
Skagafjörður
UMSS býðst til þess að
halda Landsmót UMFI
Fyrirhugaö Landsmót UMFÍ sem halda skal á Akureyri á
næsta ári viröist vera í uppnámi.
Framkvæmdastjóri Þórs
lýsti því yfir í fréttum RUV að
hann hafi þungar áhyggjur af
töfum við uppbyggingu
íþróttamannvirkja á íþrótta-
svæði Þórs á Akureyri.
Enn hefur ekki tekist að
semja við verktaka um
byggingu íþróttamannvirkja á
íþróttasvæði Þórs á Akureyri.
Að sögn Sigurjóns Þórðarsonar
hefur UMSS haft samband við
UMFÍ og boðist til að sjá um
Landsmót 2009
Leiðari
-Náið þið kannski ekki
Stöð 2 þarna fyrir norðan ?
Þessa spurningufékk hjá ritara umhverfisráðherra
fyrir viku þegar ég spurði hana hvað það þýddi að
ráðherra hygðistfara yfir ísbjarnamálið í heild sinni.
Hennifannst lítil ástæða til þess að ég spyrði ráðherra
þessara spumingar enda hafði hún svarað henni á
Stöð 2 kvöldið áður. Ég verð aðjáta að þetta viðhorf
opinbers starfsmanns pirraði mig óstjórnlega og ekki
minnkaði pirringurinn þegar annar opinber starfsmaður,
Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður á Rás 2, útvarpi allra
landsmanna, kallaði okkur sveitavarg í viðtali í ísland í
dag sl.fóstudag. Sjálfer ég þeirrar skoðunar að fólk sem
hefurþetta álit á landsbyggðinni hafi lítið að gera með að
þiggja launfrá sveitavarginum mér.
Sjálfer ég löngu orðin leið á þessu viðhorfi og veit að
þið hin eruð það líka. Snúum vörn í sókn ogfinnum 100
ástæður þess afhverju fólk ætti ekki að búa á höfuð-
borgarsvæðinu og flytja þess í stað út á land.
Góðar ábendingar óskastsendar á netfangiðfeykir@
nyprent.is - þeim verður síðan fundinn góður
vettvangur.
Guðný Jóhannesdóttir
ritstjóri Feykis, sími 898 2597
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt 1 Sauðárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
Herclís Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og Páll
Dagbjartsson.
Ritstjórí & ábyrgðarmaðun
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is © 455 7176
Blaðamenn:
Páll Friðriksson
palli@nyprent.is © 8619842
Óli Arnar Brynjarsson
oli@nyprent.is
Lausapenni:
Örn Þórarinsson.
Profarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og dreifing
Nýprent ehf.
Sími 455 7171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Brimnesskógar
Skrifaö hefur verið undir
samning milli
Sveitarfélagsins
Skagafjaröar annars vegar
og Brimnesskóga hins
vegar þess efnis að heimilt
verði að planta trjám í
tuttugu hektara á landi
Ásgarös sem er í eigu
sveitarfélagsins.
Þessir tuttugu hektarar
bætast við þann reit sem nú
Skagafjörður
Göngugarpar
í Austurdal
Austurdalur í framanveróum Skagafirói er mjög vinsæll
til útivistar hvort heldur er fyrir gangandi, ríöandi eða
skríóandi fólk.
Þann 14. júní verður farinn
göngutúr frá Gilsbakka í Ábæ
ogþaðaníSkatastaði. íferðinni
er m.a. gengið yfir Merkigilið,
um hlaðið á bænum Merkigili
og sem leið liggur að Ábæ.
Þaðan er haldið út á móts við
eyðibýlið Skatastaði og farið
yfir Jökulsá eystri á kláfi.
Kláfurinn er nýlega uppgerður
og fullkomlega öruggur
ferðamáti yfir ána. Að sögn
Gísla Rúnars Konráðssonar
göngugarps, eru nokkrar ferðir
áætlaðar um dalinn í sumar.
Vissara er að panta í tíma því
ásókn virðist ætla að vera
mikil
Skagaströnd________________
Bæklingur og fræðslu-
skifti á Spákonu-
fellshöfða
Sveitarfélagiö Skagaströnd hefur gefið út lítinn bækling
um Spákonufeilshöfða. í honum er ýmis fróðleikur um
Skagaströnd, höfðann, gróðurfar hans, jarðfræði og
fuglalíf.
Birt er loftmynd af honum
og inn á hana merktar
gönguleiðir. Bæklingnum
verður dreift til allra bæjarbúa
auk þess sem hann mun liggja
frammi á helstu ferðamanna-
stöðum.
Er tilgangur útgáfunnar
eins og segir í fréttatilkynningu
frá sveitarfélaginu, að hvetja
fólk til útivistar. Gönguleiðir á
Spákonufellshöfða eru flestar
stuttar og við þær hefur víða
verið komið fyrir
upplýsingaskiltum um fugla
og plöntur. Þau eru í stærðinni
A3 og er á þeim sagt frá átta
algengum fuglategundum og
sex plöntum. Verða skiltin
tekin í notkun með formlegri
athöfn þann 17. júní.
X
SPÁKONUFELLSHÖFÐI
A SKAGASTRÖND
gOnguleioir NATTURA saga
þegar er búið að planta í á
sama svæði. Nokkrir aðilar
leggja verkefninu lið s.s.
Landsvirkjun sem útvegar
ungt fólk til að vinna við
gróðursetninguna og Gyða
Jónsdóttir, ekkja Otto
Michelsen og fjölskylda, sem
styrkir verkefnið veglega með
fjárframlagi. Endurheimt
Brimnesskóga er verkefni
sem Steinn Kárason um-
hverfisstjórnunarfræðingur
hefur unnið að frá stofnun
félagsins.
Tilgangur verkefnisins er
að endurheimta hin fornu
landgæði Brimnesskóga, auka
umhverfisvitund fólks með
ferðaþjónustu og fræðsluferð-
ir í huga. Þegar er byrjað að
planta á nýja svæðinu.
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Fékkgóðar
gjafir
Heilbrigðisstofríuninni
bárust á dögunum góðar
gjafir firá Kvenfélagi
Lýtingsstaðahrepps,
Lionsklúbbnum Björk
og Krabbameinsfélagi
SkagaQarðar.
Kvenfélagið færði
stofnuninni súrefnisvél
Everflow ásamt fylgi-
hlutum, tvo súrefnis- og
púlsmettunarmæla af gerð-
inni NONIN, hugbúnað
til svefnrannsókna, 25
stk. flísteppi fyrir sjúlcra-
þjálfun og Tanita 800
standvog fyrir sjúkradeild.
Lionsklúbburinn færði
félaginu spilara fyrir
hljóðdiska og Krabba-
meinsfélagið færði henni
súrefnisvél Everflow ásamt
fylgihlutum, kaffivél,
kaffistell, geislaspilara o.f.l
í aðstöðu langveikra og
aðstandenda á sjúkradeild.
Vill framkvæmdastjórn
stofnunarinnar koma
á framfæri þakklæti til
gefanda fyrir þessar góðu
gjafir og þeim hlýhug sem
þeim fylgdu.
Er eitthvað
að frétta?
Hafðu samband -
Síminner 455 7176